Archive for October, 2009
Hlutverk í sögunni
Posted by ser in Uncategorized on October 18, 2009
Ég er talsmaður þess að menn vinni saman á Alþingi Íslendinga. Líklega er það mikilvægara nú um stundir en nokkru sinni.
Þess vegna var sérstakt að hlusta á fulltrúa stjórnarandstöðunnar úthúða nýju Icesave-samkomulagi í morgun … án þess að hafa séð það.
Þeir gátu sér til. Illt hlyti að vera áfram illt.
Og illt var það, heillin.
Ekkert minna en landráð sem lék um tunguna.
Hér talaði fólk sem hannaði atburðarásina. Í huga þess eru ræstitæknarnir sýnu verri en sóðarnir …
-SER.
Brennandi spurningar
Posted by ser in Uncategorized on October 13, 2009
Líkast til verður seint hægt að fá úr því skorið hvað einkavæðing íslensku ríkisbankanna kostaði samfélagið á endanum. Það er verðugt rannsóknarverkefni, en þó vart á færi frjálsu fréttamiðlanna sem eru ýmist í eigu eða undir stjórn lykilpersóna í efnahagshruninu.
Eins er það hagfræðilegt metnaðarmál að reikna það út hvað íslenskt samfélag hefur tapað á Icesave-biðinni, allt frá því samningar lágu fyrir 5. júní til haustmánuða. Það gæti verið hærri upphæð en sem nemur fyrirvörunum.
Og þá er ekki síður brennandi spurning hvað út af stendur í sölu ríkisbankanna til einkaframtaksins. Enn hefur ekki að fullu verið greitt fyrir þá – og verður vart úr þessu. Já, hvað fékk ríkið fyrir sinn snúð þegar upp var staðið?
Og … verða það kannski bankamennirnir sjálfir sem helst og mest njóta margumtalaðra afskrifta í samfélaginu, þegar hrunið verður á endanum gert upp?
Mér varð si sona hugsað til þessa þegar ég sat á fjárlaganefndarfundi í morgun og skoðaði lykiltölur í niðurskurði til velferðarmála …
-SER.
Neyðin kennir …
Posted by ser in Uncategorized on October 11, 2009
Neyðin kennir naktri konu að spinna.
Segir máltækið … og kreppan hefur heldur betur undið upp á sig, ef svo prjónalega má að orði komast. Horfði nefnilega á sjö konur á fögrum aldri um helgina – og allir með lopann á prjónunum; peysur, vettlingar, sokkar og húfur.
Það er runnið prjónaæði á þjóðina. Lopinn er svarið. Helst í sauðalitunum. Skilst að salan á lopa hafi aukist um nálega 300 prósent á síðustu vikum. Og svona verður veturinn. Heitfengur af núþæfðri ull. Svoleiðis höfum við lifað þá nokkra af. Þökk sé ullinni. Hún kemur okkur aftur og aftur til bjargar …
-SER.
Ó bama
Posted by ser in Uncategorized on October 11, 2009
Líklega er ég ekki einn um undrið.
Barack Obama, friðarverðlaunahafi Nóbels.
Fyrir … ja, brosið, velviljann, orðræður.
Flottur forseti, vitaskuld … en þetta er líkast til í fyrsta sinn sem verðlaunahafi þarf að vinna fyrir verðlaununum eftir á …
-SER.
Samstaða / sundrung
Posted by ser in Uncategorized on October 8, 2009
Ástæða er til að hrósa félögunum Höskuldi Þór Þórhallssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir strandhögg þeirra í Noregi. Þeir hafa haft frumkvæði að því að norsk stjórnvöld veiti Íslendingum umtalsvert lán og komi þannig gömlu flóttaþjóðinni til hjálpar á erfiðum tímum.
Þetta er gott og vel.
Það er offramboð af letjandi pólitík í landinu. Niðurdrepandi nöldur flæðir upp um um öll göt umræðunnar. Og sömuleiðis er nóg af pólitísku þunglyndi.
Tímabært er að stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þeir standa, taki sér tak. Þjóðin hefur ekki efni á því að stjórnmálamenn og flokkar níði skóinn hver af öðrum … í eins konar uppboðshaldi á því hver veifar lélegustu hugmyndinni. Það má ekki vera sjálfkrafa afgreiðsla að allt sem frá öðrum flokkum kemur, sé annaðtveggja hræðilegt eða kátbroslegt.
Ég fagna frumkvæði Framsóknarbræðra. Ég fagna uppbyggilegum tillögum. Látum á þær reyna …
-SER.
Fjárlagaumræðan
Posted by ser in Uncategorized on October 8, 2009
Fjárlagaumræðan hefst á Alþingi í dag. Þar koma áherslur stjórnmálaflokkanna fram. Hverju vilja þeir hlífa? Hverju vilja þeir fórna? Þetta eru meginspurningar íslenskra stjórnmála nú um stundir.
