Archive for September, 2009
Sameiningarhrina
Posted by ser in Uncategorized on September 27th, 2009
Sat um helgina ársfundi Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) og Eyþings, sem er samsvarandi félag fyrir Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. Fyrrnefndi fundurinn á Seyðisfirði og sá síðarnefndi á Mývatni, sem út af fyrir sig er hamingja og nautn.
Athyglisvert að á báðum fundum var ríkur áhugi á enn frekari sameiningu sveitarfélega. Fyrir austan eru menn hvað róttækastir í hugsun - og þekkja svo sem þróunina; 35 sveitarfélög voru þar fyrir 40 árum og 8 nú um stundir, en verða tvö ef ekki bara eitt á árum komandi … það var alént rómurinn í Herðubreið á föstudag. Já, helst bara eitt …
Sveitarfélög Eyþings eru nú 14 en gætu hæglega orðið tvö eftir Vaðlaheiðargöng; Eyjafjörður og Þingeyjarsveitir saman ásamt Mývatni - og Norðurþing og austur úr í hinni kommúnunni. Róttækt en raunsætt.
Norðausturkjördæmið yrði sumsé þrjú sveitarfélög í stað 22ja samkvæmt þessari hugljómun af ársfundum sambandanna. Það er stökk, fremur en skref … og svo sem í samræmi við njósnir manns úr öðrum fjórðungum; sameining allra sveitarfélaga á Snæfellsnesi er nú rædd, svo og sameining allra sveiyarfélaga á Vestfjörðum …
Landið er að breytast - og samstaða þessa mikilvæga stjórnsýslustigs meiri en nokkru sinni … nema náttúrlega á suðvesturhorninu, þar sem ekkert má sameina frekar en fyrri daginn, enda fjarlægðin þar á milli staða mæld í gangstéttum …
-SER.
Á sama tíma að ári
Posted by ser in Uncategorized on September 25th, 2009
Varla er það tilviljun að akkúrat og nákvæmlega ári eftir að Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður gjaldþrota Glitnis gekk á fund Davíðs Oddssonar, bankastjóra gjaldþrota Seðlabanka … gengur brottrekinn Davíð Oddsson inn í hlutafélag kvótakóngsins Þorsteins Más Baldvinssonar og tekur upp penna; eins og nýráðinn túskildingur.
Varla …
-SER.
Vegahristingur
Posted by ser in Uncategorized on September 25th, 2009
Hristist um vegi og vegaleysur í norðausturkjördæmi liðlangan gærdaginn með á að giska sjö þingmönnum. Förum nýja veginn vestanmegin Jöklu þar sem skiptast á hraunbreiður, sandar og lyngmóar. Ægifagurt. Og héldum austur nýja veginn yfir Hófaskarð á Sléttu sem er ekki síður fagurt vegastæði. Áðum vitaskuld á Gunnarsstöðum og fengum þar brýningu í bland við annað mix. Nýja þjóðleiðin upp Vesturárdalinn í Vopnafirði er einnegin að taka á sig mynd; mikil lyftistöng fyrir plássið sem hefur þurft að sætta sig við einbreiðan kerruslóða til þessa. Enduðum svo vegayfirlitið í brekkunni við Skjóldólfsstaði sem sneiðir fjallað ofan í fallegum boga.
Þetta hristi þingmannahópinn vel saman …
-SER.
Nýir ritstjórar
Posted by ser in Uncategorized on September 24th, 2009
Þá er það ljóst. Nýir ritstjórar Mogga verða tveir; Davíð nokkur Oddsson og Haraldur Johannessen sem ritstýrt hefur Viðskiptablaðinu um skeið.
Þetta verður vitaskuld afturhvarf til flokksblaðanna - og heldur betur hert á sérhagsmunagæslunni.
Og spurning hver í raun stýrir Flokknum …
-SER.
Yfirreið um kjördæmið
Posted by ser in Uncategorized on September 24th, 2009
Lagður af stað með rífri helft af þingmannahópi NA-kjördæmis austur fyrir heiði. Skoðum vitaskuld fyrirhugaðan munna Vaðlaheiðarganga, en svo verður ekið sem leið liggur austur á Sléttu og þaðan niður á firði.
Með í för eru þingmenn Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna, en Framsóknarbræður vantar.
Ferðalög um héraðið eru einn mikilvægasti partur þingmennskunnar að mínu viti, þó ekki sé til annars en að nema hjartslátt almennings. Það er fólkið sem á að segja okkur þingmönnum fyrir verkum …
-SER.
“Eitthvað annað”
Posted by ser in Uncategorized on September 23rd, 2009
Einhverra hluta vegna er það svo að álver á Bakka er ekki jafn sjálfsagt og álver í Helguvík. Sem er skrýtið. Nóg er af grænni orku fyrir Bakkann á meðan menn leita að grárri orku fyrir Helguvík.
Í umræðunni um álver á Bakka er eilíflega bent á “eitthvað annað” af þeim sem helst hata álver. Það skyldi þó aldrei vera svo að þetta “annað” sé álverið í Helguvík; orkunni nyrðra verði dælt suður.
Það væri eftir öðru …
-SER.
Mannamál að nýju
Posted by ser in Uncategorized on September 22nd, 2009
Byrja með þátt minn Mannamál að nýju í kvöld … á nýjum stað, altso ÍNN. Óruglaður og ókeypis, aðra hverja viku.
Hef alltaf verið svolítið skotinn í þeirri stöð á síðari misserum, enda dagskrárgerðin ekkert alltof upptekin af sjálfri sér.
Þetta verður pólitík í bland við þjóðmál, menning í graut við sögu og þjóðfræði og svona sitt lítið af hverju sem er og gerist.
