Archive for Júlí, 2011

Mývatn

Líklega er ekki til fegurri blettur á Íslandi en Mývatnssveit. Og hér vil ég grípa í hástigið; margbrotnara náttúruundur er ekki til á landinu.

Og hana nú …

Man rauða Cortínu. Árgerð ´64. Stefnan var gjarnan austur; alla hlykkina yfir Vaðlaheiði. Við systkinin hentumst til á bekknum bakatil, enda gula gerviklæðningin hál - og öryggisbelti síðari tíma uppfinning.

Mamma reykti frammí … það var bara þannig. Og pabbi með aðra höndina samvaxna stýri og hina útum gluggann af því stöngin uppi á þaki þurfti hald. Aftan úr bílnum lagði þykkan strók og misfellur malarslóðans slóu taktinn eins og raggí sunnan úr sjó.

Það sætti ekki tíðindum að gubba. Það var partur af prógramminu. Og til þess voru brúnu kaupfélagspokarnir í sætisvasanum sem fylltust hver af öðrum eftir því sem leið á ferðina. Dásamleg lykt - í bland við ryk og reyk.

En vel að merkja, Mest um verð voru stoppin. Fullt skott af baukum með bruðerí og kruðerí. Og það var sko smurt. Malakoff og spægils. Oftast heitur drukkur á brúsa, kókó eða kaffi, en alltaf berjadjús á gamalli tómatssósuflösku. Svo var dúkur breiddur yfir lyng og liðið raðaði í sig kostinum á meðan Cortínan kastaði af sér mæðinni.

Á leiðarenda var spurt að þrennu; hvurnig voru vegirnir, hvursu víða var áð og hvursu oft hafi púnkterað. Þannig voru samtölin, en til vara var veðrið … eins og venjulega.

Svo byrjaði blóminn …

Það var alltaf farið í Dimmuborgir og jafn oft í Gjánna. Oftast yfir í skarð og yfileitt í nesin. Stundum hringinn í kringum Hverfell - og gjarna á einhverju bátskrifli út á vatnið svo öll vit fylltust af mýi. Og svo alltaf aftur í Dimmuborgir á bakaleiðinni, svona til öryggis.

Þetta var dásamlegt uppeldi. Maður ólst upp á loki konfektkassa; eins og partur úr máluðu landslagi; innum tvívíða liti en þrívíðri minningu.

Og því er á þetta minnst að mér finnst tímabært að friða svo sem eins og helftina af þessu fegursta sviði landsins. Loksins eru Dimmuborgir og Hverfell í þeirri þægu höfn, en þörf er á fleiri svæðum umhverfis vatnið í flokk verndar og friðar.

Takk samt strax fyrir Borgirnar og Fellið …

Ég segi; konfektkassi æsku minnar er Mývatn og mér finnst að æska framtíðarinnar megi ekki við minni molum …

-SER.

No Comments