Ég kaupi mína flugelda í ár hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.
Þar verður engin breyting á frá fyrri árum og áratugum.
Ég kaupi af þeim sem ég þarf mest á að halda ef eitthvað kemur fyrir. Ég kaupi af þeim sem ég get treyst á í hvaða veðrum sem eru, hvar sem er á landinu; séræfðum sjálfboðaliðum sem leggja á sig ómælt erfiði og vinnu, oft og tíðum við stórhættulegar aðstæður.
Þetta eru mínar hetjur - og í mínum huga menn og konur ársins, ár eftir ár.
Um 90 prósent allra tekna björgunarsveita landsins koma af sölu flugelda. Dagarnir fram undan skipta sveitirnar því öllu máli, en ekki aðeins þær, heldur landsmenn alla.
Íslendingar treysta á björgunarsveitir sínar. Björgunarsveitirnar treysta á landsmenn sína.
Nú er að svara kallinu …
-SER.