Lausavísur
-
Hér birtast nokkrar lausavísur sem hrjóta öðruhverju af vörum mínum, ortar að mestu undir áhrifum af íslenskum tíðaranda, en hann getur sem kunnugt er hreyft við rólegasta fólki.
Ort í aðdraganda síðustu þingdaga fyrir jól:
Vetrarljósið veikt ég finn
og vart að fuglar syngi
en Jesús boðar jöfnuð sinn
jafnvel inni á þingi.
Ort um ákvörðun Vg-ráðherra um fjárfestingu Nubo:
Vinstri grænir vaka oft
en vilja annað
dreymir einatt upp í loft
að allt sé bannað.
Ort um fýlu íhaldsafla á Alþingi sem gekk á dyr í fjárlagaumræðu:
Á Alþingi er alger kyrrrð
og engin þræta
af því gömul hægri hirð
er hætt að mæta.
Ort um eilífan meting stjórnar og stjórrnarandstöðu:
Á Alþingi er ávallt tuð
og öngvu bjargað
jafnvel svo að góður guð
gæti argað.
Ort um stopult sumar víða úti á landi:
Sumri hallar svei mér þá
og sömuleiðis degi
vart að grænki stöku strá
og stopul færð á vegi.
Ort um harmagrátur LÍÚ vegna fiskveiðifrumvarpa vinstristjórnar:
Útgerðin á ósköp bágt
og öll þess klíka
því forréttindin fara lágt
og fylgið líka.
Ort að gerðum kjarasamningum til 3ja ára vorið 2011:
Gleður sólin garp og snót
og gróður brumar
menn kætast yfir kjarabót
og komið sumar.
Ort um niðurstöðu Icesave III, hvað var stráfellt:
Þjóðin mín er þreytt og leið
og þunn til róms
hún er bæði beisk og reið
og býður dóms.
Ort í aðdraganda seinna þjóðaratkvæðis um Icesave:
Vorið er komið og vextirnir lækka
verðbólgugreyið er aumlegt að sjá,
atvinnustigið er heldur að hækka
nú hæfir að segja; áfram og já!
Ort um þingræðistilburði forseta Íslands vegna Icesave-ósómans:
Forsetinn með sóma og sann
sýpur kálið
nú er lag að láta hann
leysa málið.
Ort um enn einn þorrann sem þjóðin þarf að þreyja eftir efnahagshrunið:
Þung er aldan, þjóðarbyr
er þvert á skip
flest er laskað, fólkið spyr
er fleyið hrip … ?
Ort um enn ein átökin í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði:
Vinstri grænir vinna mest
að vinaslitum
þrífast enda allra best
á innri krytum.
Ort um þjóðernisástir íhaldsaflanna í VG og Sjálfstæðisflokki:
Ég heyri það að hægrimenn
handarbökin nagi
með kommunum þeir eru enn
í óttans bandalagi.
Ort um landsdómsraunir þingmanna á haustmánuðum:
Hart er sótt að hæstvirtum
hækka menn því róminn
nú skal refsa ráðvilltum
og reka fyrir dóminn.
Ort um Eyjafjallajökulinn sem bætti gráu ofan á svart:
Gosið teiknar töfraland
á toppi fjalla
það er giska gott í bland
við gjaldahalla.
Ort um karlremdu Framsóknardrengja í pontu Alþingis:
Framsóknarfýrarnir kvaka
og forsætisráðherra saka:
Jóhanna er úti að aka
ellegar heima að baka.
Ort um málþófstilburði gömlu valdaflokkanna á þingi:
Málþóf er magnað á köflum
og má heita list
en varla hjá íhaldsins öflum
sem allt hafa misst.
Ort um skyndilega og óvænta þingræðisást sjálfstæðismanna:
Engist greyið illa sýkt
af innmúruðum pínum
íhaldið er engu líkt
í afturbata sínum.
Ort um angist stórgróðamanna í skattaumræðunni eftir hrunið mikla:
Útgerðar- og álversmenn
á aurum hafa gætur:
Þessir karlar þurfa enn
að þiggja skattabætur.
Ort um þingmenn gamals valdaflokks sem óttast uppgang samfélagsins:
Íhaldið er aumt og svekkt
á andsvörunum stagast
því finnst eflaust agalegt
ef efnahagur lagast.
Ort um nýjan ritstjóra Morgunlaðsins - og jafnframt gamlan vönd:
Vetur kemur leynt og ljóst
lífi daprast kraftur
dimmt er yfir, dagar seint
og Davíð gengur aftur.
Ort um sumarþreytu gömlu stjórnarherranna í Framsókn og hjá íhaldi:
Hjá íhaldinu allt er svart
eins er framsókn hokin byrði
já, það er fúlt og fjandi hart
að finnast lífið einskis virði.
