Archive for Mars, 2010
Neyð Framsóknar
Posted by ser in Uncategorized on Mars 24th, 2010
Framsóknarflokkurinn boðar þjóðarsátt um hagsæld sem er gott og vel. Og hann kann að orða hlutina, eins og fram kemur á eyjunni í dag: “…flokkurinn telur aðstæður í landinu það alvarlegar að nú neyðist menn til samstöðu.”
Já, mikil er neyð Framsóknar …
-SER.
Hið þögla svar
Posted by ser in Uncategorized on Mars 24th, 2010
Fór í pontu þings í dag og spurði varaformann Sjálfstæðisflokksins hvort íhaldið hyggðist leggja öll spil sín á borð hvað fjármál flokks, flokksfélaga og flokksmanna varðar. Nýleg upplýsingagjöf flokksins í þessum efnum, sem dregin var fram með töngum, nær sem kunnugt er aðeins hálfa leið - og varla það.
Efnislegt svar varaformannsins var tómlegt. Fyrir liggur og forysta flokksins vill ekki svara því hvort hann vill aflétta trúnaðarsambandi flokks og kostenda sinna. Það er afstaða út af fyrir sig.
Smjörklípan í enda svars varaformannsins var efnislega þessi: Samfylkingin hefur tekið við stórum styrkjum; ætlar hún að skila sínum styrkjum eins og Sjkálfstæðisflokkurinn hefur gert í margfrægum tilvikum?
Svar mitt er þetta: Sjálfstæðisflokkurinn varð að skila ofurstyrkjum sínum upp á nokkra tugi milljarða af tveimur ástæðum; þjóðinni ofbauð og flokkurinn skammaðist sín. Hvorugt á við í tilviki annarra flokka, enda voru styrkir til þeirra í öllum tilvikum langtum minni en til íhaldsins. Sá er og grundvallarmunur á Sjálfstæðisflokki og Samfylkingunni í þessum efnum að síðarnefnda aflið hefur birt allir styrki samkvæmt reglum Ríkisendurskoðunar.
Sjálfstæðisflokkurinn kýs hins vegar áfram þögnina …
-SER.
Stjórnmálaarmur LÍÚ
Posted by ser in Uncategorized on Mars 23rd, 2010
Enn sannast það að Sjálfstæðisflokkurinn er stjórnmálaarmur LÍÚ. Skötuselsmálin tínir af honum spjarirnar. Allsber kemur hann til dyranna þegar LÍÚ geltir; nakin sérhagsmunagæskan blasir við öllum sem hafa á annað borð áhuga á að horfa á þessi ósköp.
Hvert er framlag íhaldsins til sáttar í sjávarútvegsmálum?
Ekkert!
Víst vilja þessi afturhaldsöfl auka aflaheimildir. En því aðeins að það fylli vasa gjafakvótaaðalsins. Allt sem fellur utan þeirra vasa er ógn við þjóðarhagsmuni; já, stöku trillukarl, byggðakvóti. Takmarkið er að auðlindin safnist á æ færri hendur. Almannahagsmunir skipta akkúrat engu … þar á meðal nýliðun í greininni, vinnsla afla í landi, fjölgun starfa og meira líf í höfnum … já, bættur hagur byggða.
Í nafni hagræðingar til hinna fáu er öllum nýjum hugmyndum í atvinnugreininni snúið í þá veru að þar tali fávitar og andskotar greinarinnar. Allt sem skaðar sjálfskipaða eigendur auðlindarinnar skal öskrað út og nítt niður. Vanlíðanin vegna yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu kemur fram á skjálftamælum. Þvílík karlfauskafýla …
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekkert breyst. Hann er stjórnmálarmur LÍÚ. Hann er varnarbandalag auðhyggjunnar. Einkavinavæðandi klíkuher og sérhagsmunasóði. Og þess utan stækur hákarl í skötulíki …
-SER.
