Um mig og mína

-

Ég er borinn og barnfæddur Akureyringur og þótti nokkuð fyrirferðarmikill strax við fæðingu, nálega tuttugu merkur þegar heimsljósið skar í augun á útmánuðum 1961, næstyngstur fjögurra systkina. Alinn upp á Brekkunni, eins og það heitir, af þeim heiðurshjónum Helgu Sigfúsdóttur húsmóður og Rúnari H. Sigmundssyni viðskiptafræðingi, sem vann á skattinum þegar ég man fyrst eftir mér. Sumsé tíminn sá, án sjónvarps en þó stillimyndar; pabbinn í launavinnu myrkranna á milli á meðan mamman tók slátur og saumaði á okkur fötin og umvafði í fálæti daganna.

Borinn og barnfæddur Akureyringur með bæinn í baksýn.

Borinn og barnfæddur Akureyringur með bæinn í baksýn.

Áar mínir eru alþýðufólk; bændur og verkamenn, húsmæður og hjú. Ég á föðurættir að rekja vestur á Strandir norður og var þar í sveit hjá afabróður mínum á Melum einhvern part úr fjarlægum sumrum. Með í för var jafnan afi nafni minn sem hafði þurft að bregða búi á setrinu sakir berkla eins og títt var í þann tíð. Móðurættin er annars vegar frá Akureyri og hins vegar frá Héraði, nánar tiltekið Eiðaþinghá þar sem all nokkur frændgarður hnusar enn af heyi. Lífsmynd mín er sumsé dregin millum Stranda í vestri og Flóans í austri, með augljósum miðpunkti á Akureyri.

Ég gekk í forskóla í kjallaranum á gamla Húsmæðraskólanum og lærði að draga þar til stafs. Upp frá því tók frú Áslaug Axelsdóttir við sterku kennaraprikinu og sleppti ekki takinu af því fyrr en eftir sex vetra fyrirlestur í Barnaskóla Íslands, sem svo hét af akureyskri hógværð í minni smæð. Frú Áslaug ber ábyrgð á þeirri ævilöngu áráttu minni að elska íslenskt mál og sögu, svo út af flóir … og einhverra hluta vegna hef ég einnig setið uppi með óheyrilegan áhuga á landafræði og get ekkert að því gert … já, landakort eru ástríða mín - byggðir og óbyggðir, firnindi og fjöll.

Gagnfræðaskóli Akureyrar breytti mér úr barni í bærslafullan ungling með undrasítt hár. Vinafjöldinn húkandi undir húsvegg að reykja Viceroy og annan álíka óþverra milli þess sem hnakkakerrtir kennararnir komu fyrir okkur vitinu. Ég tók landsins fyrsta grunnskólapróf á leiðinni upp í dásamlegasta skóla lífs míns, Menntaskólann á Akureyri, sem skilaði mér skrifandi og skáldmæltum út í fullorðinsárin, þökk sé einhverjum bestu kennurum þessa lands, hrífandi og manneskjulegum á pari við lífið. Hvergi á ævinni hef ég eignast fleiri vini en í félagsfræðinni í MA.

Ég hef fengist við ritstörf alla mína ævi; sent frá mér fjölmargar ljóðabækur, sögur og söngtexta, en þess utan skrifað einhver reiðinnar býsn í tímarit og blöð, jafnt greinar og viðtöl, úttektir og skýringar - og viðlíka hefur starfinn verið í útvarpi og sjónvarpi, heima og erlendis. Titlarnir síbreytilegir; blaðamaður og fréttamaður, ritstjórnarfulltrúi og ritstjóri, fréttaritstjóri og fréttastjóri. Skiptir ekki öllu. Hitt meiru að sjónvarpið var ekki aðeins gæfa í starfi, heldur og í einkalífi, en þar kynntist ég konu minni og hef unnið við hlið hennar í ástsjúkan aldarfjórðung.

Simmi og Ella á góðri stundu í Kjarnaskógi.

Simmi og Ella á góðri stundu í Kjarnaskógi.

Elín kona mín Sveinsdóttir er Reykjavíkuralin, en ættuð vestan af fjörðum með talsverð tengsl við sjálfan Tröllaskagann til að flikka upp á genin; Siglfirðingur í móðurættina og komst harla nærri harðmælginu á unglingsárum sínum í vist hjá Vésteini afa sem stjórnaði fiskvinnslu Kveldúlds á Hjalteyri áður en hann tók við forstöðu Kísiliðjunnar á Mývatni. Hún lærði förðunarfræði um árabil í París og starfaði við ýmsar tískusýningar ytra og síðar kvikmyndir heima, áður en hún byrjaði að stjórna fréttaaútsendingum og fréttatengdum þáttum af sinni lífsins list og kúnst.

Börnin eru sex, fædd á tuttugu árum. Elst er Eydís Edda (f. 1985) en hún lést í mars 2009 eftir langvarandi veikindi og baráttu við óþekktan hrörnunarsjúkdóm. Oddur (f. 1987) er listaháskólanemi og gítarleikari. Birta (f. 1990) er með fréttagenið í blóðinu og starfar á fréttastofu Stöðvar 2, en er þess utan að huga að námi í útlöndum. Rúnar (f. 1992) er í Menntaskólanum við Sund en vinnur þess á milli á golfvelli. Ernir (f. 1996) er vel fermdur grunnskólanemi og efnilegasti kylfingurinn í hópnum - og Auður (f. 2004) er nýskriðin inn í barnaskólann eftir sannfærandi ár á leikskóla, örvhent eins og Oddur. Elstu börnin tvö á ég með fyrri konu, en Eydís Edda ólst hins vegar upp á heimili okkar Ellu, uns hún flutti á sambýli á 19da ári.

Í faðmi fjölskyldunnar á heimili Eydísar í Hólmasundi.

Í faðmi fjölskyldunnar á heimili Eydísar í Hólmasundi. Myndin er tekin í ársbyrjun 2009, nokkrum vikum fyrir andlát Eydísar.