Það eru nefndadagar á Alþingi; langsetur við langborðin norðanmegin Austurvallar … í þeim fjárlaga-, iðnaðar- og heilbrigðisnefnd, hvar ég á sæti. Einna merkasta starf þingsins fer fram í nefndum; yfirgripsmikil upplýsingaöflun, gagnrýnin skoðanaskipti og allur undirbúningur lagasetningar.
Og mikil ósköp; öllu rólegra yfirbragð er á þingmönnum þar en inni í þingsal. Já, kumpánlegur andi …
Hef kynnst því seinni mánuðina hversu margir eru þeirrar hugsunar að þingmenn séu í fríi sjáist þeir ekki í þingsal. Minnsta starfið fer þar fram, en það er vissulega mest áberandi og æpandi.
Mikilvægasta starfið er í nefndunum, oft frá morgni til kvölds. Þar verða lögin til - og þeim hampað eða hafnað …
-SER.