Archive for May, 2009

Mikilvægt aðhald

Réttlátt og eðlilegt finnst mér að forseti Alþýðusambands Íslands láti stjórnvöld heyra það … með tilhlýðilegum tilþrifum. Hann telur að forkólfar ríkisstjórnarinnar hafi klúðrað kynningu á þeirri aðstoð sem heimilunum stendur til boða. Vel má taka undir þessi orð forsetans. Stjórnvöld hafa einmitt komið til framkvæmda fjölmörgum leiðum til að rétta hlut heimilanna – og það er miður að aðgerðirnar til stuðnings skuldsettum heimilum – sem eru í fimmtán liðum – hafi ekki skilað sér heim til þeirra sem helst þurfa að skilja.

Kannski veldur hér nokkru að agerðapakki stjórnvalda er engin töfralausn – og hvað þá dreginn upp úr hatti með sjónhverfingum. Stuðningspakkinn er, ef því er að skipta, hversdagslega raunsær. Hann tekur m.a. til skuldajöfnunar verðtryggða lána sem getur kallað á allt að 20 prósenta lægri greiðslubyrði en áður hefur þekkst. Hann fjallar um frystingu gengisbundinna lána og skuldajöfnun þeirra sem getur þýtt allt að 50 prósenta lægri greiðslubyrði en ella. Og pakkinn geymir 66 prósenta hækkun vaxtabóta sem í tilviki meðaltekjufólks veit á tæplega 500 þúsunda króna tekjuhækkun á ári. Hér er aðeins þrennt nefnt af fimmtán liða lista.

Aðalatriðið er þó þetta. Stjórnvöld mega ekki loka eyrunum fyrir óþreyju almennings. Stjónvöld mega ekki afgreiða reiði og óþol alþýðunnar sem eitthvert tuð. Það mega þingflokkar ekki heldur gera. Krafa almennings til nýs þings er að lofta út og sperra eyrun. Eini raunverulegi mælikvarðinn á umræðuna í samfélaginu – og líðan samfélagsins – er fólkið sjálft.

Ef kynningunni á heimilispakkanum hefur verið klúðrað, sem vel má vera, verður einfaldlega að kynna pakkann upp á nýtt … og, eins og forseti ASÍ segir, ráða fleira fólk til að fylgja honum eftir. Hér dugar síst að loka augunum fyrir málefnlegri gagnrýni – og því síður að taka fyrir eyrun …

-SER.

No Comments