Archive for category Uncategorized

Þjónustustig

Var viðstaddur opnun á skrifstofu Umboðsmanns skuldara á Akureyri í dag. Það var góð samkoma.

Skrifstofan er nú starfrækt á þremur stöðum á landinu, að meginhluta í Reykjavík, með um 80 starfsmönnum - og svo í Reykjanesbæ og á Akureyri.

Tveir starfsmenn sinna þjónustunni á Akureyri.

Mikilvægt er að landsbyggðin sé ekki skilin útundan þegar kemur að þjónustu af þessu tagi. Það gerist alltof oft.

Því staðreyndin er þessi: Opinberu þjónustustigi á landinu er misskipt; sjálfsagða þjónustu þurfa æði margir að sækja sér um langan veg, sosum eins og mörghundruð kílómetra; hvort heldur er fæðingarþjónustu eða póstþjónustu - og allt þar á milli.

Það er pólitík að stytta vegalengdir …

-SER.

No Comments

Gleymdir skattar

Í stjórnarandstöðu er gott að gleyma. Og giska mannlegt.

Sumsé: Á ríkisstjórnartíma Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks voru skattar og gjöld ríkissjóðs umtalsvert hærra hlutfall útsöluverðs bensíns og díselólíu en raunin er nú.

Hlutfall skatta oggjalda er núna vel undir 50% en fór hæst í tæp 75% hjá sjálfstæðismönnum og framsóknarmönnum.

Þetta er fróðlegt í ljósi vandlætingar íhaldasaflanna að undanförnu … sem tala alltaf eins og þau sé andvíg sköttum, þótt raunin sé önnur …

-SER.

No Comments

3ja ára

Stjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er 3ja ára.

Talsvert hefur gengið á - og talsvert hefur tekist:

Samkvæmt Hagstofu Íslands þá jókst landsframleiðsla um 3.7% fyrstu 9 mánuði ársins á Íslandi – hér er mun meiri hagvöxtur en í flestum ríkjum.

Seðlabanki Íslands spáir að meðaltali 2,5% hagvexti árin 2011-2013; 3,1% í ár og 2.3% á því næsta.

Samkvæmt Vinnumálastofnun þá var 7.3% atvinnuleysi í des 2011 samanborið við 8.0% í des 2010. Alls voru 12.679 manns atvinnulausir í lok desember, atvinnulausir að fullu voru hins vegar 10.832 talsins. 12.6% atvinnulausra voru í hlutastörfum.

Samkvæmt Hagstofunni voru að meðaltali 10.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6% vinnuaflsins á síðasta ársfjórðungi 2011 – meira en einu prósenti minna en fyrir ári síðan. Hvoru tveggja, atvinnulausum og starfandi, fækkaði frá fjórða ársfjórðungi 2010 til fjórða ársfjórðungs 2011. Atvinnulausum fækkaði um 2.600 og starfandi um 500.

Samkvæmt Vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands fjölgaði heildarvinnustundum um 3.3% á einu ári – frá hausti 2010 til haustsins 2011- eða um 5000 ársverk. Annan ársfjórðunginn í röð fjölgaði bæði störfum og vinnustundum á mann töluvert umfram það sem spáð hafði verið.

Samkvæmt Hagstofunni hefur bilið á milli lægstu og hæstu launa farið minnkandi undanfarin þrjú ár. Laun stjórnenda hafa hækkað minnst – um 9.9% á síðastliðnum þremur árum – en á sama tíma hafa laun hækkað mest hjá skrifstofufólki 22.5% og hjá verkafólki 22.0%.

Fjárlagahallinn var 216 milljarðar árið 2008, 140 árið 2009, 120 árið 2010 og verður 46 milljarðar á þessu ári og er áætlaður um 20 milljarðar á næsta ári.

Kaupmáttur launa hefur aukist um 3.7% síðustu 12 mánuði.

Launavísitala hefur hækkað um 9.2% síðustu 12 mánuði.

Stýrivextir eru 4.75% – voru 18% í ársbyrjun 2009.

Verðbólgan er nú 6.5% – var 18.6% í ársbyrjun 2009.

Skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands er nú um 300 stigin (nálægt meðaltali flestra Evrópuríkja) – var rúmlega 1100 þegar mest var.

Samkvæmt Hagstofu Íslands þá fluttust á nýliðnu ári 1.404 fleiri frá landinu en til þess, og er þetta þriðja árið í röð sem slík þróun á sér stað. Þó hefur dregið verulega úr brottflutningi miðað við árin tvö þar á undan, en árið 2010 fluttu 2.134 fleiri frá landinu en til þess og árið þar á undan náði þessi fjöldi sögulegu hámarki þegar alls 4.835 fleiri fluttu frá landinu.

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar voru vöruskiptin hagstæð um 104,5 milljarða króna árið 2011.

Samkvæmt væntingarvísitölu Capacent þá hafa Íslendingar ekki verið bjarstsýnni síðan í spetember 2008.

Þetta er talsvert …

-SER.

