Óvinurinn


Versti óvinur þjóðarinnar nú um stundir er ekki Icesave. Óvinurinn er íslenska krónan.

Heimilin í landinu blæða sakir þessa ónýta gjaldmiðils; greiða matvæli og klæði alltof háu verði, svo og eldsneyti og ferðalög til útlanda. Að ekki sé talað um lánin, sem hækja krónunnar - verðtryggingin - hleypir á skrið af minnsta tilefni.

Blessunarlega er það svo um þessar mundir að gengið styrkist hægt og bítandi. Einkum hefur það gerst eftir að gjaldeyrisbraskarar voru stöðvaðir. Gengisvísitalan hefur ekki verið lægri frá því í júlí í fyrra. Og heimilin hagnast … allur almenningur …

Já, þetta mjakast. En stökkið verður ekki tekið nema með öðrum gjaldmiðli sem per se er stærsta hagsmunamál íslenskra heimila nú um stundir, svo og skuldugra fyrirtækja í iðnaði, sjávarútvegi og til sveita …

-SER.