Ákvörðun án viðtals


Aðdragandi ákvörðunar innanríkisráðherra um að neita Huang Nubo um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum er fordæmalaus. Hann hitti aldrei Nubo; frábað sér að sitja fund með honum eða nokkrum umbjóðanda hans, en segist samt byggja ákvörðun sína á málefnalegum forsendum!

Án samtals, samráðs …

Vikum saman lá erindi frá Nubo inni á skrifstofu ráðherra, ósvarað. Vikum saman reyndu forsvarsmenn fjárfestingarinnar að ná tali af ráðherra, án árangurs.

Þetta er staðfest.

Lögfræðimat ráðherra er þröngt. Hann skýlir sér á bak við landstærð sem á sér ekki lagastoð. Hann skýlir sér á bak við hlutafélag sem á sér ekki lagastoð.

Hvernig væri að fá óháð mat á lögfræðinni a tarna, rétt eins og á öðrum umdeildum framkvæmdum?

Miklu skiptir er að skoða sjálfa viðskiptahugmyndina - og hafna henni ekki fyrirfram. Það gerði ráðherra með yfirlýsingum sínum á fyrri stigum málsins - og gerði sig líklega vanhæfan í málinu fyrir vikið.

Mestu skipta lög og reglur - og hefðir; 25 fordæmi eru fyrir landakaupum af þessu tagi. 25 prósent landsins eru í eigu ríkisins, 72 prósent til sölu - og ríkið hefði, vegna óskiptrar eignar, alltaf haft úrslitavald þótt það hefði verið selt til útlendings.

Hitt hefði líka komið til greina að ríkið keypti landið fyrir 800 milljónir og leigði það til 99 ára, ef það á annað borð hefði verið sáluhjálparatriði.

400 beinhörð störf eru í húfi, auk á annað hundrað afleiddra starfa. Einkum umhverfisvæn kvennastörf á svæði sem hefur þolað uppsagnir kvenna í heilbrigðisgeira, á svæði sem hefur tapað 13 prósentum íbúa á meðan landsmönnum gefur fjölgað um sömu prósentutölu. Einhæfni atvinnulífs hefu ráðið þar mestu - og nú, þegar hyllti undir fjölbreytnina - og eitthvað annað en til dæmis álver, var svarið nei, án viðtals.

Lykilatriði í framsækni ferðaþjónustu er að dreifa álagi ferðamanna betur yfir árið og betur yfir landið. Heilsársferðaþjónusta á Grímsstöðum er klæðskerasniðin að sóknaráætlun stjórnvalda sem nefnd er 20/20.

En það var ekki talað við manninn. Ekki um eina einustu leið, ekki skoðað, ekki hlustað, ekki metið … nema innan úr þröngu ráðuneyti.

Hér skilur á milli Vinstri grænna og Samfylkingarinnar.

Gott og vel.

Verkefni næstu daga er að ráðherrar Samfylkingarinnar setji sig í samband við Huang Nubo og ráði málum fram. Það hefur alltaf verið siður Íslendinga að tala við útlenda gesti - en segja ekki nei við þá óséða. Það er Samfylkingarinnar að taka frumkvæði í málinu.

Ella skilur á milli …

-SER.