Archive for Janar, 2012
2012
Posted by ser in Uncategorized on Janar 2nd, 2012
Árið 2012 verður að vera kröftugt uppbyggingarár. Að baki er erfiður en illnauðsynlegur samdráttartími, þar sem tekið var til í ríkisbúskapnum - og sá árangur verður að skila sér í almennilegri viðspyrnu.
Við eigum að stefna að fjölbreyttri atvinnuppbyggingu hringinn í kringum landið. Við eigum að veðja á hreinu orku, öfluga ferðaþjónustu og kröftugan sjávarútveg sem lítur almennum og sanngjörnum reglum. Við þurfum að efla nýsköpun, ekki síst í tæknigeiranum, en einnig í matvinnslugreinum, enda eru tækifærin þar svo að segja óþrjótandi.
Mest um vert er að auka fjölbreytnina. Einsleitni í atvinnulífi er varasöm hverju samfélagi og ávísun á veika innviði. Fjölbreytt atvinnulíf er sveiflujöfnun. Einhæft atvinnulíf er sveiflukennt, veikt og brothætt.
Því er ekki að neita að ég hefði viljað sjá nýtt ráðuneyti atvinnumála í höndum Samfylkingarinnar. Ég hef enda verið gagnrýnin á þá afturhaldssemi sem einkennt hefur atvinnustefnu vina minna í vinstri grænum. Þar eru atvinnumálin á stundum svo léttvæg fundin, að ekki er einu sinni ástæða til að svara erindum um atvinnukosti. Þar er eins og menn óttist útsýni til allra átta; horfi á allt sem að utan kemur í heimóttarlegri forundran. Íslendingar þurfa síst af öllu að loka að sér um þessar mundir; þeir verða að vera opnir fyrir nýjum leiðum í atvinnuuppbyggingu - og horfa fordómalaust á erlenda fjárfestingu í þeim efnum. Saga íslenskra viðskiptamanna á síðustu árum er ekki það björguleg að þeir eigi einir skilið að reka hér fyrirtæki og félög.
Við þurfum framhald, ekki afturhald.
Opið land, ekki lokað.
Framtíðarsýn, ekki fortíðarþrá.
Þessvegna er brýnt að halda vinstri grænum við efnið á nýju ári. Það verður gert af minni hálfu. Það kemur ekki til greina að sitja með hendur í skauti á hlaupárinu sem á hæglega að geta orðið tímamótaár í atvinnusögu landsmanna; með framtíðarlausn á arðbærum sjávarútvegi, rammalöggjöf um verndun og nýtingu og markvissri uppbyggingu í ferðaþjónustu.
Ár nöldurs er að baki. Við skulum tala kjark í nýtt ár …
-SER.