Archive for Febrúar, 2010
0
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 19th, 2010
Eftirfarandi hef ég eftir öruggum heimildum innan úr kerfinu:
Skilanefndir bankanna ku fara mikinn í að skoða eiginir og skuldir, svo og færslur og samninga; að ekki sé talað um hæpin viðskipti.
Skilanefndir starfa meðal annars í umboði hins opinbera. Og hvað hafa þær sent inn mörg erindi til skattrannsóknarstjóra vegna starfa sinna á síðustu mánuðum?
Samkvæmt mínum heimildum er svarið einfalt: 0.
En þær eru á fínum launum …
-SER.
Hámark siðferðis
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 19th, 2010
Ég birti þessa grein í Fréttablaðinu í dag, að gefnu tilefni:
“Það er ekki brýnasta verkefni íslenskra bankastjóra að hámarka arðsemi til skamms tíma. Miklu mikilvægara er að hámarka siðferði til langs tíma. Þetta blasir við þegar sértæk skuldaaðlögun fyrirtækja stendur yfir. Þar verður ekki unað við þá þversögn að fulltrúar helstu gjaldþrota íslensks viðskiptalífs njóti forkaupsréttar á glötuðum eignum sínum. Og hvað segir það aukinheldur um hrunalærdóminn að þeir einir geta boðið best sem tapað hafa mestu?
Nú er það ekki svo að stjórnmálamenn eigi að ákveða hvaða einstaklingar mega reka fyrirtæki. Aftur á móti er pólitísk stefnumótun í þessum efnum afar mikilvæg – og sömuleiðis eftirfylgni þingheims. Skortur á hvorutveggju er samfélaginu háskalegur eins og nöturleg dæmin sanna.
Illskiljanlegt er að nýir bankastjórnendur hampi þeim helst sem verst hafa leikið íslenskt viðskiptalíf á síðustu árum. Öllu verra er að þeir njóti afskrifta og ívilnana umfram almenning. Það er eðlileg krafa að athafnamenn, sem hafa réttarstöðu grunaðra í bankahruninu, fái ekki óhindraðan aðgang að fyrri eignum sínum. Í reynd ber að taka fyrir það. Fyrir því hlýtur að vera meirihluti á Alþingi.
Engin ástæða er til að gefa afslátt af íslensku réttarkerfis við siðvæðingu viðskiptalífsins. Sakleysi gildir uns sekt er sönnuð. Því má vel vera að flestir þeir kaupahéðnar sem fremstir fóru í krosseignakapphlaupinu – og ekki hafa fengið réttarstöðu grunaðra - megi sitja við sama borð og aðrir landsmenn þegar kemur að skiptum gæðanna, en þeir eiga ekki að njóta forkaupsréttar. Hámörkun fjár má ekki vera á kostnað hámörkun siðferðis. Og svo er hitt: Almenn og opin útboð hljóta hér að vera meginreglan. Hitt er fullreynt í þröngu, myrkvuðu og líkast til mygluðu handvali.”
Brýnt er að fleiri þingmenn tjái sig um þetta efni …
-SER.
Þarft og rétt …
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 18th, 2010
Þessa ályktun fékk ég frá mínu fólki. Og hér er hvert orð rétt og þarft:
“Stjórn og varastjórn Kjördæmaráðs Samfylkingar á Norðausturlandi hvetur ríkisstjórn og Alþingi til að setja nú þegar lög um siðbót í efnahagslífinu.
Þar yrðu í fyrirrúmi skýr ákvæði til að koma í veg fyrir að einstaklingum, sem ábyrgð bera á stórfelldu greiðsluþroti í viðskiptalífinu, sé með afskriftum lána eða öðrum opinberum úrræðum gert kleift að halda áfram atvinnurekstri og eignaumsýslu. Þá verði þess vandlega gætt að uppstokkun stærstu þrotabúa fari fram fyrir opnum tjöldum án bankaleyndar og öllum eignum í umsýslu opinberra stofnanna sé ráðstafað í gegnsæju ferli þar sem jafnræðis sé gætt”.
Verður vart betur orðað …
-SER.
Farangur úr fortíðinni
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 17th, 2010
Skelfilegt er að sjá marga helstu hönnuði hrunsins komast yfir eignir sínar á ný … í mörgum veigamiklum fyrirtækjum landsins. Þau virðast nefnilega misjöfn … afskriftarkjörin á nýja Íslandi. Og sannast þar hið fornkveðna að skuldir þú bankanum lítið, er það þitt vandamál, en skuldir þú honum mikið, er það hans vandamál.
Enda þótt hér megi ekki gefa neinn afslátt af gildum réttarríkisins, ber engu að síður að staldra við. Hér þarf reglur og lög, sem aldrei fyrr. Eðlilegast í þeim efnum er að ríkisvaldið ívilni í engu þeim athafnamönnum sem hafa réttarstöðu grunaðra í hruninu - og afskrifi þá því síður til eignar í sínum gömlum firmum. Þetta er sanngjörn krafa.
