Archive for Janar, 2010
Dagsetning skýrslu
Posted by ser in Uncategorized on Janar 29th, 2010
Það er ekki hægt að bíða lengur eftir því að höfundar rannsóknarskýrslu Alþingis nefni þann dag sem þær ætla að birta afurð sína. Hitt er móðgun við þing og þjóð.
Og svo er annað: Skýrslan verður að vera eins aðgengileg að nokkur kostur er … og helst á hún að liggja eins og símaskráin … á brettum á bensínstöðvum um allt land. Hér nægir ekki netið eitt …
Svo vil ég sjá á að giska klukkutímalanga úttektarþætti á skýrslunni á RÚV í þrjár vikur samfleytt þar sem ekkert verður dregið undan … undir stjórn Kristins Hrafnssonar, Þóru Arnórsdóttur og álíka hauka …
Til þess er jú nefskatturinn …
-SER.
RÚV og hinir
Posted by ser in Uncategorized on Janar 29th, 2010
Meginröksemdin fyrir öflugu ríkisútvarpi er að það sinni lýðræðishlutverki sínu; ekki síst með eins kröftugri og faglegri fréttamennsku og nokkur kostur er … um allt land.
Ríkisútvarpið er til fyrir landsmenn … alla.
Þessvegna gelda menn ekki útstöðvarnar. Það verður aldrei leyft.
Ríkisútvarpið á að endurpegla þjóðina … hvað upplýsingu og menningu varðar … um allt land.
Það er akkúrat hitt sem má skera niður … já, hitt sem hinir geta gert …
-SER.
Heimasætan í Eyjafirði
Posted by ser in Uncategorized on Janar 26th, 2010
Spókaði mig um í Hrísey í gær, þessari heimasætu Eyjafjarðar.
Pólitískur fundur í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og nokkuð vel mætt á efri hæðina á Brekku hjá Heimi og Gunnu, þessum rólegheitavertum sem kunna öðrum betur að skenkja bláskel í skál. Mikið spurt um ferjumál, enda er ferjan dágóður þröskuldur ferðamanna á leið út í eyju; þúsundkall farið … sem tekur í fyrir meðalstóra fjölskyldu, en ætti vitaskuld að vera strætóverð …
Það færist friður yfir tetur sálarinnar á göngu um þetta litla þorp sem prýtt er fögrum húsum í slakka upp af höfninni. Eyjan sameinar sæld og kraft; allt sosum í göngufæri og náttúran nýtt til hins ýtrasta; hvort heldur er hvönnin í lyf eða skelin í mat fyrir utan aðrar gjafir jarðar og sjávar.
Möguleikarnir eru miklir í Hrísey og nægir að nefna þetta tvennt; hvönn og skel. Óvíða betri hvönn að fá í heimi hér, sterkefnuð og medica-væn eins og félagi Bjarni Thorarensen þekkir manna helst … og svo er skelin að verða algert ævintýri eftir gilda samninga við Kanadamenn um sölu og dreifingu. Skeljakóngurinn Víðir líklega að tvöfalda mannskapinn í vinnslunni niðri á kaja - og Belgar sleikja út um …
Í vor ætla ég að skipuleggja sérstaka skeljaferð út í Hrísey með matgæðingum, vinum mínum. Og fá mér kræklinginn bæði í forrétt og aðalrétt hjá þeim Heimi og Gunnu … og verða Hríseyingur um stund …
-SER.
Þjóð eða þing
Posted by ser in Uncategorized on Janar 8th, 2010
Ljóst er að stjórnarandstaðan á Alþingi er orðin afhuga þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það er þá enn einn snúningur hennar á Icesave-málinu. Gott og vel.
Vilji stjórnarandstaðan sátt í málinu, sem væri vel, þarf hún að útskýra út á hvað sú sátt á að ganga. Það hefur hún ekki gert. Varla felst sátt hennar í því að stjórnarliðar mæti öllum sjónarmiðum stjórnarandstæðinga? Vilja þeir hinir síðarnefnda koma að einhverju leyti til móts við stjórnarliða? Hvar? Hvernig? Hvenær?
Þessum spurningum þurfa stjórnarandstæðingar að svara í dag.
Svona fyrst þeir vilja alls ekki þjóðaratkvæðagreiðslu þegar í harðbakkann slær …
-SER
Upplýsingaskylda
Posted by ser in Uncategorized on Janar 7th, 2010
Forseti Íslands gat ekki sagt á fundi með blaðamönnum á Bessastöðum í dag hvaða stjórnarþingmenn hefðu skorað á hann að vísa Icesave-málinu í dóm þjóðarinnar. Þó var á honum að heyra í fyrradag, þegar hann tilkynnti umdeilda ákvörðun sína, að þessar áskoranir hefðu skipt máli fyrir ákvörðun hans.
Engir stjórnarþingmenn hafa sagst hafa skorað á forsetann í þessu efni. Enginn hringt, enginn skrifað, enginn sent skeyti.
Nú hlýtur krafan að vera sú að forsetinn upplýsi hverjir þetta voru - og birti þessar áskoranir, hvort heldur þær bárust honum á neti eða pappír. Um annað eins hefur verið beðið í Icesave-málinu öllu - og nægir þar að vitna til starfa fjárlaganefndar.
En auðvitað mun forsetinn koma sér undan þessu …
-SER.
Forsetaræði
Posted by ser in Uncategorized on Janar 6th, 2010
Forseti Íslands gæti komist í sögubækurnar fyrir annaðtveggja; að fella fyrstu hreinu vinstri stjórnina í sögu landsins, eða vera sá forseti í sögu lýðveldisins sem fyrstur þarf að segja af sér embætti.
Vitaskuld förum við í þjóðaratkvæðagreiðslu að ráði forsetans. Verði Icesave-lögin samþykkt í henni, er forsetanum varla sætt lengur. Verði Icesave-lögunum hafnað, er ríkisstjórninni varla sætt lengur.
Æ fleiri viðbrögð fólks allt í kringum mig telja mér trú um að forsetinn sé tæpari en stjórnin. Nú er enda spurt í lokin; endurreisn eða einangrun? Því falli samningurinn eru Bretar og Hollendingar með öll tromp á hendi … og sér svo sem ekki fyrir endann á þeim afleik …
Álit mitt á forsetanum er annars þetta: Hann tók eigin hag fram yfir þjóðarhag þegar hann neitaði lögunum staðfestingar. Hugvísindamaðurinn sjálfur beitti veikum rökum máli sínu til stuðnings; óvísindalegri könnun sem byggði á því ólíka mati fólks að borga ekkert, helst ekkert, eitthvað, eða ekki eins mikið - og svo var hitt og kannski lyginni líkara; á samtölum og áskorunum stjórnarliða sem enginn þeirra kannast við. Nákvæmlega enginn. Því máli fylgja fréttastofur vitaskuld eftir.
Fyndnast er þetta: Forsetinn hefur tekið upp hanska helstu kapítalista heims, sem suður í Kaliforníu kjósa um allar fjárreiður hins opinbera, þar með taldar skattahækkanir, enda er ríkið a tarna gjaldþrota fyrir vikið. Engum nálægum þjóðum dettur til hugar að setja íþyngjandi byrðar í þjóðaratkvæði - og það vita hugsvísindamenn.
En gott og vel … við skulum samt kjósa … eftir röskan mánuð - og þá mun þjóðin vita hvað er í húfi.
Í millitíðinni myndi ég halda að forsetinn væri búinn að fara í lúxusferð til Indlands og skilja þjóðina eftir heima í ruslflokki …
Það er eftir öðru …
-SER.