Archive for Júlí, 2009
Pólitisk ósk
Posted by ser in Uncategorized on Júlí 15th, 2009
Í pólitík þurfa menn einatt að óska sér. Og sumt rætist, annað ekki.
Eins og gengur í lífinu.
Og þar af leiðandi er ég að alvarlega að hugsa um að skrá mig í hóp á samskiptasíðunni Facebook þess efnis að Davíð Oddsson snúi aftur í stjórnmál.
Á umræddri síðu segir, svo gott sem varfærnislega: „Hann virðist vera eini maðurinn með bein í nefinu og með allt á hreinu varðandi skuldbindingar Íslands og ber hag Íslands fyrir brjósti,“ segir á síðunni.
Hér er náttúrlega átt við Davíð. Tæpitungulaust.
Já, við keppinautar Sjálfstæðisflokksins þurfum nú á öllu okkar liði að halda. Líka Davíð …
-SER.
Starfslaun blaðamanna
Posted by ser in Uncategorized on Júlí 14th, 2009
Áhugamaður er ég um fjölmiðla - og hef svo sem starfað á þeim nokkrum um árabil.
Og af því að ég þarf stundum að taka hattinn ofan, vegna þess sem vel er gert, verð ég að lofa blaðamenn DV þessa dagana.
Mér sýnist þeir einir hafa almennilega áhuga á útrásarglæfrunum og sinni þeim af viðvarandi áhuga og metnaði til að upplýsa og fræða fámenna þjóð. Þögnin um brennuvarga bankakerfisins á svokölluðum “stórum blöðum” þessa lands er næsta grátbrosleg. Eru krosseignatengslin þar enn að þvælast fyrir mönnum? Auðvitað er það eðlileg spurn. Í besta falli þurfa þau blöð að taka sig á. Það er enda eftir nógu að slægjast - eins og sést hefur í hverju eintaki DV af öðru síðustu daga.
Ef til vill þarf hér að hvetja menn enn betur til dáða. Og hér tillaga - og kannski þingsályktunartillaga síðar meir: Ég legg til að blaðamenn, rétt eins og listamenn, komist á starfslaun hins opinbera - og fái skjól til að skrifa sig inn í þessar einar mestu svikamyllur Íslandssögunnar. Það á að hefja blaðamennsku á þann stall sem henni ber. Allt eins má líka hugsa sér borgarblaðamann, rétt eins og borgarlistamann, svo rótað sé enn betur í þeim viðkvæma ranni. Það er nefnilega svo að í menningarlegu samhengi skiptir metnaðarfull, ágeng og ábyrg blaðamennska sköpum fyrir inntak umræðunnar í hverju landi, svo og sjálfsmynd þjóða.
Oft var þörf, en nú er nauðsyn. Skóflum flórinn út með tiltækum ráðum. Og þorum umfram allt, fremur en að þegja …
-SER
DO
Posted by ser in Uncategorized on Júlí 6th, 2009
Davíð Oddsson er pólitískum andstæðingum sínum mikið lán. Gott væri að hann tjáði sig oftar. Og helst í breiðsíðum.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem á svona vin, þarf ekki á óvinum að halda …
-SER.
Sveittir sumardagar
Posted by ser in Uncategorized on Júlí 6th, 2009
Ég hef aldrei kvartað undan lestrarefni, enda fíkill á margt það besta sem sett hefur verið á blað, hvort heldur það er í bundu eða lausu máli.
Vandinn við Icesave-skýslurnar er að þær eru ekki skrifaðar á hrífandi máli, litteratúrinn er flatur, eins og deigur og fýldur mýrarpyttur.
En þetta mjakast í fjárlaganefnd; mótrökin og meðrökin hrannast upp við langborðið - og enn er beðið um meiri gögn og fleiri gesti. Þetta verða sveittir sumardagar … en þingið hefur gott af því.
Leyni því þó ekki, þegar ég horfi úr fundarherberginu, yfir á þykka veggi Landsbankans, að sú hugsun læðist oftar en ekki að mér að betur hefðum við aldrei einkavætt hann …
-SER.
Viðskipta … blaðamaður
Posted by ser in Uncategorized on Júlí 2nd, 2009
Sammála er ég félaga Agli Helgasyni á Eyjunni að ekki er mikil eftirsjá að Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins á miðvikudögum. Ég er forfallinn blaðalesari ..næsta sjúklegur, ef því er að skipta, en sísta efni blaðanna hefur jafnan birst í óskiljanlegum viðskiptafréttum; á stundum skrifaðar af klappliði gömlu ebidtu-kónganna.
Líklega er eitthvert mesta niðurlægingarskeið íslenskra fjölmiðla fólgið í fylgilaginu við íslenska fjárglæframenn, sem voru oft og tíðum skrifaðir upp til skýjanna, gagnrýnislaust og giska innihaldslaust. Hér verður þó vitaskuld að undanskilja einstaka blaða- og fréttamenn sem leyfðu sér að vera efins allan tímann - og fengu fyrir vikið færri boðsferðir til útlanda. Það alvarlega er hins vegar hve margir létu glepjast.
Eina ferð þáði ég, sem fréttastjóri Stöðvar 2. Þá var Eimskip að sigra heiminn og himinhvolfið. Avion hét það víst. Eignaðist eitt flugfélag fyrir hádegi og svo sem eins og tvö skipafélög síðdegis. Einhverjar frystigeymslur og hafnir voru keyptar í bríaríi á kvöldin.
Þetta var skrýtin ferð um Bretland, Holland og þaðan aftur um Bretland og Írland og gott ef ekki Skotland. Já, einhver hringaveitleysa á fyrsta farrrými með heilli fragt af viðskiptablaðamönnum og fjárfestum í selskinnsjökkum. Gott að borða. Gott að drekka.
Ég gerði enga frétt þegar heim kom, blessunarlega - og komst einhvern veginn aldrei á þetta undarlega stig … að verða viðskiptablaðamaður.
Viðskipta … blaðamaður.
Já, kannski er það akkúrat málið. Þetta fer ekki saman …
-SER.
Áhættan og óvissan
Posted by ser in Uncategorized on Júlí 1st, 2009
Líklega er illskásti kosturinn í Icesave-deilunni að ganga að þeim nauðasamningi sem liggur fyrir, þótt það sé út af fyrir sig ömurlegt. Altént verður að semja - og ég er hræddur um að landsmenn bifi Bretum og Hollendingum ekki lengra, samanber fylgiskjöl samningsins.
Upptaka samningsins er áhætta og óvissa. Hún gæti hæglega þýtt verri samning, svo sem hærri vexti og styttri afborgunarfrest - en hún þýðir jafnframt framhald óvissunnar. Á meðan verður ekki byggt upp, ekki endurreist, ekki slegið í klárinn.
Þolum við það?
Hvað kostar það þjóðina að endursemja … ef það er á annað borð hægt? Hvað kostar biðin eftir nýjum samningi? Í krónum talið, ímynd og pólitík …
Meginspurningin er nefnilega þessi: Hvor kosturinn er okkur ofviða; að eyða óvissunni eða teygja á henni …
-SER.