Sigmundur Ernir

Eigandinn
Það er ánægjulegt að sjá ný og glæsileg fiskveiðiskip koma til landsins, svo að segja mánaðarlega. Útgerðin er enda aflögufær sem aldrei fyrr.

Blöðin fjalla misjafnlega um þessar skipakomur. Yfirleitt er ein mynd látin duga, með nokkurra dálksentimetra umfjöllun.

Auðvitað fer blað útgerðarmanna mest. Fjöldi mynda, úr lofti, láði og legi – og hundruð dálksentimetra um eitt og sama skipið; Heimaey. Stærsta myndin er af eigenda útgerðarinnar – og eiganda blaðsins.

Davíð Oddsson vinnur vel fyrir kaupinu sínu.

Spurning hvort hann eigi að fara sækja um sjómannaafslátt …

-SER.

Skólar og stjórn
Ég er hrifinn af tillögu sjálfstæðismanna í borgarstjórn, þess efnis að foreldrar hafi afgerandi áhrif á hvaða skólastjórar veljast til starfa í skyldunámi barnanna.

Skólastjórar móta skólabraginn. Þeir leiða starfið innan skólans, halda um þræði menntunar og félagsstarfs, upplifunar og aga.

Söfnuðir ráða því hvaða prestar velja til starfa innan sóknar. Sömu rök eiga að gilda um skólana þar sem börnin okkar eru mótuð og menntuð að grunni til. Aðhaldshlutverk foreldra er lykilatriði í skólastarfi, rétt eins og söfnuðanna innan kirkna. Sá er þó munurinn á að kirkjugesti geta gengið út, eða sleppt að mæta, reynist klerkurinn slakur, en börnum ber að mæta. Það er skylda þeirra. Þess þá heldur að foreldrar hafi áhrif á val á skólastjóra.

Það ber að fagna góðum hugmyndum, hvaðan sem þær koma …

-SER.

Forsetahorn
Forseti gamla Íslands hefur allt á hornum sér í aðdraganda sumarkosninga. Hann kennir öðrum um ófarir sínar; sér samsæri fjölmiðla í hverju horni.

Forseti gamla Íslands þarf að líta sér nær. Hann er einfær um óvinsældir sínar. Hann er partur af pólitíkinni. Valdi sjálfur þá leið. Og af því hann er ekki hafinn yfir skotgrafirnar, nýtur hann ekki almennrar virðingar.

Forseti gamla Íslands mun verða enn pólitískari á lokametrunum – og þar af leiðandi mun virðingin fyrir honum þrengjast enn frekar áður en yfir lýkur. Forsetinn velur að fara þessa leið. Hann getur ekki kennt öðrum um afleiðingar hennar.

Svo er hitt broslegt:

Hægrimenn á Íslandi hafa aldrei fengið forseta að sínu skapi. Þar til nú, hugsanlega. Þeir hafa aldrei verið nær því að fagna sigri í forsetakosningum. Þeirra val er Ólafur Ragnar Grímsson.

Aðrir kjósa nýja Ísland …

-SER.

Fangelsuð börn
Á Íslandi eru börn ekki sett í fangelsi …

… nema þau sé útlensk.

Sjónvarpsviðtal við marókóskan dreng í gærkvöld jók svolítið á rauðu blóðkornin hjá manni heima í stofu. Eitthvað hefði heyrst í okkur, hefðu þessu verið öfugu farið – og íslenskt barn hefði verið fangelsað í Rabat …

-SER.

Sumarþing
Það verður sumarþing. Klárlega. Fram í júlí.

Sjaldan ef nokkru sinni hafa þingnefndir haft jafn viðamikil mál til skoðunar. Það ber að vanda sig. Og vel að merkja; það sem meðal annars hefur breyst frá tíð gömlu valdaflokkanna við kjötkatlana er að þingnefndum er nú heimilt að breyta málum. Valdið er ekki lengur allt að ofan …

Ég tel einsýnt að þingið vinni fram í júlí – af tvennum ástæðum: Forherðing íhaldsins á Alþingi er alger … og svo er hitt að það er nóg að gera, nóg að skoða.

Gefum íhaldinu svigrúm til frekari fýlu, en við hin; vinnum vel og lengi …

-SER.

Óbreytt ástand!
Ég gat ekki heyrt annað á máli sjálfstæðismanna á borgarafundinum í Fjarðabyggð í gærkvöld, um breytingar á stjórn fiskveiða, að þeir vildu óbreytt ástand. Helst engu breyta. Halda áfram í ófriði.

Það liggur þá einfaldlega fyrir. Og er sjónarmið út af fyrir sig. Íhaldssamt, vitaskuld.

Þetta var annars magnaður fundur. Húsfyllir. Og engin tæpitunga töluð. Norðfirðingar eru sterkt og samheldið samfélag sem trúir á sínar stoðir. Það er eðlilegt. Fólk í samfélagi sem ríkisvaldið hefur hundsað um áratugaskeið, hvað innviði og þjónustu snertir, vill vitaskuld ekki sjá á eftir neinu til nagandi blýantskjaftanna í suðri.

Fjarðabyggð framleiðir meira fyrir samfélagið en nokkurt annað byggðarlag, en situr uppi með afleitar samgöngur. Og svikin loforð um úrbætur frá því fyrir hrun.

