Eftirmál dómsins


Gengisdómur Hæstaréttar, sem ber að virða, má ekki verða til þess að skipta þjóðinni í tvennt; í hólpna lántakendur gengislána – og afskipta lántakendur verðtryggðra lána.

Hin grafísku skilaboð dómsins eru þessi: Það sér ekki högg á vatni þótt bankar leiðrétti gengislánin (samanber mat Fjármálaeftirlitsins) en hvers eiga þá lántakendur hefðbundinna verðtryggðra lána að gjalda? Er forsendubrestur þeirra ekki álíka mikill og annarra lántakenda?

Eiga þeir sem helst fóru varfærnislega í lántökur að líða fyrir eigið aðhald, á meðan öðrum er bættur skaðinn?

Hér eru svörin augljós.

Því þarf að koma til móts við fórnarlömb verðtryggingarinnar, rétt eins og aðra sem fengið hafa skellinn.

Auðveldast, sanngjarnast og fljótvirkast er að gera það í gegnum skattkerfið (sem er enda í eðli sínu jöfnunartæki).

Og hefjast handa fljótt …

-SER.

Comments are closed.