Aftur á móti er það einna mikilægast að hægt verði að ganga að eignum þeirra sem reynast á endanum sekir. Þar er meðal annars spurt um fyrningarfrest … já, er hann nógu langur? Þarf þar lagabreytingu?
Svo er það samkvæmisleikur úr af fyrir sig að leita svara við því hverjir megi reka fyrirtæki á Íslandi í dag. Eiga stjórnmálamenn að ákveða það? Eða einhver óskilgreindur almenningur? Svari þar hver fyrir sig … en mikil má altént ormahreinsunin vera ef algerlega á að lofta út …
-SER.
Út með firði
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 14th, 2010
Kominn til höfuðborgarinnar eftir velheppnaða og fjörlega kjördæmaviku fyrir norðan og austan; eitthvað á annað þúsund kílómetrar lagðir undir dekk og veðrið svo að segja dásamlegt upp á hvurn einasta dag.
Notaði síðasta daginn út með firði; tók meðal annars hús á Haraldi Inga á Hauganesi sem lóðsaði mig um kajann og sýndi mér ferleg hryggjarstykki úr hvölum sem hann geymir þar á sjávarbotni og lætur marflærnar hreinsa utan af. Haraldur Ingi er fornmaður að allri náttúru og hugsar um fátt annað en miðaldasetrið sem hann er að koma á fót að Gásum, þeim mikla verslunarstað við ósa Hörgár. Hvalbeinin verða notuð til amboðagerðar næsta sumar.
Svo hélt ég utan; settist niður með sykraðan cappuccino í Bergi, nýja menningarhúsinu á Dalvík, sem er listasmíð úr huga Fanneyjar vinkonu minnar Hauksdóttur sem kann öðrum betur að teikna hús. Berg er sannarlegt stolt bæjarins og vart annað útsýni að hafa úr nokkru híbýli landsins; yfir höfnina, fjörðinn, Kaldbak og eilífðina. Og svo er þjónustan á staðnum engu lagi lík; frúrnar í notalegu stuði, hvort heldur þær afgreiða bækur eða bolla.
Auðvitað skrölti ég upp stigann á efri hæðina hjá fiskverkun Ottó Jakobssyni. Karlinn á ullarleistunum á sínum stað, við tölvulausa skrifborðið í vesturenda kontórsins; gjarna að kaupa einhvern fisk til verkunar, héðan og þaðan - en alltaf of dýran, enda eru það greifar sem leigja kvótann en ekki ríkið. “Fariði nú að auka kvótann,” steytir Ottó framan í mig; sláið allar flugurnar einu höggi yfir bjargræðistímann … og hann rökstyður mál sitt: “Jú, nóg vinna í fiskverkun næstu mánuði og engin sumarlokun, skólafólkið fengi vinnu og gjaldeyrinn ykist, en …” og hann bætir því með krepptan hnefa að kalla verði inn aflaheimildirnar; það gangi ekki að hafa kvótann á eins fáum höndum og raun ber vitni. Og svo hitt, meinar hann; Stóru útgerðirnar nota minnst hálft tonn af olíu til að ná í hvert tonn af fiski, en við smámennin þurfum ekki nema 100 lítra af olíu til að ná sama magni að landi!
Um fátt þykir mér vænna í pólitíkinni en kjördæmavikur …
-SER.
Rödd götunnar
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 11th, 2010
Í kaupfélaginu í Reykjahlíð við Mývatn er kaffið ókeypis … og ábótin sömuleiðis. Svona er þetta til sveita. Græðgin á sér þar ekki heimilisfesti. Og hefur aldrei átt.
Sneri sumsé að austan í dag, eftir þéttan fund með Eskfirðingum í gærkvöld. Þar hljómaði i hverjum sérhljóða. Sem minnir á þá hollustu að stjórnmálamenn hlusti frekar á fólk en tali eilíflega yfir því; mér líkar það ekki … kann betur við að nema rödd götunnar. Og fólk hér í kjördæminu kann að tjá hug sinn; hvetur okkur ákaft áfram við innköllun veiðiheimilda, fagnar strandveiðum dásamlega - en segi okkur líka til syndanna.
Og skammirnar eru yfirleitt þær sömu: Ætliði að bera gömlu útrásarvíkinganna á gullstólum til enn frekari áhrifa og auðæfa í íslensku viðskiptalífi? Björgólf Thór, Jón Ásgeir, Ólaf Ólafs! Von er að spurt sé. Það sýður nefnilega á fólki, bullsýður … afskriftir og ívilnanir auðjöfranna á meðan almenningur fær einhvern gjaldfrest … ja, það er olían á eldi íslenskrar þjóðmálaumræðu. Um allt land …
Og það er von. Spurningin er nefnilega þessi: Eru stjórnmálamenn enn meðvirkir kerfinu - og hefur siðferði þjóðarinnar ennþá heimili og varnarþing í húsum banksteranna? Já, hvar er siðbótin? Er hún hafin? Mun hún hefjast? Þetta eru mikilvægar spurningar fólks sem það á heimtingu á að fá svör við … hið fyrsta …
-SER.
