Með okkar augum


Sérstök ánægja er til að fagna velgengni sjónvarpsþáttanna Með okkar augum sem sýndir voru í Ríkissjónvarpinu í sumarbyrjun þessa árs.

Þetta voru þættir sem brutu í blað.

Í fyrsta skipti stjórnaði þroskahamlað fólk sínum eigin þætti, beggja vegna vélarinnar. Og gerði það með stæl.

Og viðurkenningarnar eru til marks um viðtökurnar; Múrbrjóturinn í hendi, samfélagsverðlaun Landssamtakanna Þroskahjálpar - og síðar sama dag, um nýliðna helgi, fékk hópurinn Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands. Tvenn verðlaun á sama degi!

Það var ekki laust við að maður kæmist við á báðum þessum stöðum þegar verðlaunin voru veitt. Enda einlægnin söm við sig - og hún réð vitaskuld ríkjum í bæði skiptin.

Einmitt einlægnin.

Hana skortir svo mjög - að maður verður eiginlega klökkur þegar hún fær að njóta sín í öllu argaþrasi daganna þar sem heilbrigt fólk er í fylkingarbrjósti kvartsárra þegna þjóðfélagsins …

-SER.