Archive for Nóvember, 2009
Matur
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 29th, 2009
Nýjar lægðir á Alþingi Íslendinga um helgina. Svo að segja aðframkomnir þingmenn stjórnarandstöðu eins og betlikerlingar að biðja um mat …
Fólkið, sem krefst þess að tala um Icesave, finnur sér allar leiðir til að tala ekki um það. Og nú síðast er það óskin um matarhlé. Pólitískt garnagaul!
Þvílíkt sjónarspil. Kjánahrollur. Depurð.
Það eru á að giska 25 norðlensk skref úr þingsal í matsal Alþingis. Þar er alltaf matur. Alltaf mikill. Alltof góður. Sjálfur hef ég þyngst um kíló á mánuði frá því ég hóf þingstörfin. Maturinn er nefnilega alltof nálægt. Og alltof girnilegur. Sigga matselja er galdrakokkur - og minnir sosum á söguna góðu úr bókinni hans Guðna, sem ég reit fyrir tveim árum: Á dánarbeðinu bað nestor Ágúst tengdadóttur sína um eina ósk; að hún sæi til þess að karl sinni yrði ekki of feitur, þá nýkjörinn á þing! Sjálfur hefði Ágúst bóndi á þingmannsárum sínum orðið alltof skvapaður; nei, Guðni mætti ekki fara sömu leið og karl faðir hans á þingi. Hann bað sumsé um eina ósk; að eldhús þingsins freistaði ekki um of …
Nú er ég sjálfur að fara sömu leið. Feitur af fínu mötuneyti. Og heyri svo félaga mína kvarta yfir matarleysi. Í fullu húsi matar. Og haga sér eins og þurfalingar í miðri umbeðinni orrustu um Icesave-ósköpin.
Þjóðin getur og má ekki hafa áhyggjur af svona liði …
-SER.
Ljósin kveikt
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 29th, 2009
Naut þess með dóttur minni, fimm ára í fanginu, að horfa á ljósin kveikt á danska jólatrénu á Ráðhústorginu á Akureyrium helgina - og mátti ekki á milli sjá hvort okkar var yngra. Léttamjöllin sveif yfir torgum; kuldinn mestur í tám og iljum af því Íslendingar ganga ekki lengur í lopasokkum.
Félagi Hermann bæjarstjóri flutti ræðu, snjalla og gagnorða - og hleypti svo sendiherra Dana að, fulltrúa gefendanna, en þá slokknaði á hljóðkerfinu.
Líklega pólitísk slægð að hálfu Hermanns.
Aðventan kveikir eitthvert líf. Hún er ljósberi skammdegisins. Og holl áminning fyrir þau öfl sem ekkert vilja sjá annað en sortann …
-SER.
Þingræði
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 26th, 2009
Davíðsarmurinn innan Sjálfstæðisflokksins er að stælast, já armurinn allur að styrkjast og sterast - og augljóst hvaðan boðin koma - og á hvern er hlustað.
Og skilaboðin eru þessu: Málþóf um Iesave fram yfir mánaðamót og helst svo lengi að verulega reyni á Evrópusambandsumsókn …
Þetta er náttúrlega glæsileg hjálp við endurreisn landsins. Þessir óvæntu og skyndilegu áhugamenn um þingræði eru hjákátlegir, nánast aumkunarverðir … og þekkja ekki eigin sögu.
Sex mánuðum … hálfu ári … hefur verið varið að hálfu þingsins í Icesave-rannsóknina. Hundruð klukkutímafundir fjárlaganefndar og margra mánaðalöng umræða innan þings og þingnefnda er langt frá því að vera nóg að mati þessa forherta íhalds.
Það tók hins vegar sama íhald sex sekúndur að klína Íraksstríðinu á íslenska þjóð.
Og einn maður þessa sama íhalds breytti einkavæðingu í einkavinavæðingu í einu bráðræðiskasti.
Og hvorugt kom til kasta Alþingis …
… það er þingræðissaga þessa sjálftökuflokks …
-SER.
Skellurinn
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 18th, 2009
Hollast er að taka skellinn strax, sagði félagi Göran Persson í vinsemdartón til Íslendinga eftir hrun. Þessi gamli fjármála- og síðar forsætisráðherra Svía, hvatti ráðamenn frónska til að taka snemmendis á vandanum, fremur en að afhenda hann komandi kynslóðum.
Og nú er einmitt verið að taka til; laga samfélagið að efnum þess.
Stjórnvöld hefðu getað tekið “barnalánið” í lífeyrissjóðunum; dregið tímabundið úr krafti sjóðanna til lífeyrissgreiðslna og fjárfestinga og látið sjóðsfélaga seinni tíma taka á vandanum … en þau ætla fremur leið Perssons. Ég hygg það viturlegra.
