Archive for February, 2011
Á kajanum
Posted by ser in Uncategorized on February 8, 2011
Það er svalt að sitja uppundir súð í fiskverkun og tala um hinstu rök fiskveiðistjórnunarkerfisins. Heyra reynslusögu manna sem hafa keypt sér kvóta fyrir ósköp fjár og freista þess að gera bæjarfélaginu sínu gagn. Það er nefnilega sitthvað að vera kaupandi eða seljandi í aflamarkskerfinu … og þegar við breytum hljótum við að hampa þeim fyrrnefndu.
Sumsé; þetta eru saltir dagar í þingmennskunni … þaulskipulagðir kjördæmadagar – og faraldsfóturinn er alla jafna á einhverjum kaja þar sem hægt er að læra sögur af sjó og landi, veiði og verkun.
Og ég hef hugsað all rækilega um það í dag hvernig við förum með skuldir þeirra sem keyptu kvótann, en munu leigja hann með nýju kerfi … já, ungra manna sem hafa á síðustu árum reynt að olnboga sig inn í kerfið á geggjuðum gengislánum – og munu, tja leigja skuldirnar sínar …
Ég er sannfærður um meginleið sáttanefndarinnar í sjávarútvegsmálum, en útfærslan angrar mig ennþá …
-SER.
Kjördæmadagar
Posted by ser in Uncategorized on February 6, 2011
Helstu forréttindi þingmennskunnar felast í kjördæmadögum, sem hefjast á morgun og standa út vikuna. Mér líður aldrei betur í þessu starfi en einmitt úti á meðal fólksins; inni í verksmiðjum, stofnunum, fiskverkahúsum og götum úti.
Það er einhver endurhleðsla fólgin í kjördæmadögum, sem að mínu mati ættu að vera fleiri en sem nemur tveimur eða þremur vikum á hverju ári. Aldrei fá þingmenn pólitíkana jafn ríkulega í æð og heima í héraði – og þaðan koma jafnan bestu og viturlegustu heilræðin.
Við norðanmenn byrjum á Akureyri á morgun – og fundum drjúgan hluta dags með Eyþingi, landshlutasamtökum Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslna. Stefna okkar þingmanna Samfylkingarinnar er svo að heimsækja eins mörg fyrirtæki og við komumst yfir, ekki síst sjávarútvegsfyrirtækin, enda þarf að klára samtal stjórnmála og fiskveiða eins fljótt og kostur er. Úrlausnarefnið er að finna leigukerfi sem er raunhæft í tíma og peningum; þjóðin eigi auðlindina, en þeir leigi sem veiði … og vel að merkja; þeir veiði sem leigi …
-SER.
Davíðssálmur 13:3
Posted by ser in Uncategorized on February 4, 2011
Eins og alkunna er hefur Bjarni Benediktsson styrkt stöðu sína sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Afdráttarlaus afstaða hans til nýja Icesave-samningsins sýnir sjálfstæði hans og pólitískt þor, svo og kalt hagsmunamat fyrir þjóðina, þvert á hlýju lýðskrumsins.
Nú skilja leiðir, sýnist mér.
Davíðsarmurinn í þingflokknum er að verða undir þyngra hlassi en hann ræður eiginlega við. Líklega munu þrír úr þeim armi enda á rauða takkanum í endanlegu Icesave. Það er mikið tap; 13:3 … pínlega nálægt öðru háðulegasta tapi Íslandssögunnar; 14:2.
Nema tap Davíðsarmsins verði einmitt 14:2. Við bíðum og sjáum til.
Kjördæmavikan sem blasir við handan helgar, verður löng pólitísk vika. Og þar er eitt víst; lítilsvirðingavélin úr Hádegismóa er rétt að fara í gang. Þar er engu að tapa hvort eð er …
-SER.
DV og ég …
Posted by ser in Uncategorized on February 4, 2011
Seint mun ég kvarta yfir því að DV sýni mér ekki áhuga. Endurtekinn áhugi blaðsins á því sem ég geri og geri ekki, gæti hafa gert, en þó varla … er nú orðinn bókstaflegur; tveggja síðna nærmyndin af mér, sem birtist fyrir ári, er aftur komin á síður blaðsins, með nokkrum viðbótum!
Þó ég segi nú sjálfur frá, þá get ég ekki verið svona áhugaverður!
Nema hvað; rangfærslurnar eru eðlilega nokkrar – og tvær sýnu rætnastar. Ég á sumsé að hafa tilkynnt vinum mínum á fréttastofu Stöðvar 2 að ég sjálfur !!! hafi ráðið eftirmann minn á stól fréttastjóra … “til að halda andlitinu.”
Ja, ekki skortir DV ímyndaraflið. Tugir fyrrverandi og núverandi fréttamanna Stöðvarinnar geta auðvitað vitnað um hið gagnstæða: Ari Edwald á þá ráðningu skuldlausa.
Hitt hljómar samt betur, vissulega … og því notað í blaðinu.
Hin rætna vitleysan – og hér með næsta alvarleg þráhyggja DV, er að ég hafi skroppið í golf til Indlands á liðnu hausti. Nærri tíu greinar blaðsins hafa klifað á þeirri skröksögu á síðustu mánuðum – og þeirri lyginni er viðhaldið í blaðinu í dag, þó blaðið viti betur: Ég hvorki skrapp né fór í golf til Indlands (og afrek er það út af fyrir sig að koma tveimur rangindum fyrir í sömu fyrirsögninni), heldur var þar um vandlega undirbúna menningar- og söguferð um norður-Indland að ræða til að fagna fimmtugsafmæli eins besta vinar míns. Ég tók mér meira að segja launalaust leyfi frá Alþingi á meðan.
