Norðlensku alparnir


Naut hinna norðlensku alpa með frú og yngstu börnunum um páskahelgina. Fátt skemmtilegra en þegar saman fara snjóþyngsli og léttleiki tilverunnar. Hef engu gleymt frá því ég sýndi skíðaballet á sjöunda áratugnum við einhverja hrifningu viðstaddra - en hef heldur engu bætt við mig … nema kílóum.

Hvert aðsóknarmetið er slegið í Hlíðarfjalli þessar vikurnar. Nærri sex þúsund manns á föstudeginum langa! Nálgast 100 þúsund gesti þennan veturinn. Og nú þarf að hugsa stórt: Hér er þjóðarleikvangur skíðafólks; landsins augljósasta tækifæri til að sækja fram í vetrarferðaþjónustu fyrir landsmenn alla og umheiminn. Byggja verður upp gestaaðstöðu á næstu misserum, alvöru þjónustumiðstöð af metnaði - og hví ekki að horfa til lífeyrissjóðanna í þeim efnum. Ég mun tala fyrir því …

-SER.