Archive for June, 2009

Styrking

Athyglisvert er að styrking krónunnar, sem varð í kjölfar skattahækkananna í síðustu viku, hafi gert meira en að vega upp vísitöluhækkanirnar sem af þeim hlutust. Já, athyglisvert … svona í ljósi umræðunnar, innan þings sem utan.

Auðvitað er lykilatriði efnahagslífsins að styrkja krónuna með kröftugum og ábyrgum stjórnvaldsaðgerðum og lækka verðbólgu og vexti …

-SER.

No Comments

Útlenskt

Von er til þess að efnahagsreikningur ríkisbankanna liggi fyrir í þessum mánuði. Brýnt er að sjálfstraustið fari að leka af störfum þessara mikilvægu fjármálafyrirtækja – og þau taki til kostanna í uppbyggingu atvinnulífsins.

Einn meginliðurinn í uppbyggingu bankakerfisins er að koma því í eigu traustra félaga. Einkavinavæðingin er fullreynd. Jafnvel Íslendingar – per se – eru fullreyndir. Hér verður að horfa til erlendra stórfyrirtækja. Nokkrir helstu erlendu kröfuhafar bankanna ættu þar að vera í lykilhlutverki. Ein skjótvirkasta leiðin til að endurreisa atvinnulífið er að tryggja erlendar lánalínur bankanna með erlendri eignaraðild.

Þetta þarf að gerast strax. Þetta þarf altént að gerast í sumar. Og í því efni er rétt að muna að við þurfum tvo þokkalega sterka viðskiptabanka, ekki þrjá. Og mín vegna má ríkið eiga áfram einhvern part úr þessum bönkum – tímabundið – en helstu eigendur þeirra eiga að vera erlendir.

Eða treystir einhver lengur Íslendingum til þess að einkareka umfangsmikla viðskiptabanka …

-SER.

No Comments