Fræg að endemum er skattatilfærsla sjálfstæðismanna á þenslutímum. Tekjuhæstu hóparnir voru verðlaunaðir á kostnað millitekjufólks og láglaunamanna; þeirra sem í reyndinni skila hlutfallslega mestum skatttekjum í ríkissjóð. Tekljuskattskerfið er í mínum huga tekjujöfnunarkerfi, en sjálfstæðismenn notuðu það til ójöfnuðar. Og kölluðu snilldina skattalækkun … á sama tíma og flestir hópar urðu að borga meiri tekjuskatt. En vel að merkja; í þeirra huga er aðeins ein stétt!
Nú á að tekjujafna. Mér hugnast það betur. Enda er ég jafnaðarmaður. Tekjuskattur lækkar klárlega hjá þeim tekjulægstu en hækkar hlutfallslega mest hjá þeim tekjuhæstu. Millihópurinn má vel við una í ljósi heils bankahruns. Skattar hans hækka vissulega, en vel undir því sem búast hefði mátt við í ljósi aðstæðna.
Það má heldur ekki gleyma tölfræði sögunnar. Og hin sjúka staðreynd er þessi: Bankahrunið kostar meðaltekjufólk á að giska það sama í prósentum og sami hópur borgaði sjálfstæðismönnum fyrir að lækka skatta á hæstu launin …
-SER.
Sex milljarða svindl!
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 15th, 2009
Atvinnuleysisprósentan er gríma sem hylur óvissu, harm og höfnun. Á bak við hvert prósent atvinnuleysis bíða 1640 manns eftir starfi. Það má aldrei gleymast; hver prósenta er herfilegur ósigur samfélagsins.
En það er ekki allt sem sýnist. Glöggir starfsmenn Vinnumálastofnunar telja að allt að fimmtungur þeirra sem eru á atvinnuleysiskrá sé að svindla á kerfinu; vinni ýmist svart eða sé í námi. Þetta eru stórar tölur - og kosta sitt. Hver prósenta atvinnuleysis kostar samfélagið 3,1 milljarð í bótum. Í tíu prósenta atvinnuleysi, eins og óttast er að verði viðvarandi á næsta ári, leynast því röskir sex milljarðar króna sem samfélagið pungar út að óþörfu.
Hér þarf að herða róðurinn gegn svindli. Það á að fjölga starfsfólki Vinnumálastofnunar víða um land, gagngert til að auka og efla eftirlit. Það eru sex milljarðar í húfi …
Þetta breytir samt ekki því að þúsundir landsmanna eru sannarlega án vinnu - og verða það enn um sinn á komandi misserum. Atvinnuleysisspáin fyrir yfirstandandi ár var 5,7% en reyndin var önnur; líklega verður hún nær 8 prósentum. Og spá næsta árs gerir ráð fyrir 10,6 prósenta atvinnuleysi.
Atvinnuleysi ársins 2008 kostaði þjóðarbúið 4,4 milljarða í bótum, árið 2009 kostar það 17,5 milljarða og kostnaðurinn vegna næsta árs verður nærri 30 milljarðar, gangi spár eftir.
Á sama tíma og skera þarf niður í þjóðarbúinu og auka skatta svo að þjóðin nái endum saman, er afskaplega mikilvægt að fjölga störfum. Stjónvöldum ber ekki síst að beina sjónum sínum til þeirra fjármuna sem hægt er að spara með því að fækka þeim sem þiggja atvinnuleysisbætur, með réttu og röngu …
-SER.
Heiðarleiki
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 14th, 2009
Heiðarleiki var það …
Og ástæða til að taka ofan fyrir þjóðfundinum í Laugardalshöll. Hann var og er stórvirki upplýstrar umræðu; kóróna á komandi lýðræði.
Heiðarleiki er efst meðal gilda. Það er ein niðurstaða fundarins. Nú er það landsmanna allra að rækta hugtakið - og helst manngera það …
-SER.
Þorsteinn
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 14th, 2009
Unun er að lesa vikulega pistla Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu. Þar fer fremstur leiðarahöfunda landsins nú um stundir.
Yfirsýn þessa yfirvegaða emiritus er kærkomin í kerlingafleytingum íslenskrar stjórnmálaumræðu. Sömuleiðis er umburðarlyndinu viðbrugðið, svo og hæverskunni.
Mest um vert er að Þorsteinn nýtur trausts; kögunarhóll hans er ótruflaður af æstum liðsmönnum sem vilja vega mann og annan. Hann er ekki erindreki nokkurs nema eigin reynslu og hugmynda. Og er þar af ærnu að taka …
Og svo er hitt: Það er aldrei leiðinlegt að lesa vit, í stað vanlíðunar …
-SER.
Baráttan um túlkun sögunnar
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 6th, 2009
Enn hef ég ekki sagt upp Mogganum mínum … að öllu leyti. Er sumsé með helgaráskrift. Það er nefnilega svo að þegar kemur að blaðalestri er ég ákafamaður; einna best kann ég við mig uppi í sóffa, umvafinn blöðum og tímaritum og sosum eins og þriggja tíma næði.
Umburðarlyndur maður er ég, held ég … en Mogginn er að breytast. Hann er hastarlegri. Það eru fleiri asnar í kringum hann; sumsé þeir hinir sem eru ekki á hans línu eru vitleysingar - og eru bloggaðir í drep í Staksteinum stækrar sérsemi. Verra verður það með hverjum deginum sem drífur fram. Myrkrið hellist yfir Hádegismóana og geltið er drifið sársauka og kveini; gott ef ekki dýrslegri móðursýki.