Annars á fjórflokkurinn hver sinn stað í dagskrá ÍNN í vetur; Tryggvi Þór fyrir íhaldið, Birkir fyrir frammara og Lilja Móses fyrir komma … nefndi það við Ingva Hrafn að vit væri í því að skella þessu liði saman í einn þátt vikulega og spyrja að leikslokum, en kannski er það ekki vit …
Byrja á ímynd Íslands í kvöld, ekkert minna …
Sjáumst …
-SER.
Haustlitaferð
Posted by ser in Uncategorized on September 22nd, 2009
Sótti um nýliðna helgi kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Ökuferðin frá höfuðborg hins bjarta norðurs austur í Öxarfjörðinn var dásamleg - og sosum ekki ónýtt að hafa konuna sína sér við hlið á endalausri þeysisreið um kjördæmið. Þingstaður sumsé í Lundi í austanverðum firðinum; pólitískt fjör og eindregni og baráttuhugur í fólki. Já, gaman að vera til …
En því skrifa ég þetta einkum að ökumaðurinn ég þurfti á tíðum að hægja á mér á leiðinni að og frá Lundi. Varla er landið fallegra en á haustin; roðinn í loftinu er engu líkur, svo og stillan og værðin yfir lundum og melum. Það er svo að segja ekkert fegurra í heiminum en að hverfa um stund inn í ævintýri íslenska haustsins.
Og þetta þarf að markaðssetja með lagni. Lengja ferðaárið. Íslensk hauststilla. Litríkasta ljósmyndaveisla heims … Þar sem fegurð jarðar fær nýja merkingu …
-SER.
Andi sögunnar
Posted by ser in Uncategorized on September 9th, 2009
Óvíða líður mér betur en í rótgrónum borgum og bæjum þar sem andi sögunnar svífur þægilega á mann. Virðingin fyrir því liðna er prýði hvers staðar og sést meðal annars í vel varðveittum húsum og brúm, görðum og gosbrunnum, stígum og styttum.
Í mörgum helstu borgum Evrópu hefur kóngum og drottningum og stríðshetjum verið reistur minnisvarði á svo að segja hverju götuhorni. Íslendingar státa af fáum slíkum, ef nokkrum, en eru þess fúsari að gera skáldum sínum hátt undir höfði. Það er vel. Meitluð skáldin sóma sér vel í almenningsgörðum, en hér má … að mínu viti … horfa betur yfir sviðið. Hvað með marga okkar helstu tónlistarsnillinga? Já, Rúnar Júl í Keflavík, Hauk Morthens framan við Naustið, Múlabræður eystra, Ingimar Eydal framan við Sjallann. Svo fáein augljós dæmi séu nefnd.
Oft og tíðum hefur mér fundist Íslendingar fremur feimnir við sögu sína. Hvers vegna í ósköpunum er ekki stytta af Snorra Sturlusyni í sjálfri höfuðborginni, helstum rithöfunda okkar, já og kollega hans Halldóri Kiljan Laxness. Hvers vegna er stytta af Gísla arkitekt Halldórssyni í Laugardalnum en engin af Vilhjálmi Einarssyni, Alberti Guðmundssyni og Gunnari Huseby. Og hvaða kvenfyrirlitning ræður því að ekki er enn búið að reisa styttu af fyrsta kvenforseta heims í elsta lýðræðisríki veraldar! Og afhverju engin af Guðríði Þorbjarnardóttur, sigldustu konu heims á sínum tíma. Og hvað á það að þýða að engin stytta hefur verið reist til að minnast stærstu sigra okkar í stríði - já, til heiðurs skipherrum okkar í Landhelgisstríðunum og þeirra styrku mönnum.
Að ekki sé talað um Helga Hóseasson …
-SER.
Þjóðarsátt um grunngildi
Posted by ser in Uncategorized on September 8th, 2009
Það er út af fyrir sig óþolandi að góðæri síðustu ára hafi ekki verið notað til að treysta innviði velferðarkerfisins. Stjórnvöld gleymdu sér svo að segja algerlega. Velmektartíminn var þvert á móti notaður til að vekja stoðir viðskiptalífsins. Það mátti ekkert trufla gróðahyggjuna.
Vandaverkin blasa við í ríkisfjármálum þjóðarinnar. Það verður ekki léttaverk fyrir þingmenn að skera samneysluna inn að beini. Í því efni verða menn að standa sig eins og menn - og þora að skera niður óþarfann, en láta hitt í friði sem varðar mannréttindi.
Það skal aldrei verða svo að niðurskurður komandi missera bitni hlutfallslega mest á þeim sem minnst hafa borið úr býtum á síðustu árum. Þar á ég sérstaklega við börn með sérþarfir, hvort heldur er í skólum eða tómastundastarfi - og þar nefni ég líka langveika og fatlaða og þann hluta gamalmenna sem búa við sístu kjörin.
Hér þarf í reynd þjóðarsátt um grunndgildi.
Hér þarf þverpóltíska sýn á verkefnið: Hvað ætlum við sannarlega að láta í friði … hverjum verður klárlega hlíft?
Það er í reynd furðulegt að við upphaf nýrrar aldar, sem kennd hefur verið við mannauðinn, að hlutskipti þeirra sem ríkisvaldið skammtar lífsviðurværi úr krepptum hnefa, skuli enn vera skiptimynt í niðurskurðaráformum. Á mannamáli heitir það hugleysi að þora ekki að skera niður það sem raunverulega hefur þanist út í ríkisfjármálum síðustu ára, en sækja þess heldur vasa litla mannsins.
Það er mikilvægt að niðurskurðarvaktin verði staðin af viti. Kreppuna eiga þeir ekki helst að þola sem síst og alls ekki leiddu til hennar …
-SER.