En hitt hljómar samt betur, vissulega … og því notað í blaðinu, aftur og aftur.
En svona er þetta bara …
-SER.
Formaður á hvolfi
Posted by ser in Uncategorized on February 3, 2011
Formaður Framsóknarflokksins misskilur áhættuna af nýjum Icesave-samningi í langri blaðagrein í Morgunblaðinu í gær. Þar segir hann að Landsbankinn telji heildsöluinnlán, þ.e. innstæður sveitarfélaga, stofnana ofl., ekki til forgangskrafna. Formaðurinn segir svo: „Ef Landsbankinn tapar yfirstandandi málaferlum vegna þess bætast yfir 170 milljarðar … við kröfurnar …“
Hér er málum snúið á hvolf. Reyndin er þveröfug; Landsbankinn hefur einmitt skilgreint heildsöluinnlánin sem forgangskröfur. Og einnig þetta; ef dómstólar dæma heildsöluinnlánin ekki til forgangskrafna vænkast hagur þrotabúsins um 170 milljarða. Gangi þetta eftir munu eignir gamla Landsbankans endanlega standa undir forgangskröfum og ekkert af þeim falla á ríkissjóð.
Nauðsynlegt er að hafa þetta á hreinu. Enda 340 milljarða viðsnúningur í einu Icesave-máli full til mikill …
-SER.
Orðbragð kvótastríðsins
Posted by ser in Uncategorized on February 2, 2011
Það sló í brýnu millum Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja og þingmanna Samfylkingarinnar á fundi um sjávarútvegsmál á Akureyri í gærkvöld. Hundruð fundargesta fylgdust með feikilegum reiðilestri Þorsteins sem fann stjórnvöldum allt til foráttu, eins og útgerðarmanna er siður þessa dagana – og hjólaði svo í nafngreinda menn undir lok ræðunnar svo þakið á Hofinu lyftist.
Líklega fór Mái einni glæru of langt í fúkyrðaflaumi sínum um andstæðinga kvótakerfisins; sýndi mynd af Ólínu Þorvarðardóttur við hlið ísbjarnargildru og sagði ekkert mark takandi á svona fólki sem kallaði til björgunarsveitir þegar það teldi sig hafa séð þann hvíta … !
Það var og.
En vel að merkja: Svona málflutningur er auðvitað himnasending fyrir þá sem vilja breyta fiskveiðistjórnarkerfinu …
-SER.
Hagsmunablaðið
Posted by ser in Uncategorized on February 2, 2011
Alkunna er að Morgunblaðið á fiskinn í sjónum. Og ver hann með kjafti og klóm. Hagmunablað allra útgerðarmanna fer nú fram með slíkum svívirðingum um andstæðinga bilaðs kvótakerfis að blaðinu hlýtur að finnast það vera að tapa.
Nafngreindir einstaklingar, sem andmæla kvótasukkinu, hafa ekki lengur rangt fyrir sér. Og ekki einasta eru þeir óþolandi og ömurlegir í allri nærveru. Nú eru þeir líka kjánar … og gott betur; þeir eru einfaldlega heimskir.
Svona blað er búið á því. Það veit að málefnið er tapað – og meiðir því fólk eins og heiftin og langræknin býður því …
-SER.
Brimsaltur fundur
Posted by ser in Uncategorized on February 1, 2011
Held norður í höfuðstaðinn síðdegis til að sitja fund um sjávarútvegsmál í Hofi. Til fundarins boðar Akureyrarbær, að því er virðist vegna þrýstings frá Samherjamönnum, sem hafa mikla hagsmuni af því hvernig stjórn fiskveiða er hverju sinni.
Þetta verður auðvitað brimsaltur fundur. Og þarna munu hagsmunir og hugsjónir takast á. Ég hlakka til …
-SER.
Afleidd störf álvers!
Posted by ser in Uncategorized on February 1, 2011
Iðulega er það svo að neyðin kennir naktri konu að spinna. Og nú sannast það í fangelsismálum, af öllum málaflokkum.
Snjöll er sú hugmynd að nýta yfirgefinn húsakost á bakkanum utan við kauptúnið í Reyðarfirði, sem áður hýsti smiði og aðra vinnumenn við uppsetningu Fjarðaáls, fyrir tukthús af fínustu gerð. Þessar hugmyndir ku hafa verið á borði dómsmálaráðuneytisins í eitt ár.
Áður hefur komið upp sú hugmynd að flytja vinnubúðirnar að Litla-Hrauni og skapa þannig pláss fyrir 60 fanga, en fréttamiðlar segja frá því í dag að fangelsismálastjóra lítist illa á það.
Hugmyndin um fangelsið á Reyðarfirði gerir ráð fyrir því að girt verði utan um vinnubúðirnar þar sem þær eru. Fangelsið gæti þá verið tilbúið á nokkrum vikum. Þeir sem ráða yfir húsunum eru sagðir vera tilbúnir að leigja þau ríkinu í nokkur ár. Allt er til staðar í búðunum; vel búið mötuneyti, líkams- og afþreyingarsalir osfrv.
Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð eru vitaskuld hlynnt því að fara þessa leið, ekki kannski síst vegna þess að tugir nýrra starfa gætu skapast.
Já, það er ekki að spyrja að svökölluðum afleiddum störfum álvera á Íslandi …
-SER.