Á milli funda


Mývatnsöræfin marauð - og sömuleiðis þau um Möðrudalinn … eins og að sumarlagi að aka á milli Akureyrar og Eskifjarðar og ekki sakar útsýnið eins og fyrri daginn. Var sumsé að aka á milli funda; það getur jú verið langt á milli þeirra … í vegalengdum, sem kemur ekki að sök, sakir fegurðar kjördæmisins.

Sat merkilegan fund á KEA á mánudagsmorgun; nýjar rannsóknir um ferðavenjur útlendinga hér á landi. Þar sannaðist mikilvægi þess að dreifa útlendingum um landið, enda hagar engin heilbrigð þjóð sér með þeim hætti að dæla öllum túristum í gegnum eitt og sama hliðið.

Möguleikar Akureyrarflugvallar til stóreflingar ferðaþjónustu hér á landi eru óendanlegir, ekki síst að vetri til. Stór hópur Færeyinga á leiðinni á skíði í Hlíðarfjalli, svo dæmi sé tekið - og næst er að vinna hylli danskra og breskra skíðamanna og fljúga þeim, svo að segja, beinustu leið í Fjallið. Það státa ekki mörg lönd af skíðaparadís í 10 mínútna akstursleið frá flugvelli.

Hér er verk að vinna; opinber markaðssetning á Akureyrarflugvelli er nauðsyn … ferðastaðir, hótel og bílaleigubílar suðvestanlands fullbókaðir næsta sumar og næst á dagskrá er að koma viðbót erlendra ferðamanna út um landið; byggja þar upp, auka þjónustu og gæði.

Ók með þessar hugrenningar í kollinum austur á Eskifjörð, í glannasól og fundaði þar um menningaruppbyggingu. Lífið heldur nefnilega áfram, þótt Icesave hiksti …

-SER.