Archive for September, 2010
Sjálfstæði Alþingis
Posted by ser in Uncategorized on September 23, 2010
Hefi lagt fram tillögu ásamt Pétri H. Blöndal um aukið sjálfstæði Alþingis. Umbótatillögurnar sem byggðar verða á þingmannaskýrslunni verða að vera margar. Og ein þeirra er sumsé okkar Péturs um að öll lagasetning þings verði þingsins.
Nú er meginhluti frumvarpa unninn í ráðuneytum, sem framkvæmdavaldið, svo að segja fyrir kurteisissakir, sendir þingnefndum til yfirferðar. Þessu ber að snúa við. Allt frumkvæði lagasetningar á að koma frá þinginu sjálfu.
Embættismenn hafa ekki lýðræðislegt umboð og nema, að ég tel, síður hjartslátt þjóðarinnar en þingmenn. Embættismenn eiga ekki að ráða löggjöfinni. Framkvæmdavaldið má þó hafa tillögurétt að nýjum lögum. En ekki meir.
Svo er hitt sem við Pétur erum að bralla: Við viljum sjálfstæðan fjárhag Alþingis. Nú er það svo að það þiggur allt sitt úr lófa framkvæmdavaldsins; sumsé ráðuneyti fjármála. Framkvæmdavaldið fæðir sumsé litla löggjafann.
Það þarf margar úrbætur. Við þingmenn megum ekki gleyma okkur í refsigleði við lestur skýrslnanna tveggja frá rannsóknarnefnd þings og þingmannanefndinni. Meginverkið er að bæta úr störfum þingsins. Þar er blessuð framtíðin.
Hinu breytum við varla úr þessu …
-SER.
Leti
Posted by ser in Uncategorized on September 23, 2010
Hef verið býsna latur vi’ð að blogga síðustu vikurnar … raunar allt frá því snemma í sumar. En nú ætla ég að gera bragarbót á – og fjalla helst um pólitísk hugðarefni … og reyndar ekki síður pólitíska leiðanagra mína um landið.
Hef sagt það áður og segir enn að einn merkilegasti partur þingmennskunnar er að fara um landið og hlusta á fólk; nema pælingar þess um það sem betur má fara í samfélaginu. Og veitir ekki af, núna við dagsbrún nýja lýððveldisins.
Við erum að sigla inn í merkilegan þingvetur. Hann verður býsna harður, en væntanlega málefnalegri en margir þeir fyrri. Það er nýr bragur á þingi, finnst mér. Fólk síður æst í uppnefnin og argaþrasið sem nóg er komið af.
Ég hlakka til …og ætla sumsé að blogga um þingstörfin í vetur og allt sem því fylgir, rétt eins og síðasta vetur – og svo lauma ég náttúrlega einni og einni stöku út á spassíuna til að bragðbæta pólitíska tilskrifið. Vitaskuld!
Þið fylgist vonandi með …
-SER