Ort um þann elsku 17da júní 2009, fyrsta þjóðhátíðardaginn á nýja Íslandi:
Þó að hvíli yfir ey
ennþá nokkurt mistur
enn skal sungið jibbí jey
jesús góði kristur.
Ort um bankastjóra gömlu bankanna sem reyndust hafa tekið sér ný lán í þeim gömlu:
Það kvað víst gjarna kallað rán
hjá kristilegum þjóðum
sem aðrir nefna lögmætt lán
úr landsins einkasjóðum.
Ort um afarkosti Icesave-samninganna í sumarbyrjun 2009:
Vor aldaskuldir alda
á Íslendinga falla
Icesave gjöf til gjalda
ef gjöf það skyldi kalla.
Ort um hækkun á vín- og vindlingagjaldi til að hressa ríkissjóð í kreppunni:
Veik er þjóð í vandræðum
og versnar heldur smánin
enn er verð á vindlingum
og víni að hækka lánin.
Ort um meinta herferð Morgunblaðsins gegn innköllunarleið stjórnvalda, sem skelfir kvóta-”eigendur”:
Mjög er pirrað Morgunblað
mjög það brýnir kutann
með útgerðinni ólmast það
út í meirihlutann.
Ort um nýjan vinnustað á vormánuðum 2009:
Á nýju þingi nú ég sit
í návist strigakjafta
nú er spurt um verk og vit
og virkilega krafta.
Ort um hlutskipti gömlu valda- og hagsmunagæsluflokkanna eftir kosningar 2009:
Í fjórum línur finnst mér skýrt
að Framsókn líði illa
og íhaldið er ansi rýrt
með eymsli sín og kvilla.
Ort af stóískri hógværð um niðurstöðu kosninganna 2009; lesist stórsigur vinstriflokkanna:
Þótt útkoman sé æði sterk
er á það vert að minna
að okkur bíður ærið verk
sem allir verða að sinna.
Ort um heldur óákveðna peningastefnu Sjálfstæðisflokks fyrir kosningar 2009:
Málaflokkum mjög er sinnt
af mátulegri hræðslu
menn verða að geta valið mynt
af viti, reisn og fræðslu.
Ort um síðustu daga kosningabaráttunnar 2009 - á vinstrisinnuðum sumardegi fyrsta:
Dásamleg er dagrenning
og dögun alls hins bjarta
sumri fagnar Samfylking
sigurglöð í hjarta.
Ort um ímynd margra á pólitísku starfi, tíu dögum fyrir kosningar 2009:
Pólitík er pirrað strit
og pestarvinna
hún er hvorki verk né vit
og vísast minna.
Ort um helsta umræðuefni páskahátíðarinnar 2009; sterkefnaða styrkveitingu til sjálfstæðismanna:
Sannleikur er sjaldnast mjór
síst um páskadægur
það er sitthvað styrkur stór
og styrkur mikilvægur.
Ort um ákvörðun stjórnar HB Granda að greiða eigendum arð á tímum launalækkunar láglaunafólks:
Nú er horfið Norðurland
nú er horfinn gróði
samt er vit að vera grand
og veit arð úr sjóði.
Ort um prófkjörstíma á Íslandi:
Framboð af fólki er mikið
og flokkarnir opnir
það kvað vera kuldalegt blikið
og kjósendur lopnir.
Ort um endurunnar ástir Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í aðdraganda nýrra kosninga:
Endurreisnaríhaldið
aftur vill í stefni
vekur gamla viðhaldið
vært af hlöðusvefni.
Ort við brotthvarf Davíðs Oddssonar úr Seðlabankastjórnmálum:
Drottinn tók og drottinn gaf
drottinn manninn reyndi
Davíð vakti, Davíð svaf
Davíð öllu leyndi.
Ort í andarslitrum stjórnar Geirs H. Haarde þegar þingheimur var innilokaður:
Hjá hæstvirtum herrunum kveldar
já, handan við þilið
nú skíðloga Íslandsins eldar
sem eiga þeir skilið.
Ort um hugljómun sýslumannsins á Selfossi sem vildi ganga hart að skuldugu fólki:
Eykst nú valdsins auma neyð
eins og dæmin sanna
handrukkun er helsta leið
hugum smárra manna.
Ort um nýkaraðan formann Framsóknarflokksins og boðaðan bónþvott flokksins:
Um það ku víst einrómur
eftir fundasprenginn
að maddömmunnar meydómur
muni endurfenginn.
Ort í ljósi eldanna og uppreistanna á Austurvelli og víðar um land:
Allt í ljósi urgs og fárs
og anda nýrra tíma
er þjóðbúningur þessa árs
þykk og loðin gríma.
Ort um þaulsetu stjórnvalda í miðri búsáhaldabyltingunni:
Eflaust telst það afrek nokk
í opinberum geira
að sitja af sér fokking fokk
og fokka bara meira.
