Archive for March, 2011
Lækkum vsk af olíunni
Posted by ser in Uncategorized on March 1, 2011
Ég tel eðlilegt að ríkissjóður komi til móts við fólk og fyrirtæki á tímum síhækkandi olíu- og bensínverðs. Skattkerfið er manna verk og á að taka tillit til aðstæðna.
Það er ekki sjálfgefið að hlutfall virðisaukaskatts af þessum nauðsynjavörum sé allaf jafn hátt – og ríkið beinlínis græði þeim mun meira sem olíuverð hækkar.
Nú er lag að taka prósentuna niður, tímabundið … á meðan við förum í gegnum erfiðasta skaflinn. Það þýddi minni olíusparnað almennings, jafnvel meiri bensínkaup – og það gæti hæglega vegið upp skaða ríkissjóðs …
Hér með er heitið á landsbyggðarþingmanninn Steingrím J. Sigfússon í þessu efni. Hækkun olíu- og bensínverðs er jú baggi á þeim sem þrufa lengst að sækja þjónustuna …