Aukin veiði
Posted by ser in Uncategorized on Mars 23rd, 2010
Talaði fyrir auknum veiðiheimildum á Alþingi í dag; 30 til 40 þúsunda tonna aukning er innan áhættumarka, en hana ber að nýta byggðunum í vil og til þess helst að fjölga störfum. Umfram allt störfum. Hvað er húfi? Hundruð starfa um allt land, tveggja til þriggja mánaða vinnslustopp.
Það verður að gera allt til að koma í veg fyrir það. Aukið atvinnuleysi er ekki á bætandi …
-SER.
Búllurnar burt
Posted by ser in Uncategorized on Mars 23rd, 2010
Greiddi stoltur atkvæði með banni á nektardansi á skemmtistöðum á Alþingi í dag. Allir vita að nektarbúllur eru gróðrastíur vændis, mansals og eiturlyfjasölu - fyrir nú utan að lítillækka konur eins freklega og nokkur kostur er.
Klámvæðingu ber að stöðva með öllum ráðum. Þessvegna var ánægjulegt að sjá allan þingheim sama sinnis í dag. Tveir sátu að vísu hjá; Ragnheiður Elín Árnadóttir og Árni Johnsen. Sem er merkilegt …
-SER.
Leiðari forsíðunnar
Posted by ser in Uncategorized on Mars 23rd, 2010
Þeim fjölgar jafnt og þétt leiðara-fyrirsögnunum á forsíðum Mogga. Nú síðast í morgun; Sáttmálinn rofinn.
Hvað þýðir þessi fyrirsögn. Er hún skoðun Moggans? Er hún skoðun LÍÚ? Ja, nema hvorutveggja sé?
Sæmundur heitinn Guðvinsson, sá ljúfi og lífsreyndi fréttastjóri kenndi mér í árdaga blaðamennsku minnar á Vísi gamla í Síðumúlanum að fyrirsagnir ættu ekki að vera gildishlaðnar, einni skoðun í vil. Fréttafyrirsagnir væru eitt, yfirskrift leiðara annað.
En Mogginn blessaður … þegar minningargreinunum sleppir er hann orðinn samfelldur leiðari …
-SER.
Tekið á skuldavanda
Posted by ser in Uncategorized on Mars 20th, 2010
Nýjar aðgerðir félagsmálaráðherra vegna skuldavanda heimilanna eru víðtækar og kröftugar. Þeir sem halda því fram að þær breyti í reynd engu eru í besta falli fórnarlömb eigin vanþakklætis.
Höfum eitt í huga: Staðreyndin er sú að hvergi á Vesturlöndum hefur ríkisstjórn stutt eins vel á bak við skuldara eins og gert hefur verið hér á landi. Vitaskuld má alltaf gera betur - en vel að merkja; enginn hefur gert betur, hvergi.
Ráðist hefur verið í rúmlega 40 úrræði frá október 2008, um 60 til 80 þúsund manns hafa notið úrræðanna. Áður en árið er liðið er reiknað með að hækkaðar vaxtabætur og útborganir séreignarsparnaðar vegna úrræða ríkisstjórnarinnar nemi um 40 milljörðum króna.
Nú bætast við á annan tug nýrra úrræða og aðgerða. Búast má við að 100 þúsund manns njóti úrræðanna þegar þau eru öll orðin virk og þá hafi verið settir 50 milljarðar króna í úrræði vegna skuldavanda heimilinna.
Einhverjir vilja meina að þetta sé ekki neitt! Og þeir sosum um það.
Frá mínum bæjardyrum er þetta aðalatriðið: Í fyrsta sinn hefur ráðherra haft dug í sér til að leiðrétta réttarhallann millum lánveitenda og lántakenda. Þar hefur hallað hróplega á skuldara landsins, sem hafa svo gott sem verið annars flokks þegnar í ofríki bankakerfisins. Hér hefur verið snúið af leið - og við bætast aðgerðir dómsmálaráðherra sem tryggja enn frekar stöðu lántaka í öllu ferlinu.
Enginn þjóð hefur gert betur … og auðvitað gerum við enn betur þegar fram líða stundir …
-SER.
