Archive for Ágúst, 2009

Yfirlýsing

Að gefnu tilefni vil ég taka eftirfarandi fram: Að kvöldi fimmtudagsins 20. ágúst sl. flutti ég ræðu á Alþingi um Icesave-málið. Svo sem sjá má af vefupptökum Alþingis var ræðan fyrirfram skrifuð og vel undirbúin. Fyrr um daginn hafði ég tekið þátt í golfmóti og setið kvöldverð að því loknu, þar sem ég fékk mér léttvín með matnum. Áður en kvöldverði lauk yfirgaf ég samkvæmið til þess að vera við umræðu í þinginu. Ég flutti ræðu mína seint um kvöldið og tek fúslega fram að þar var ég þreyttur og reiður vegna linnulausra frammíkalla stjórnarandstöðu, en vil leggja áherslu á að ég kenndi ekki áhrifa af því víni sem ég hafði drukkið fyrr þennan dag. Þess vegna hef ég svarað því neitandi þegar það hefur verið borið upp á mig að ég hafi verið ölvaður þetta kvöld.
Eftir á að hyggja voru það engu að síður mistök af minni hálfu að mæta í þingið eftir að hafa bragðað áfengi. Á því biðst ég velvirðingar.
Að ósk eins þingmanns úr stjórnarandstöðu verður þetta mál til umfjöllunar í forsætisnefnd og mun ég bíða afgreiðslu hennar áður en ég tjái mig frekar um málið.

-SER.

No Comments