Archive for Ágúst, 2011
Í neðra
Posted by ser in Uncategorized on Ágúst 25th, 2011
Morgunblaðið hefur breyst. Það er ekki lengur fréttablað, nema að litlu leyti, en miklu nær gamaldags áróðursriti fyrir þrönga hagsmuni.
Þeir um það, sem þar véla …
Stundum má hlæja að þessu, svo sem eins og fyrr í vikunni þegar blaðið fjallaði um rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Á forsíðunni var fyrirsögnin í þá veru að Bitra og Norðlingaalda yrðu, samkvæmt rammanum, færð niður í verndarflokk.
Já, það er gott að hafa þetta á hreinu; sumsé hvað snýr upp og hvað niður.
Mogginn veit það náttúrlega, gildishlaðinn og gassalegur …
-SER.
Þrengsli
Posted by ser in Uncategorized on Ágúst 23rd, 2011
Úrsögn Guðmundar Steingrímssonar úr Framsóknarflokknum er eðlileg.
Þar fór víðsýnn maður úr þröngum flokki …
-SER.
Einum færra
Posted by ser in Uncategorized on Ágúst 22nd, 2011
Líklega verður einum harðstjóranum færra í dag. Það er gleðiefni. Þessum körlum hefur fækkað í ár, einkum í norðanverðri Afríku.
Lýðræðisbylgjan sem rís í löndum múslima er athyglisverð. Hún sækir krafta sína í æ þéttara upplýsinganet sem bindur hnúta sína um allar álfur, óháð landamærum, menningu og stjórnarfari.
Upplýsing mylur einræði. Frjáls fjölmiðlun hrekur harðstjórn. Og fólkið fær vonandi að ráða ráðum sínum í kjölfarið …
-SER.
Mikilvægast …
Posted by ser in Uncategorized on Ágúst 18th, 2011
Mikilvægast við fjárlagagerð næsta árs er að halda aftur af skattahækkunum á venjulegt fólk og venjuleg fyrirtæki.
Hagvextinum er haldið uppi af einkaneyslu, jafn traustvekjandi og það nú er, en þar af leiðandi ber ekki að höggva í vanalegan knérunn fjölskyldufólks ög meðalstórra fyrirtækja sem eru þjóðarbúinu mikilvægust nú um stundir.
Ég hef talað fyrir auknum hagvexti á forsendum atvinnuppbyggingar. Vitaskuld eru fyrirtæki vör um sig; oflánastefna veislutímans hefur skaðað þau um of … og fyrir vikið fara þau sér hægt í uppbyggingu og frekari fjárfestingum. Það er ekki ríkisstjórninni að kenna, heldur aðstæðum … klikkaðri hagstjórn hægri stefnunnar, sem kunni sér ekkert hóf í þensluhvetjandi skattalækkunartilburðum á meðan keyrt var fram úr fjárlögum á ofsahraða, ár eftir ár …
Breikkun skattstofna er vissulega möguleg, en ekki sjálfgefin af ofangefnum forsendum. Ytri og innri aðstæður eru einfaldlega óvissu hlaðnar.
Ég tel að skera megi meira niður í ríkisbúskap. Þar hefur verið varlega farið. Mjög varlega. Störf hafa verið varin í hvívetna. Um 400 ríkistörf hafa tapast, aðallega í heilbrigðiskerfi, á meðan vel yfir 20 þúsund störf hafa tapast á almennum vinnumarkaði!
Þetta er þokkaleg skekkja.
Samdráttur í opinberri þjónustu, vegna hrunsins, kallar á fækkun starfa á þeim vettvangi. Það segir sig sjálft. 400 manna fækkun á ríkisvettvangi er dropi í hafið þegar hugsað er til þess að opinberu starfsfólki fjölgaði um 37 prósent á fyrsta áratugi aldarinnar.
Efnahagshrunið hefur ekki þýtt hrun á opinberum vinnumarkaði. Eiginlega þvert á móti.
Það er umhugsunarvert.
Þessvegna hækkum við ekki skatta á venjulegt fólk og venjuleg fyrirtæki. Við erum nefnilega enn að þjónusta á opinberum vettvangi umfram nauðsyn og umfram getu.
Við getum klárlega ennþá sparað hjá ríkinu. Sú leið á að vera jafn sjálfsögð og skattaleiðin …
-SER.
Völlurinn ljóti
Posted by ser in Uncategorized on Ágúst 17th, 2011
Sumarið í lífi mínu hefur svolítið farið í það að horfa út um gluggann við norðanverðan Austurvöll; sumsé ofan af annarri hæð nefndasviðs Alþingis. Langir fundir leiða mann að ljóranum, enda freistandi að virða fyrir sér mannlífið í miðju borgarinnar.
En þetta er þankinn; óskaplega er Austurvöllurinn ljótur. Eiginlega arfaljótur. Ekki einasta eru hellulagnirnar í kringum hann að mestu leyti úr skorðum - og fyrir vikið stórhættulegar - heldur eru nýlagðar torfurnar á miðju hans ýmist dauðar, í andarslitrunum eða ofþornaðar.
Og svo er afmælisbarnið á stallinum, eirsperrtur Jón Sigurðsson, allur í skít eins og vanalega.
Þetta er umhugsunarvert.
Mannlífið við völlinn hefur vart verið fegurra, en völlurinn sjálfur sjaldan ljótari …
-SER.
Með okkar augum
Posted by ser in Uncategorized on Ágúst 15th, 2011
Sjónvarpsþættirnir Með okkar augum , sem sýndir hafa verið í Ríkissjónvarpinu í sumar, hafa vakið verðskuldaða athygli - og í reynd slegið í gegn. Síðasti þátturinn er á dagskrá í kvöld, en framhald verður væntanlega á þáttagerðinni, ef marka má viðbrögðin.
Fölskvalaus áhugi þáttastjórnenda, jafnt á samfélagi sínu og samtíðarfólki, skín af hverjum þætti - og nálgunin er oft og tíðum óviðjafnanlega einlæg. Satt að segja man ég ekki eftir manneskjulegri þáttum í sjónvarpi allra landsmanna.
Hér er brotið í blað. Með okkar augum eru fyrstu þættir sinnar tegundar á Íslandi þar sem fólk með þroskahamlanir starfar báðum megin linsunnar. Með aðstoð fagfólks tekst því að búa til afbragðsgóða þætti sem eru fyllilega á pari við það besta sem gerist í faginu hér á landi.
Aðalatriðið er þó innsýnin. Þættirnir opna heim. Þeir breikka samfélagið og hrinda burt hindrunum. Ísland er ekki eintóna mannheimur, heldur margþættur og litríkur. Og allur eiga erindi. Allir hafa erindi …
Svona þættir stækka samfélagið …
-SER.