Sat kröftugan þjóðfund í salarkynnum Verkmenntaskólans á Akureyri um helgina þar sem horft var til næstu tíu ára með eflingu byggðasvæðanna í huga. Þarna sátu saman í hópum fulltrúar almennings til sjávar og sveita, félagsmálafulltrúar og forstjórar, embættismenn og andans fólk, bæjarfulltrúar og bæjarstjórar og nokkrir þingmenn í bland við allt þetta góða fólk.
Það stafaði lýðræðislegum krafti af þessari samkundu, ásamt bjartsýni og mikilli trú á hagsæld alls samfélagsins á milli Tröllaskaga og Vatnajökuls. Möguleikarnir eru óteljandi þegar horft er fremur á styrkleika en veikleika. Og svo er hitt: Samtal þvert á flokkslínur er mikilvægara en nokkru sinni, enda er nú um stundir miklu meiri spurn eftir samstöðu fólks en sundrungu …
-SER.