Ég var í hlutverki hlustandans á fundinum. Ég græddi góðan slatta á að hlusta á heimamenn. Skoðanir þeirra nesta mig vel til frekari funda atvinnuveganefndar um fiskveiðistjórnarfrumvörpin.

Ég vil breytingar til sátta, sem skaða ekki arðsemi greinarinnar – og gera henni þannig fært að greiða rentu fyrir tímabundin afnot af þjóðarauðlind sem misjafnlega stæð fyrirtæki ráða við.

Ég vil ekki óbreytt ástand …

-SER.

Hvannadalshnúkur
Eins og ljón með þykkan makka, sem liggur fram á fæturnar …

Þannig blasir Hvannadalshnúkur við manni í 1800 metra hæð. Og 310 metrar eftir …

Mögnuð sýn, alveg kynngimögnuð.

Ég gekk á Öræfajökul um helgina – í nærfellt 100 manna hópi á vegum ferðafélags Íslands, vel studd af afburðagóðum fararstjórum félagsins.

Veðrið hamlaði okkur för upp á blátoppinn; það var hopað í 2080 metra hæð, en það er sama; svona ævintýri er alltaf einstakt … hversu oft sem farið er í Öræfin miklu. Enda veðrið um helgina með afbrigðum gott, nema allra efst á Íslandi.

Þessi 25 kílómetra ganga – og 2000 metra hækkun – er áskorun við eigið þrek og geð, en framar öllu magnað ævintýri í góðra vina hópi …

Ég fer aftur …

-SER.

Eineltið
Umfjöllun Kastljóss síðustu daga um áhrif og afleiðingar eineltis, vekur mann enn og aftur til umhugsunar um þá ógn sem felst í því að leggja til atlögu við félaga sína.

Umfjöllunin hefur verið þörf, yfirveguð og fagmannleg.

Og minnir á þau orð míns gamla skólameistara í MA, sem eitt sinn reit í góðri blaðagrein, að aðeins eitt vantaði í grunnskólalögin; að börnum liði vel í skólanum.

Heill barna okkar er lykilatriði í samfélaginu. Baráttan gegn einelti þarf að vera markviss, ákveðin og einörð. Þar þarf ekki einasta skólasamfélagið að koma við sögu, heldur og heimilin í landinu. Þau, umfram aðrar stofnanir samfélagsins, verða að taka á þessum vanda; innræta börnum og unglingum að aðall góðs samfélags er að gera ráð fyrir breidd þess, fremur en einsleitni.

Skólaskylda er stórt orð. Ógnarstórt orð. Skólar sem falla á Olweusar-prógramminu eru lélegir skólar. Þeir hampa ógninni með því að víkja fórnarlömbum til hliðar, fremur en gerendum. En það er foreldra að hlusta á fótmálið; nema taktinn í göngunni fram eftir vegi. Uppeldið er ekki að meginhluta skólanna, heldur heimilanna – og góðir skólar bæta þar vitaskuld miklu við …

En takk Kastljós – meira af svona þarfri og yfirvegaðri þjóðfélagsrýni …

-SER.

Forseti Moggans
Morgunblaðið, sem er fjölmiðlarmur Sjálfstæðisflokksins, hlýtur að eiga bágt þessa dagana. Það getur ekki annað en stutt Ólaf Ragnar Grímsson. Hann er enda eini fulltrúi gamla tímans sem er í framboði til forseta Íslands.

Og mun tapa, rétt eins og allur rekstur Morgunblaðsins.

Ólafur Ragnar er eina afturhaldið sem blaðið getur stutt. Hann er eini einangrunarsinninn sem blaðið getur stutt. Hann er eini frambjóðandinn sem skilur aðdraganda hrunsins með sama hætti og íhaldspennarnir. Hann er jafn ákafur að endurskrifa söguna sér í hag og aðalritstjórinn.

Þetta er skítlegt fyrir Moggann.

En eðlilegt …

-SER.

Landsdómur
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, situr uppi með fyrsta landsdóm Íslandssögunnar sem stjórnsýslan á jafn mikla sök á, ef ekki mun meiri, en maðurinn sem sat á sakabekk.

Landsdómurinn, sem kveðinn var upp í Þjóðmenningarhúsinu 23. apríl 2012, er áfellisdómur yfir lausung í stjórnkerfinu og skort á formfestu. Hann er dómur yfir lausatök á yfirstjórn stjórnsýslunnar. Hann er áminning um ófagmennsku á æðstu stöðum.

Hann er dómur yfir kerfi, miklu fremur en dómur yfir manni.

Í þessu ljósi er landsdómur rökrétt framhald á inntaki Rannsóknarskýrslu Alþingis, sem einmitt gagnrýndi þessa þætti mjög ítarlega í úttekt sinni á aðdraganda hrunsins.

Geir H. Haarde var reiður við dómslok.

Það er eðlilegt.

Hann er dæmdur fyrir háttalag sem viðgengst hefur um áratugaskeið í stjórnsýslunni … þar sem menn hafa verið sínir eigin herrar, án þess að þurfa að fylgja nokkurri formfestu, eða gera skil á eigin verkum.

Kerfið; það var ég!

Þannig var það.

Og því þarf að breyta …

-SER.