Archive for Október, 2009

Í marglitum hópi

Morgunskíma yfir Vaðlaheiði; nýr dagur á syðri brekkunni og haldið á fund eyfirskra sveitarstjórnarmanna niðri í bæ … á þriðja degi kjördæmaferðar þingmanna í norðausturkjördæmi. Mikil reisa. Friður og sátt, til þess að gera … í marglitum hópnum, sem kann að njóta samvista þegar svo ber undir.

Mest um vert er að nema sveitarstjórnarfræðin; hlusta á þær raddir byggðanna sem gerst þekkja til líðan landsmanna. Það er almennur ótti við að opinberum störfum verði fækkað úti á landi - og kannski ekki að ástæðulausu; þau hafa einmitt verið skorin niður af miskunnleysi á síðustu árum á meðan fjölgunin hefur öll orðið í hornríkinu. Og það engin smotterís-fjölgun.

Og hér er því verkefni; varla skerum við niður beinin þegar vitað er hvar fituna er að finna …

-SER.

No Comments

Föruneyti þingsins

Röðull að rísa í austri - með erfiðismunum. Þingmannaförinni heitið í öfugum krók fyrir norðausturhornið; Vopnafjörður í glannabítið og þaðan Melrakkinn.

Haft á orði í föruneyti þingsins að ferðir þessar hafi verið gassalegri á árum áður. Enda sosum hellt upp á menn á hverjum bæ og staldrað lengi við fyrir vikið. Gallerí skörunganna næsta skrautlegt og sjaldnast friður í hópnum. Rifjað upp að erfiðlega hafi gengið að raða mönnum saman í bíla í þenna tíð; Sólnes hafi ekki getað verið með þessum og Valgeirsson ekki hinum - og svona hafi þetta gengið í brösum.

Nú er siður annar. Og gildir einu með hverjum setið er í bíl. Svo fremi vegurinn sé fram undan …

-SER.

No Comments

Samferða

Annasömum kjördæmadegi að ljúka. Sosum eins og tíu tíma fundalota með öllum sveitarfélögum Austurlands, sunnan Hellisheiðar. Frábær dagur í samvistum hugmyndaríkra heimamanna - og í föruneyti samstilltra þingmanna, ja … svo að segja.

Lítið reyndar um hnútuköst. Furðanlega afslappað allt saman. Og nánast prúðmennska á öllum þessum fundum með Borgfirðingum, Seyðfirðingum, Fljótsdælum, Breiðdælum, Héraðsbúum, Fjarðabúum og Djúpavogsmönnum … en hvítnaði þó lítillega á hnúum með forkólfum útgerðar og álvers. Kannski við því að búast. Það geta jú ekki allir borgað brúsann!

Í anda umhverfsiverndar samnýttum við bíla í dag. Við Möller með framsóknarbræður í aftursætinu. Samgönguráðherra náttúrlega við stýrið. Fínn túr. Og venjulegar kritur látnar lönd og leið. En miklu fremur dáðst að landslagi og sögum hver annars. Pólitík getur nefnilega á stundum verið vinaleg. Jafnvel blíð …

Borðuðum hver sinn bitann í Shellskálanum á stöðum Egils að loknum Fagradal. Birkir fékk sér kótilettur í raspi. Við hinir alþjóðlegri með frönskum og sósu.

Afréðum án umhugsunar að sofa svo hver í sínu lagi …

-SER.

No Comments

Þingmannaferð

Þingmenn á faraldsfæti þessa dagana. Við tímenningarnir í norðaustrinu erum staddir á Héraði og munum þræða firðina síðdegis.

Líklega er einn allra mikilvægasti partur þingmennskunnar að heyra hljóðið í heimamönnum; finna í návígi hvar skóinn kreppir og hvar möguleikanna er að leita.

Þetta verður þriggja daga ferð. Okkur semur ágætlega. Engir pústrar. Og reyndar æði sérstakt hvað vel fer á með þingmönnum ólíkra flokka þegar þeir komast út úr gráa húsinu við Austurvöll …

-SER.

No Comments

Aðpartheid atvinnulífsins

Sérhagsmunagæska Samtaka arvinnulífsins ríður ekki við einteyming. Höfuðáhersla forkólfanna er að standa vörð um myglað og meingallað kvótakerfi, sem eitt og sér gaf af sér ógeðfelldustu eignatilfærslu og byggðaröskun íslenskrar spillingarsögu.

Það skal halda í misskiptinguna. Það skal halda í sérréttindin. Það skal halda í apartheid atvinnulífsins.

Stöðugleikasáttmálanum má hæglega fórna. Kvótagróðanum verður ekki skipt úr fyrir einhverja almenna sátt sem alla varðar. Það verður að vernda rétt þeirra fáu fyrir væli þeirra mörgu.

Samtök atvinnulífsins sýna náttúrlega sitt rétta andlit þegar að þeim er sótt. Þau mega ekki heyra á það minnst að hreyft sé við sérhagsmunum. Allt tal í þá veru er umsvifalaust afgreitt sem árás á íslenska atvinnulífið eins og það leggur sig. Endurskoðun á einu útjaskaðasta aðalsmannakerfi álfunnar er líkt við landráð. Heyr á endemi. Þetta er sannkallað afturhald. Þetta er alvöru íhald. Og svei mér þá; þetta eru hagsmunasamtök og varðhundar yfirstéttarinnar í landinu sem á helst ekki að borga skatta til jafns við aðra, hvað þá að hún missi áunnið forskot í atvinnuréttindum.