Ort að áliðnum mörsugi, við heldur úldinn efnahag:
Þéttur kemur þorrinn næst
þess skal óðum notið
allt er hérna orðið kæst
úldið, fúlt og rotið.
Ort um stjórnvöld sem gátu ekki ákveðið sig í Gaza-stríðinu:
Á meðan þeir myrða á Gaza
og murka lífið og pína
er stjórnin á Fróni að fjasa
um flókna ályktun sína.
Ort enn um þaulsetna stjórn:
Þótt læðist að landsmönnum kvíði
og lævís sé fórnin
þótt fólkinu sárni og svíði
þá sefur enn stjórnin.
Ort um ráðherra sem sker niður en segist samt í sókn í sínum ranni:
Þótt ríki hér regla og friður
er ráðherrum tamt
að skera norður og niður
en neita því samt.
Ort um auðmjúka auðmenn, sem snúa óforvarendis við blaðinu:
Opnast nú auðmanna kjaftur
í angistarkrísum
nú kaupa þeir æruna aftur
á útsöluprísum.
Ort um sömu menn:
Bankamenn sárir og búið allt geim
nú breima þeir sárast í lífinu
með skottið á milli skjögra þeir heim
og skila af sér hluta af þýfinu.
Ort á árskilum 2008 og 2009:
Nú er liðið nokkurt fár
níddri þjóð til ama
nú er komið annað ár
og allt er við það sama.
Ort um stjórn sem þarf að taka bakdyrnar á Ráðherrabústaðnum:
Á allskonar mótmælum ekkert er lát
aumingja stjórnin er slegin
hún skimar og læðist með lögreglugát
og laumar sér bakdyramegin.
Ort um skottið sem bítur söguna:
Ósköp stutt var okkar frægð
aumt er það í kjafti
enn er kreppa, enn er lægð
enn er þjóð í hafti.
Ort enn um þaulsetna stjórn:
Stjórnin situr stirð og köld
og stjörf í sínum ranni
það er fúlt að finna völd
fjara undan manni.
Ort um blaðamann DV sem stóð ritstjóra sinn að lygum:
Það má segja ljóst og leynt
um litla DV-manninn
að margt er víst á ritstjórn reynt
sem rýrir stóra sanninn.
Ort enn um þaulsetna stjórn:
Sjálfsagt fer á söguspjöld
setuþolna stjórnin
auðmjúk sat við úfin völd
þótt engin væri fórnin.
Ort um þann óskunda að Íslendingar séu að tapa fullveldi sínu:
Oft er þjóða ættleiðing
illa viti borin
já, hver vill eiga Íslending
alveg niðurskorinn?
Ort um aumingja bankamennina og ábyrgðina sem var þeirra - um skeið:
Það kostar sitt að klúðra þjóð
af krafti bankamanna
nú skal aftur sótt í sjóð
sjálfra heimilanna.
Ort um umdeilda rannsókn á bankahruninu sem þótti ganga brösuglega:
Embættið er andvaka
við eftirgrennslan hálfa
mun ei rétt að rannsaka
rannsóknina sjálfa?
Ort um leynistaði auðmanna erlendis:
Fræknir auðmenn flýja torg
og fara sér að voða
það mun ljótt í Luxemborg
sem leyfist ekki að skoða.
Ort um aumingja lögguna að störfum:
Út um kaldan Austurvöll
allt er fullt af skátum
þessi fjandans frammíköll
fanga þeir með látum.
Ort um þaulsetna stjórn, enn og aftur:
Valdagræðgin virðist góð
varast ber samt þusið
það er sælt að svæfa þjóð
og sitja af sér pusið.
Ort um Davíð Oddsson í pólitískum embættisham:
Hefur oft í hótunum
hastur stólpakjaftur
frískur er á fótunum
flokkinn heimtar aftur.
Ort um blessaða síldina sem sveik okkur í miðju hruninu:
Endist lengur eymdarkórinn
um það snýst, jú, allur efinn
nú er líka sjúkur sjórinn
síld er veiði en ekki gefin.
Ort um einangraðan útvarpsstjóra í uppsagnarhrinu hjá RÚV:
Blessuð Gufan blístrar hljótt
því búið er á geiminum
reiður pöpull pískrar ljótt
Palli er einn í heiminum.
Ort um sjálfsvörn Seðlabankans:
Æsist núna allur skarinn
úti á stjórnarlóðinni
Seðlabankinn vel er varinn
og verst nú sjálfri þjóðinni.
Ort um sannkallað lánleysi þjóðarinnar:
Ein bjó þjóð við ysta haf
eins og saklaus kjáni
allt hún veitti og allt hún gaf
allt hún tók að láni.
