Það var sérstakt að sitja í utanríkissmálanefnd í morgun og taka út þingsályktunartillögu um stuðning Íslands við sjálfstæði Palestínu.
Sérstakt og einstakt.
Meðal þingmanna, sem stóðu að gerningnum, var Amal Tamimi, sem sat sem varamaður í nefndinni fyrir félaga Helga Hjörvar.
Amal er fædd í Palestínu. Og uppalin. Og tekur nú þátt í stuðningi Íslendinga við sína gömlu heimaþjóð …
-SER.