Sumt breytist nefnilega ekki.

Að heill stjórnmálaflokkur skuli svo ennþá vera sammála þessu garnagauli ofalinna græðgissjónarmiða … er kapituli út af fyrir sig …

-SER.

No Comments

Kóngur og peð

Líkingamál er vandmeðfarið. Og getur hæglega komið upp um menn, svo og stefnur þeirra.

Heyrði sjálfstæðismenn fara mikinn á Alþingi í dag; stjórnvöld væru ægileg og ætluðu ekki einu sinni að verja peðin í landinu!

Já, peðin í landinu. Og hér áttu sjálfstæðismenn við sjálft fólkið á Ísalandi.

Sem að þeirra mati er ígildi peðs.

Gott og vel. Þá vitum við það …

En hvar er kóngurinn og hvar er drottningin? Eru þau kannski ennþá ígildi flokksins?

Spyr ég, sjálft peðið í taflinu …

-SER.

No Comments

Bakki á dagskrá

Viljayfirlýsing stjórnvalda og heimamanna í Þingeyjarsýslum um orkuöflunarfélag, sem undirrituð var á Húsavík í dag, er hvatning til dáða. Þar er leitað nýrra leiða við að rannsaka til hlítar orkuna í þágu heimamanna - og horft til nýrra fjárfesta, svo sem lífeyrissjóðanna.

Það sem vekur auðvitað mesta athygli er að yfirlýsingin er afskaplega berorð í ljósi samstarfsflokks Samfylkingarinnar í ríkisstjórn. Hér er enginn pólitískur feluleikur:

“Með viljayfirlýsingu þessari er stefnt að því að skapa þær aðstæður að þann 1. október 2010 verði allri nauðsynlegri forvinnu lokið þannig að unnt verði að ganga til samninga við stóran orkukaupanda / orkukaupendur um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum.”

Og skilaboðin er án nokkurrar tæpitungu:

“Lögð verði áhersla á að orkan sem er að finna á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum verði nýtt til að skapa nokkur hundruð bein varanleg störf í Þingeyjarsýslum.”

Hér þarf ekkert pólitískt þýðingarforrit. Bakki er kominn á dagskrá …

-SER.

No Comments

Pólitísk eign

Ég hef gagnrýnt sjálfstæðismenn á þingi fyrir að vilja eigna sér fyrirvarana sem samþykktir voru um Icesave í sumar. Ekki síst í ljósi þess að þeir sátu svo hjá í málinu öllu þegar upp var staðið.

Framsóknarmenn voru ekki síðri á þinginu í dag. Fyrirvararnir eru þeirra …

… sem þeir greiddu svo atkvæði gegn, eins og menn muna.

Þeir sömdu sumsé fyrirvarana sem þeir voru svo á móti.

Og ætluðu reyndar aldrei að styðja. Þótt þeir “ættu” þá.

Ég skil mjög vel ríka og einbeitta og áberandi þögn stórs hluta þingflokks Framsóknarflokksins í málinu, nú þegar hyllir undir endalok þess …

-SER.

No Comments

Eignasýsla hugmyndanna

Sjálfstæðismenn reka nú um stundir eignasýslu hugmyndanna - á eigin kennitölu.

Fyrirvararnir í Icesave-málinu eru sumsé “þeirra” - og kannski … ef vera kynni, örfárra þingmanna Vinstri grænna. Annarra ekki.

Heyr á endemi. Þetta er auðvitað kjánaleg móðgun við alla þá þingmenn sem lögðu á sig hundruð klukkustunda starf, á formlegum og óformlegum fundum fjárlaganefndar, efnahags- og skattanefndar og utanríkismálanefndar Alþingis þar sem fyrirvararnir voru smíðaðir. Þetta er móðgun við allt starfsfólk nefndasviðs Alþingis, sem ásamt fjárlaganefnd var í stofufangelsi Icesave-málsins í allt sumar. Þetta er líka móðgun við þá lögmenn sem lögðu á sig þrekvirki á síðustu metrunum og vörðu hverri nóttunni af annarri í nákvæmnisvinnu með fjárlaganefndarfólki.

Og hvernig höndluðu svo sjálfstæðismenn þessa fyrirvara, sem “þeir” eigna sér helst einum?

Á endanum afréðu þeir að styðja ekki fyrirvarana “sína” …

Á endanum guggnuðu þeir …

Á endanum sátu þeir hjá …

Það er nú öll ábyrga pólitíkin í dag - að sitja hjá … og horfa helst undan …

-SER.

No Comments

Svekkelsi

Til þess að gera undarleg stemmning í þingsölum þessa dagana.

Rétt eins og stöku stjórnarandstæðingur sé með böggum hildar.

Það er stunið og höfuð sökkva í axlirnar. Eiginlega fýla.

Og altént svekkelsi …

Það er nefnilega að rofa til hjá ríkisstjórninni. Og mjög líklega í efnahag þjóðarinnar. Gott ef góðu fréttirnar eru ekki heldur fleiri en þær vondu þessa dagana …

… sem getur þótt vont á stöku stað …

-SER.

No Comments