No Comments

2012

Árið 2012 verður að vera kröftugt uppbyggingarár. Að baki er erfiður en illnauðsynlegur samdráttartími, þar sem tekið var til í ríkisbúskapnum - og sá árangur verður að skila sér í almennilegri viðspyrnu.

Við eigum að stefna að fjölbreyttri atvinnuppbyggingu hringinn í kringum landið. Við eigum að veðja á hreinu orku, öfluga ferðaþjónustu og kröftugan sjávarútveg sem lítur almennum og sanngjörnum reglum. Við þurfum að efla nýsköpun, ekki síst í tæknigeiranum, en einnig í matvinnslugreinum, enda eru tækifærin þar svo að segja óþrjótandi.

Mest um vert er að auka fjölbreytnina. Einsleitni í atvinnulífi er varasöm hverju samfélagi og ávísun á veika innviði. Fjölbreytt atvinnulíf er sveiflujöfnun. Einhæft atvinnulíf er sveiflukennt, veikt og brothætt.

Því er ekki að neita að ég hefði viljað sjá nýtt ráðuneyti atvinnumála í höndum Samfylkingarinnar. Ég hef enda verið gagnrýnin á þá afturhaldssemi sem einkennt hefur atvinnustefnu vina minna í vinstri grænum. Þar eru atvinnumálin á stundum svo léttvæg fundin, að ekki er einu sinni ástæða til að svara erindum um atvinnukosti. Þar er eins og menn óttist útsýni til allra átta; horfi á allt sem að utan kemur í heimóttarlegri forundran. Íslendingar þurfa síst af öllu að loka að sér um þessar mundir; þeir verða að vera opnir fyrir nýjum leiðum í atvinnuuppbyggingu - og horfa fordómalaust á erlenda fjárfestingu í þeim efnum. Saga íslenskra viðskiptamanna á síðustu árum er ekki það björguleg að þeir eigi einir skilið að reka hér fyrirtæki og félög.

Við þurfum framhald, ekki afturhald.

Opið land, ekki lokað.

Framtíðarsýn, ekki fortíðarþrá.

Þessvegna er brýnt að halda vinstri grænum við efnið á nýju ári. Það verður gert af minni hálfu. Það kemur ekki til greina að sitja með hendur í skauti á hlaupárinu sem á hæglega að geta orðið tímamótaár í atvinnusögu landsmanna; með framtíðarlausn á arðbærum sjávarútvegi, rammalöggjöf um verndun og nýtingu og markvissri uppbyggingu í ferðaþjónustu.

Ár nöldurs er að baki. Við skulum tala kjark í nýtt ár …

-SER.

No Comments

Menn og konur ársins

Ég kaupi mína flugelda í ár hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.

Þar verður engin breyting á frá fyrri árum og áratugum.

Ég kaupi af þeim sem ég þarf mest á að halda ef eitthvað kemur fyrir. Ég kaupi af þeim sem ég get treyst á í hvaða veðrum sem eru, hvar sem er á landinu; séræfðum sjálfboðaliðum sem leggja á sig ómælt erfiði og vinnu, oft og tíðum við stórhættulegar aðstæður.

Þetta eru mínar hetjur - og í mínum huga menn og konur ársins, ár eftir ár.

Um 90 prósent allra tekna björgunarsveita landsins koma af sölu flugelda. Dagarnir fram undan skipta sveitirnar því öllu máli, en ekki aðeins þær, heldur landsmenn alla.

Íslendingar treysta á björgunarsveitir sínar. Björgunarsveitirnar treysta á landsmenn sína.

Nú er að svara kallinu …

-SER.

No Comments

Hinn mikli arfur

Það er erfitt verk að velja bestu bækur ársins. Og giska billegt að gagnrýna val á tilnefningum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, ár hvert.

Verð þessvegna að segja: Í ár hefur verið litið framhjá stórvirki Jónasar Kristjánssonar, 1001 þjóðleið, sem ber af í bókaflóði aðventunnar.

Orðið þrekvirki er á stundum notað giska léttvægt yfir bókmenntir líðandi stundar, en verk Jónasar er jafnvirði meira orðs; það er stórsigur.

Hér fléttast land og saga saman af afburða snilld eins kunnáttusamasta manns á hvorutveggja. Arfur sögunnar geislar af hverri síðu, svo jafnvel slær ofbirtu í augu lesanda. Þetta eru stór orð, vissulega, en bókin er fágætlega stór í allri merkingu.

Að mínu viti; bók ársins …

-SER.

No Comments

Unicef

Dásamlegt var að fylgjast með útsendingu söfnunarþáttar Unicef á Stöð 2 í gærkvöld. Dásamlegt, að því leyti hvað samheldnin skein út úr hverjum þátttakanda og gesti - en eins fyrir þær sakir að þátturinn var vönduð blanda af skemmtun og fróðleik; á stundum gnístandi fróðleik.

Ég dansaði, ásamt sex öðrum þingmönnum, en það var ekki aðalatriðið …

Miklu fremur hitt að þjóðin tók við sér - og safnaði 170 milljónum króna á einni kvöldstund og hundruðum heimsforeldra.