Vaknað við Löginn
Posted by ser in Uncategorized on Mars 18th, 2010
Lögurinn er lokkandi á mildum vetrarmorgni þegar þokan hjúfrar ofan á breiðunni miklu. Mystíkin í grámanum. Og allt hljótt … utan hvað stakur vörubíll ropar dísil á bílaplaninu framan við Gistihúsið Egilsstaði. Vaknaði þar í morgun, endurnærður eftir fundahöld mánudgsins niðri á fjörðum.
Þetta er viðkunnanlegasta sveitahótel landsins … líklega það fegursta; sjarmi þess er blanda af kyrrð og vandvirkni, smekkvísi og fagmennsku. Hjónin Hulda og Gulli reka staðinn af kúnst; strákurinn að ég held kominn af Jóni sjálfum Bergssyni sem á þarsíðustu öld kvað upp úr um það að vegamót Austurlands myndu um alla daga liggja um landið sitt. Sem og varð.
Íslendingar þurfa ekki konungshallir þegar þeir eiga álíka hús og Gistihúsið Egilsstaði. En þeir mættu oftar kunna að meta sín aldargömlu hús sem mörg hver eru eins og sniðin að þjóðarsálinni … þessari gömlu og góðu sál, sem græðgin yfirskyggði eitt andartak úr Íslandssögunni …
-SER.
Auknar aflaheimildir
Posted by ser in Uncategorized on Mars 17th, 2010
Þeim sjónarmiðum vex ásmegin að auka beri aflaheimildir til að mæta samdrætti í atvinnu- og efnahagslífi landsmanna. Sjálfum finnst mér það sjálfgefið að reyna þessa leið, enda eru gríðarlegir hagsmunir í húfi. Ég hef talað fyrir henni innan þings, svo og skrifað í þessa veru - og tel reyndar að fjöldi þingmanna úr öllum flokkum sé hér sama sinnis. Eðlilegt er að láta reyna á vilja Alþingis í þessu efni. Það er nú eða aldrei.
Þau tíðindi berast úr fjölmörgum byggðum landsins að togurum verði brátt lagt vegna þröngrar kvótastöðu. Það felur í sér að fiskvinnsluhúsum með hundruðum, ef ekki þúsundum starfsmanna, verður lokað í að minnsta kosti tvo mánuði á sumri komanda með tilheyrandi áhrifum á gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins. Þess utan takmarkar þetta mjög sumarvinnu ungra námsmanna, sem margir hafa reitt sig á fiskvinnslu á sumrin.
Hér er ekki verið að ganga á útsæðið. Hlusta ber á helstu fiskifræðinga landsmanna, sem eru sjómenn sjálfir og skipsstjórnendur. Þeir eru almennt þeirrar skoðunar að hafið umhverfis Íslands sé kröggt af þorski. Mörgum þykir líka tilhlýðilegt að reyna grisjunarleiðina, sem farin hefur verið með góðum árangri í Barentshafi, svo dæmi sé tekið. Altént er 30-40 þúsund tonna aukning þorskvóta á þremur árum vel innan áhættumarka.
Þeirri skoðun hefur verið hreyft að rík andstaða sé við auknar aflaheimildir innan þingflokks Samfylkingarinnar. Það hef ég ekki orðið var við. Þvert á móti hafa þingmenn flokksins úr suðurkjördæmi, norðvesturkjördæmi og norðausturkjördæmi talað fyrir því að skoða þessa leið, sem nú um stundir skiptir sköpum fyrir þjóðarbúið. Hér reynir því fyrst og síðast á sjávarútvegsráðherra sem getur breytt einni reglugerð. Og hver vika er dýrmæt …
-SER.
Uppstokkun
Posted by ser in Uncategorized on Mars 11th, 2010
Uppstokkun í ríkisstjórn? Ákvörðun tekin?
Þetta eru tannfyllingar í kjafti fjölmiðla; plantað þangað að hálfu pólitískrar óskhyggju.
En hafa skal það sem betur hljómar … ekki síst í pólitíkinni, sem oft veitir því áfram sem mest er um rætt …
-SER.