Íslensk stjórnvöld eiga ekki að skattleggja stóriðju úr landi. Þau eiga að sjá til þess að hún greiði eðlileg gjöld og skyldur til samfélagsins, á pari við önnur fyrirtæki, en ekki umfram það.
Lykilatriði atvinnuuppbyggingar er fjölbreytni … sem víðast um landið. Mesta ógn samfélags, hvar sem er, er einhæfni atvinnulífs.
Margvíslegur iðnaður er ein meginstoða íslensks atvinnulífs, ásamt sjávarútvegi, matvælavinnslu, ferðaþjónustu, verslun … og, að mínu viti, menningu hvers konar. Og ónefnd er svo þjónusta ríkis og bæja sem vegur þungt - og á að vega þungt.
Einhæfni í iðnaði er jafn hættuleg og einhæfni í atvinnulífi almennt. Íslendingar þurfa að auka fjölbreytnina í þessum geira atvinnulífs. Þess vegna skattleggjum við ekki nýja kosti hans úr landi.
Valið er þetta; að skattleggja eðlilega - og fá tekjur, eða skattleggja óeðlilega - og fá engar tekjur …
-SER.