Það er mikið land undir fæti þingsmanns, þessa dagana. Akureyri, Húsavík, Egilsstaðir, Djúpivogur, Fjarðabyggð og Seyðisfjörður.
Kjördæmadagar eru mínar ær og kýr í pólitísku starfi. Fyrirtækja- og stofnanaheimsóknir, ásamt fundahaldi í misjafnlega stórum bæjarfélögum, sem hafa öll sína sögu að segja.
Þessar sögur eru nefnilega aðalatriði.
Til dæmis innlegg heimamanna á 60 manna þróttmiklum fundi okkar Oddnýjar G. Harðardóttur og Kristjáns L. Möllers á Húsavík í gærkvöld; en þar var rætt um samhengi ferðaþjónustu og samgangna. Og þeirri spurningu velt upp hvort landsmönnum hafi orðið ágengt í styttingu þjóðleiða frá þjóðveldisöld – þá er menn riðu um héruð, stystu leið milli landshorna.
Ég verð á Djúpavogi í kvöld, Möller á Seyðisfirði og Jónína Rós, ásamt Skúla Helga á Héraði … ef það verður flogið að sunnan.
Og nú er að klára verkin …
-SER.