Mikilvægt er að stjórnsýslan kannist við líkamsburði sína. Fitan hefur sest á ýmsa staði, en aðra ekki. Einkum og sér í lagi hefur hún þanist út á höfuðborgarsvæðinu – og lítillega aukist í Suðurkjördæmi; annars staðar ekki. Niðurskurðurinn má því ekki ráðast af reykvískum embættismönnum sem gæta helst að sínu nærumhverfi.
Þensla síðustu ára hefur líka helst farið til þeirra sem mest og ákafast hafa kallað eftir henni. Heilu samfélagshóparnir hafa gleymst; ekki síst börn með sérþarfir, fatlaðir, langveikir og sá hópur aldraðra sem býr við verstu kjörin.
Hér þarf að skilgreina hvað raunveruleg velferð þýðir. Og hér þarf líka að spyrja svíðandi spurningar: Skiptir einhverju máli að hafa vinstri stjórn við völd í landinu …
-SER.
Brestur trúnaðar
Posted by ser in Uncategorized on October 7, 2009
Margt má gott segja um nýja mynd Helga Felixsonar um íslenska efnahagshrunið. Hún fangar eitthvert magnaðasta skeið Íslandssögunnar og skilar átakanlegri stemmningu beint í fang áhorfandans.
En klárlega tek ég undir gagnrýni nestors Jónasar Kristjánssonar og fleiri gamalla blaða- og fréttamanna sem lýsa frati á meðferð Felixsonar á skúrkunum í myndinni; þeim Jóni Ásgeiri og Björgólfi Thor. Það hefur aldrei verið til siðs á meðal heiðvirðra blaðamanna að gera lítið úr viðmælendum sínum og opinbera þá “off record” eins og rækilega er gert í myndinni. Það heitir að koma aftan að mönnum.
Hér eftir verður erfiðara að fanga augnablik samtímans. Því er ver.
Það hefur ávallt verið svo í samtölum blaðamanns / fréttamanns / tökumanns og viðmælenda að viðtalið byrjar þegar báðir vita af því. Viðmælendi hefur hingað til getað gengið út frá því vísu að miðillinn birti ekki mynd af honum borandi í nefið á sér skömmu áður en sjálft viðtalið hefst.
Ég sem hélt að hrunið myndi kenna okkur betri mannasiði …
-SER.
1700
Posted by ser in Uncategorized on October 6, 2009
Staða þjóðarbúsins er með þeim hætti að brýnna er að byggja upp en rífa niður. Þetta á líka við um umræðuna. Merkilegra er að koma fram með tillögur en tæta aðrar í sig.
Stefnuræða forsætisráðherra á Alþingi í gærkvöld segir alla söguna um þau viðfangsefni sem við blasa. Þar kom fram að skuldir ríkisins munu vaxa úr rúmum 300 milljörðum króna árið 2007 í ríma 1700 milljarða árið 2010, eða um nærri eina landsframleiðslu, alls 1400 milljarða króna.
Þetta er kuldi veruleikans.
Stærstu póstarnir í skuldunum eru þessir:
- 350 milljarðar eru vegna halla ríkissjóðs
- 350 milljarðar vegna lána vinaþjóða til þess að styrkja gjaldeyrisforðann
- 300 milljarðar vegna endurfjármögnunar banka og fjármálafyrirtækja
- 150 milljarðar vegna gengisþróunar á eldri lánum
- 300 milljarðar vegna Seðlabanka Íslands, til að forða gjaldþroti hans, en skuld ríkisins vegna afskrifaðra lána Seðlabanka Íslands jafngildir þreföldum niðurskurði fjárlagahallans á milli áranna 2009 og 2010.
Og svo bætast Icesave-skuldirnar við eftir sjö ár.
Já, guð blessi Ísland …
-SER.
Vopnfirskur borgari
Posted by ser in Uncategorized on October 1, 2009
Óvíða er fegurri sýn að hafa en ofan af Hellisheiði eystri. 650 metra hæð eða svo – og Héraðsflóinn liggur eins bráð veiðimannsins fyrir neðan – og utar; lokuð Dyrfjöllin á hlið við austfjarðafjallgarðinn … Jökla og Lögurinn á lygnri leið til hafs, stöku bátur utar – og kyrralogn og heiðskýra allt yfir.
Var sumsé á kjördæmareið með félaga Magnúsi Orra og Jónínu Rós; nýkominn ofan úr Siglufirði þar sem Möller slóst í hópinn; hörkufundur eins og Siglfirðinga er siður, meiningar og innihald. Héldum á Héraðið og svo yfir hæstu heiðina sem Vegagerðin leyfir – og hún er lífsreynsla borgara Schram sem áður hafði ekki keyrt um svona þrengsli og eggjar.
En bendi mönnum hér eftir á besta borgara landsins sem er að finna á Hótel Tanga; ekkert þunnildi a tarna og skreyttur vel af sköpun reynslunnar … enda tvær þroskaðar konur í eldhúsinu – og engin ungmenni að dútla í djásni dýrafitunnar. Já, þykkur og sæll – og vel vopnaður borgari.
Mér fannst ég saddur allan fundinn í bænum … og kem aftur og aftur og panta það sama …
-SER.