Archive for December, 2009

Engin leynd, aldrei

Nokkur umræða hefur verið um það á fréttamiðlum að einhverjum upplýsingum úr rannsókn Alþingis á efnahagshruninu verði haldið leyndum. Auðvitað fer því fjarri. Næsta óskiljanlegt er að umræða af þessu tagi fari af stað.

Allar upplýsingar … nákvæmlega allar upplýsingar … úr rannsóknarskýrslu Alþingis á bankahruninu verða almenningi aðgengilegar. Það verður engu stungið undir stól eða ofan í skúffu. Skárra væri það nú … enda slíkum stjórnarháttum síðustu áratuga algerlega hafnað af alþýðu fólks.

Hitt er svo annað mál … að ef til vill óska einhverjir þess að lyktir rannsóknarinnar líti aldregi dagsins ljós. Væntanlega fer þar fremst sjálft forsætisráðherraefni málþófsflokkanna sem gefur þeim línuna ofan úr móum …

Þessu liði verður ekki að ósk sinni. Við völdum hefur nefnilega tekið stjórnarmeirihluti sem hefur ekkert að fela – og mun ekkert fela í þesum efnum …

-SER.

No Comments

Afdalasinnar og ESB

Baráttan fyrir inngöngu Íslands í ESB – á forsendum góðra samninga – hefst fyrir alvöru á komandi vikum. Afdalasinnaðir einangrunarsinnar mega eiga sín sérhagsmunarök og sosum tími kominn til að þeir finni til tevatnsins.

Ekkert verkefni er mikilvægara nú um stundir í stjórnmálum en að tengja Ísland umheiminum – og afnema innmúrað sérhagsmunapot í viðskiptum og umsýslu hins opinbera. Karlaklíkan er fullreynd á Íslandi … þar sem eftirlitið felst í flissi briddsfélaganna.

Meginverkefnið er þetta: Að fletta ofan af lygavef afdalamennskunnar um ESB-hætturnar. Þar hafa áhugamenn um umsókn látið deigan síga að undanförnu. Og allt of lengi.

Ég ætla að byrja lokaorrustuna með Eiríki Bergmann Einarssyni á ÍNN í kvöld kl. 21.30 og afhjúpa helstu rökleysur afdalasinna … svona í tilefni fullveldisdagsins … og þeir mega áfram flissa sem halda að sérgæsku samfélagsins sé hvergi lokið …

- SER.

No Comments

Samhengi hlutanna

Iðjuhöldar hafa gengið í grátkör sægreifanna og vatna músum á síðum blaðanna; auknar skattaálögur felli framleiðslufyrirtækin í unnvörpum.

Það gleymist í þessari umræðu að bera skattaálögur íslenskra fyrirtækja saman við það sem gengur og gerist í helstu samkeppnislöndum. Þar er samanburðurinn okkur hagstæður. Það gleymist aukinheldur að nefna sveiflur gjaldmiðils og efnahags. Þar er samanburðurinn okkur óhagstæður.

Og svo er hitt einnegin: Gæti verið að stöku iðjuhöldur hafi fjárfest fram úr sér á síðustu misserum. Ég nefni Ölgerðina og tröllvaxna nýbyggingu hennar uppi á hálsum. Ætli það hús sé ekki helsti sykurskatturinn …

Iðjuhöldar eiga að veifa meira ESB-rökum en eigin tárum …

-SER.

No Comments