Ort um evruþrasið:
Í pólitík duga víst dyntir
og dagsform er ágætis svar
fólk velur sér misjafnar myntir
og meginlönd, hér eða þar.
Ort um nauðbeygða þjóð og allslausa:
Hér er ort um bitra bón
bljúgt í ljósi neyðar
hvenær verður fagra Frón
flutt á Jótlandsheiðar?
Ort um óvissu í stjórnmálum:
Ég gæti víst flokkinn minn fundið
en ferlega er ég samt sljór
því valið er vandkvæðum bundið
og valkvíðinn helst til of stór.
Ort um flokksræðið:
Loksins vaknar lítil þjóð
af löngum svefni og dvala
á skömmum tíma orðin óð
út í sína smala.
Ort um vaxandi óróa á Austurvelli:
Í andófinu er ég kænn
og æstur kasta grjóti
ég hlýt að vera vinstri grænn
svo vaskur fúll á móti.
Ort um Oddsson sem gerði sitt til að hindra hjónaband forsetans:
Út fær Davíð öllu hýst
sem ekki er að skapi hans
nú ég heyri að hann sé víst
hjónadjöfull forsetans.
Ort um þaulsetu stjórnar á tímum terrors í Framsókn:
Strípuð þjóðin stynur hátt
stjórnin rís til varna
af afsögnum er ennþá fátt
utan Guðna og Bjarna.
Ort um Davíð Oddsson í Kastljósi sem kostaði þjóðina sitt:
Enn fær Davíð ekkert stig
er út hann reiði loftar
karlinn ætti að kunna sig
og kannski að þegja oftar.
Ort um fallinn formann Framsóknar:
Visnar sérhvert vinaband
vont er flokksins havarí
formaðurinn flúinn land
farinn er til Kanarí.
Ort um isma:
Í nýju ljósi nú ég sé
nýfrjálshyggjumóðinn
traustum körlum tryggt er fé
en tapið borgar þjóðin.
Ort um nýtt stafróf á meðan beðið var eftir láni IMF:
IMF er ekki að ské
eftir kemur ATH
EUR og ESB
ætli D þar standi hjá?
Ort um auralausa þjóð í leit að vinum:
Spæld býr þjóð við spott og smán
spurt er rómi veikum
hvenær kemur landsins lán
og lausn frá erfiðleikum?
Ort um Bjarnalausan Framsóknarflokk:
Þrengist mjög um þunnan flokk
- þoka er um heiðar
enn fer Guðni á sitt brokk
með engan sér til reiðar.
Ort um gáttaða þjóð framan við Alþingishúsið:
Nú fleygi ég fúlustu eggjum
og fyrirlít það sem ég kaus
nú læðist valdið með veggjum
og veit ekki neitt í sinn haus.
Ort um nýjan þjóðfána:
Á Alþingi eru menn hraktir
og eitthvað svo þungir á brún
hátt við burstina blaktir
Bónusfáninn við hún.
Ort um lánakjör æðstu manna gamla Kaupþings:
Ég sæki hér um sérstakt lán
á sjentilmannataxta
ég treysti því að allt sé án
ábyrgðar og vaxta.
Ort um skoðanakannanir í byrjun kreppunnar:
Til að varast vinstri snú
og vekja gamla krabbann
endurlífga ætti nú
íhaldsmannastabbann.
Ort um áhyggjur þingmanna af ofríki framkvæmdavaldsins:
Máttlaust þingið minnir oft
á míglekt kofahreysi
þar gjarnan allt er upp í loft
út af valdaleysi.
Ort um Ísland sem aðhlátursefni á erlendri grundu:
Þjóðarfrægð er fyrir bí
framinn allur búinn
það er vísast vörn í því
að vera trausti rúinn.
Ort um meinta stjórnartauma arftaka DO:
Stynur Geir og stýri fórnar
stefnan er í gíslingu
alvaldurinn ennþá stjórnar
inn í bankahvelfingu.
Ort um evru-tuð Samfylkingar í eyru sjálfstæðismanna:
Hampar evru helst til örg
hart er því að neita
en ekki nær hún Ingibjörg
íhaldi að breyta.
Ort um fyrrverandi ofurþjóð á ofurvöxtum:
Í okurlánalandinu
laust er allt á prjónum
hlýjan er af hlandinu
í hlífðarlausum skónum.
Ort um meint einræði í Seðlabankanum:
Syngur enn við svörtu loft
sólskríkja að hausti
ruglast hún í rími oft
rúin öllu trausti.
Ort um tæpustu jól Íslendinga:
Fokið er í flest öll skjól
fall á launatöxtum
enn þó verða einhver jól
á okurlánavöxtum.
Ort um upphaf hausts:
Svalt er úti, svei mér þá
svíður undan vetri.
Ég er vart með hýrri há
og hef nú verið betri.