Röddin


Röddin er þögnuð. Og þvílík rödd … mögnuð og mennsk.

Útvarpsmaðurinn Jónas Jónasson er fallinn frá eftir erfið veikindi - og hér er þakkað fyrir samferðina.

Ég átti því láni að fagna að vera gestur hans í Kvöldgestum fyrir allnokkrum árum - og reyndar kona mín einnig nokkru síðar - og næmnin var söm við sig; nostrað við undirbúninginn og vandað til verka.

Jónas var gamli skólinn í útvarpi; þessi eini sanni sem þarf alltaf að fylgja öllum nýjum skólum, því að öðrum kosti eru þeir ekki skólar …

-SER.