Auðmýktin skilar mestu


Samfylkingin lagði á sínum tíma til að rannsóknarskýrsla Alþingis á ástæðum bankahrunsins yrði unnin. Sami flokkur hefur boðað siðbót í íslenskum stjórnmálum. Mikilvægast af öllu er, að nú þegar skýrslan liggur fyrir, dragi menn lærdóm af skýrslunni. Þau stjórnmálaöfl, sem draga mestan lærdóm af henni, munu að líkindum græða mest á henni þegar til lengdar lætur.

Mikilvægt er að jafnt fyrrverandi sem núverandi stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þeir standa, taki skýrslunni af auðmýkt. Nú er tími til að endurskoða hug sinn til þeirra stjórnmálavenja sem tíðkast hafa á Íslandi um áraraðir. Tími samvinnu, fremur en sundrungar, mun skila þjóðinni hraðar upp úr rústum efnahagslífsins en sú gamla aðferð pólitískra klækjarefa að kenna hverjir öðrum um. The blaming game is over …

Iðrun og auðmýkt eru lykilorð umræðunnar sem í hönd mun fara. Það mun skila íslensku samfélagi litlum sem engum ávinningi að stjórnmálaflokkarnir bendi nú hver á annan í einhvers lags keppni um það hverjir koma best og verst frá skýrslunni. Krafa alls almennings, jafnt erfitt og hægt er að tala fyrir hönd þess beiða hóps, hlýtur að vera heiðarleiki í vinnubrögðum.

Nú þarf nýtt Alþingi að sýna að það er nýtt. Gömlu skotgrafirnar eru gamlar. Ef sjálft Alþingi dregur ekki eðlilegan og kærkominn lærdóm af skýrslunni og tekur samviskusamlega og hlutlægt á efni hennar, þá er þess ekki að vænta að þjóðin græði nokkuð á inntaki hennar.

Hér þarf nefnilega að græða - í þessu tilfelli sár …

-SER.