Frávíkjanleg regla?
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 11th, 2010
Undanbragðalaust eiga alþingismenn þjóðarinnar að gefa upp hagsmunatengsl sín; tekjur utan þings, styrkjendur, stjórnarsetur, félagsaðild, eignir og skuldir. Já, allt. Oft var þar þörf en nú er nauðsyn. Feluleiknum er lokið.
Trúverðugleika þeirra þingmanna, sem enn fela slóð sína, ber að draga í efa. Og þetta á ekki síst við um þá þingmenn sem nýverið var falið að kryfja rannsóknarskýrslu þingsins. Við þvoum ekki samfélagið kámug um hendurnar …
-SER.
Yfir öræfin
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 10th, 2010
Skaust í dag á milli Húsavíkur og Héraðs … yfir mikilfengleg Möðrudalsöræfin, sem eru einhver fegursta víðátta landsins með þjóðarfjallið Herðubreið á aðra höndina, eins og þrútið konubrjóst upp úr móður jörð. Lítil föl á vegi alla leiðina, stillt veður og rík sýn á fjöll og firnindi. Og svona líður manni vel; einn í negldum jepplingi með malandi röddu Karls Th. Birgissonar í viðtækinu sem öðrum betur kann að rýna íslenskt mál. Svo birtast sólgyllt Dyrfjöllin eins og til að kóróna alla þessa hamingju.
Það er kjördæmavika. Pólitískir fundir um allt land. Í mínu tilviki … almennilegar kappræður á Húsavík í gær þar sem töluð var innihaldsrík norðlenska. Eskifjörður í kvöld og líkast til talað án tæpitungu. Þannig á það að vera í pólitík; segja hug sinn allan, viðra skoðanir og virða aðrar …
-SER.
Rannsókn á einkavæðingu
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 10th, 2010
Rétt eins og rannsókn á aðild Íslands að Íraksstríðinu er rannsóknarinnar virði, verður að rannsaka þátt stjórnvalda í einkavæðingu gömlu ríkisbankanna. Nýleg ummæli Sólons Sigurðssonar, fyrrverandi ríkisbankastjóra um þrýstilán Búnaðarbankans gamla til meintra auðmanna í Samson fyrir þessum líka tímamótakaupum á eldgamla Landsbanka … ja, beinlínis hrópar á þá rannsókn. Og hana umsvifamikla.
Því nú safnast kurlin til grafar.
Man einhver eftir réttlætingunni fyrir þessari líka óvæntu þröngu eignaraðild? Jú, nýir og ferskir fjármunir inn til landsins … að utan, langt að utan …
… sem voru svo ekki ferskari en svo að þeir voru fengnir að láni hjá Sólon. Bravó!
Og kaupin svo aldrei borguð til fulls … svona rétt til að bíta höfuðið af skömminni. Og kannski hrunið fólgið í fæðingunni?
Já, rannsókn - og það viðamikla á einkavinavæðingunni. Hvítþvottur Ríkisendurskoðunar á sínum tíma var barn síns tíma; óþroskaður, óharðnaður …
Ég lýsi eftir þingmönnum úr öllum flokkum sem eru með mér á þessu brýna máli …
-SER.
Útvarp Reykjavík
Posted by ser in Uncategorized on Febrúar 10th, 2010
Ég er hlynntur Ríkisútvarpi, svo fremi það sé útvarp þjóðarinnar …
… allrar.
Þriðjungur þjóðarinnar - og gott betur - býr úti á landi (sem er þversögn af því hinn hlutinn býr líka á landi, en látum það vera … )
Útvarp þjóðarinnar verður ekki réttlætt nema það endurspegli þjóðina … alla. Og þá ber því líka að sinna allra þjóðinni og starfa í almennilegu návígi við hana … með henni - og fyrir hana. Þess vegna skerum við ekki alltaf fyrst og helst niður úti á landi, eins og nýleg dæmi sanna. Og þó ekki væri sakir annars en að svæðisstöðvarnar bera sig fjárhagslega með staðarauglýsingum.
Ein helsta réttæting þess að ríkið reki útvarp og sjónvarp er að það geri betur en aðrir í að spegla þjóðina. Það skal þá, gjöriði svo vel, gera það. Ella loka búllunni.
Útvarp Reykjavík … ef við viljum það per se … er góð hins vegar hugmynd í aðdraganda borgarstjórnarkosninga …
-SER.