Hér er ástæða auðvitað einföld. Það er verið að anda djúpt fyrir fyrsta febrúar. Baráttan um túlkun sögunnar er hafin. Og hún verður illvíg, mygluð og á köflum viðurstyggileg. Enda æra margra í húfa.
Línan úr Hádegismóum er þessi: Það er ekki sakir hugmyndafræði eða stjórnarfars síðustu tuttugu ára eða svo sem Íslendingar hafa það skítt, heldur vegna nokkurra vondra manna sem léku á kerfið. Svo einfalt er það - og það skal engum heilvita manni takast að rugla þessa mynd.
Það eru sigurvegararnir sem skrifa söguna. Mogginn ætlar sér að vera þeim megin baráttunnar. Hans heimur er þrenns konar; Hirð hinnar óumdeildu sérhagsmunastefnu, vondu karlarnir - og við hin sem erum svo vitlaus …
Það er upp á þessi býtti sem mig langar áfram að vera arfavitlaus …
-SER.
Útsýnið á Íslandi
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 5th, 2009
Heyrði í konu í gærdag. Hún kvaðst hafa staðið við gluggann í vinnu sinni. Horfði yfir Sundin undan ströndu borgarinnar. Esjan fögur. Stilla. Vetrarværð. Já, þessi staðfesta um að búa í fallegu landi.
Eitthvað samt vantaði, sagði konan. Og svarið var í andrúmsloftinu. Þrungnu andrúmsloftinu. Sumsé … vildi konan meina; bölmóðurinn, rætnin og niðurrifið í samfélaginu hefur tekið á sig slíka mynd að jafnvel útsýnið yfir Sundin blá fær á sig slykju eymdar og volæðis. Og þessi líka þyngsli og drungi …
Líklega er þetta rétt. Það er þjóðaríþrótt nú um stundir að tala svo hver til annars að helst hvessi brúnir. Svartnættið virðist miklu áhugaverðara en týran … eða það litla ljósmeti sem þó er farið að lifna við enda ganganna. Þjóðin skal hafa það vont. Og þjóðin skal vera vond.
Verst er þetta auðvitað á blogginu. Þar eru allir í það minnsta arfavitlausir og illmenni ..skásta liðið einhverjir vitleysingjar, en almennt séð og alhæfingar þesslegar að þjóðin ætli ekki að hafa það. Það er reypi um hálsinn á allri þessari umræðu.
Þetta er ekki fagurt útsýni.
Hér þarf að hreinsa til. Og góð byrjun er að tala … þó ekki sé nema þokkalega um náungann …
-SER.
Leyndina burt! Opið uppgjör!
Posted by ser in Uncategorized on Nóvember 2nd, 2009
Það er ekki sjálfgefið að fyrirtæki og fjárfestar njóti bankaleyndar í uppgjöri hrunsins. Það má færa fyrir því margvísleg rök að það sé beinlínis óæskilegt að leyndarhjúpur leiki um þá uppstokkun sem fram undan er í íslensku viðskiptalífi. Einna veigamestu rökin eru þau að allur almenningur treysti því að skuldaskilin séu réttlát og lúti almennum jafnræðisreglum.
Og hér skal nú fullyrt: Það er ekki nokkur von til þess að sátt verði í samfélaginu ef minnsti grunur leikur á því að stærstu gerendur hrunsins fái sérmeðferð innan nýja bankakerfisins. Það má vel vera að gamla bankakerfið hafi verið fyrir útvalda. Til hins nýja kerfis eru hins vegar gerðar allt aðrar og miklu meiri kröfur. Og þar er ekki síst spurt um traust. Ósvikið traust.
Og treysta menn forráðamönnum Haga og Baugs? Ætlar ríkið að leggja traust sitt á þá í endurreisn landsins? Eru þetta akkúrat mennirnir sem eiga … einkum og sér í lagi … að fá skuldaafslátt á meðan allur almenningur borgar sínar skuldir upp í rjáfur og þaðan upp úr mæninum? Hér reynir almennilega á eftirlit Alþingis. Hér verður spurt hvort eitthvað hafi raunverulega breyst.
Í mínum huga er niðurstaðan augljós: Óvenjulegar aðstæður kalla á óvenjulegar lausnir. Þær eiga að miða að því, öllu öðru fremur, að þjóðin fái að gera upp við hrunameistara sína með allar nauðsynlegar upplýsingar uppi á borðum. Í uppgjöri hrunsins verður að aflétta bankaleyndinni. Og sömuleiðis allri annarri leynd; þar á mðal stjórnmálaleyndinni og embættismannaleyndinni.
Takist ekki að vinna trúnað og traust þjóðarinnar í þessu svívirðilega máli verður engin sátt. Og þaðan af síður traust. Og málið er einfaldlega þetta: Við felum ekki uppgjörið fyrir þjóðinni …
-SER.