Ég er orðinn einn af þeim; það á enda að vera jafn sjálfsagt að vera heimsforeldri og heimaforeldri. Þannig þakkar maður fyrir aðstæður sinna eigin barna …

Og ekkert er einmitt meira atriði …

-SER.

No Comments

Með okkar augum

Sérstök ánægja er til að fagna velgengni sjónvarpsþáttanna Með okkar augum sem sýndir voru í Ríkissjónvarpinu í sumarbyrjun þessa árs.

Þetta voru þættir sem brutu í blað.

Í fyrsta skipti stjórnaði þroskahamlað fólk sínum eigin þætti, beggja vegna vélarinnar. Og gerði það með stæl.

Og viðurkenningarnar eru til marks um viðtökurnar; Múrbrjóturinn í hendi, samfélagsverðlaun Landssamtakanna Þroskahjálpar - og síðar sama dag, um nýliðna helgi, fékk hópurinn Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands. Tvenn verðlaun á sama degi!

Það var ekki laust við að maður kæmist við á báðum þessum stöðum þegar verðlaunin voru veitt. Enda einlægnin söm við sig - og hún réð vitaskuld ríkjum í bæði skiptin.

Einmitt einlægnin.

Hana skortir svo mjög - að maður verður eiginlega klökkur þegar hún fær að njóta sín í öllu argaþrasi daganna þar sem heilbrigt fólk er í fylkingarbrjósti kvartsárra þegna þjóðfélagsins …

-SER.

No Comments

Stjarfur óttinn

Skrif Guðna Ágústssonar um stöðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í málgagni sjálfstæðismanna í dag eru ekki vegna umhyggju fyrir Jóni Bjarnasyni, heldur sakir ótta við ESB.

Stjörfum ótta …

Jón er orðinn að helgimynd heimóttar- og einangrunarhyggju á Íslandi.

Og tilbiðjendur safnast til feðra sinna á Morgunblaðinu …

-SER.

No Comments

Ákvörðun án viðtals

Aðdragandi ákvörðunar innanríkisráðherra um að neita Huang Nubo um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum er fordæmalaus. Hann hitti aldrei Nubo; frábað sér að sitja fund með honum eða nokkrum umbjóðanda hans, en segist samt byggja ákvörðun sína á málefnalegum forsendum!

Án samtals, samráðs …

Vikum saman lá erindi frá Nubo inni á skrifstofu ráðherra, ósvarað. Vikum saman reyndu forsvarsmenn fjárfestingarinnar að ná tali af ráðherra, án árangurs.

Þetta er staðfest.

Lögfræðimat ráðherra er þröngt. Hann skýlir sér á bak við landstærð sem á sér ekki lagastoð. Hann skýlir sér á bak við hlutafélag sem á sér ekki lagastoð.

Hvernig væri að fá óháð mat á lögfræðinni a tarna, rétt eins og á öðrum umdeildum framkvæmdum?

Miklu skiptir er að skoða sjálfa viðskiptahugmyndina - og hafna henni ekki fyrirfram. Það gerði ráðherra með yfirlýsingum sínum á fyrri stigum málsins - og gerði sig líklega vanhæfan í málinu fyrir vikið.

Mestu skipta lög og reglur - og hefðir; 25 fordæmi eru fyrir landakaupum af þessu tagi. 25 prósent landsins eru í eigu ríkisins, 72 prósent til sölu - og ríkið hefði, vegna óskiptrar eignar, alltaf haft úrslitavald þótt það hefði verið selt til útlendings.

Hitt hefði líka komið til greina að ríkið keypti landið fyrir 800 milljónir og leigði það til 99 ára, ef það á annað borð hefði verið sáluhjálparatriði.

400 beinhörð störf eru í húfi, auk á annað hundrað afleiddra starfa. Einkum umhverfisvæn kvennastörf á svæði sem hefur þolað uppsagnir kvenna í heilbrigðisgeira, á svæði sem hefur tapað 13 prósentum íbúa á meðan landsmönnum gefur fjölgað um sömu prósentutölu. Einhæfni atvinnulífs hefu ráðið þar mestu - og nú, þegar hyllti undir fjölbreytnina - og eitthvað annað en til dæmis álver, var svarið nei, án viðtals.

Lykilatriði í framsækni ferðaþjónustu er að dreifa álagi ferðamanna betur yfir árið og betur yfir landið. Heilsársferðaþjónusta á Grímsstöðum er klæðskerasniðin að sóknaráætlun stjórnvalda sem nefnd er 20/20.

En það var ekki talað við manninn. Ekki um eina einustu leið, ekki skoðað, ekki hlustað, ekki metið … nema innan úr þröngu ráðuneyti.

Hér skilur á milli Vinstri grænna og Samfylkingarinnar.

Gott og vel.

Verkefni næstu daga er að ráðherrar Samfylkingarinnar setji sig í samband við Huang Nubo og ráði málum fram. Það hefur alltaf verið siður Íslendinga að tala við útlenda gesti - en segja ekki nei við þá óséða. Það er Samfylkingarinnar að taka frumkvæði í málinu.

Ella skilur á milli …

-SER.

No Comments