Archive for Maí, 2009
Þverpólitík
Posted by ser in Uncategorized on Maí 29th, 2009
Mér sýnist breið samstaða vera að myndast á Alþingi um að endurskoða verðtryggingarkerfið. Illnauðsynlegar hækkanir á bifreiðaeldsneyti, tóbaki og víni, eiga ekki að íþyngja heimilunum umfram það sem þær sjálfar gera.
Líklega er það svo að áttatíu prósent íbúðareigenda reykja ekki. Af hverju í ósköpunum á þessi hópur landsmanna að óttast verðhækkanir á sígarettum?
Nú er lag að breyta. Og krafan sýnist mér vera orðin þverpólitísk …
-SER.
Skorið niður - sumstaðar
Posted by ser in Uncategorized on Maí 29th, 2009
Aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna hefur verið skorið niður. Sjálfur lagði ég til þann táknræna sparnað á tímum aðhalds og ráðdeildar í ríkisrekstri. Og sparnaðurinn er genginn eftir. Gott og vel.
Á sama tíma og aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna var komið á, fengu formenn stjórnarandstöðuflokkanna leyfi til að ráða sér aðstoðarmenn. Ekkert hefur verið hróflað við því kerfi. Og heyrist þar hvorki hósti né stuna.
Og svo hitt. Á sama tíma og aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna var sett á laggirnar, var starfskostnaður þéttbýlisþingmanna hækkaður. Ekkert hefur verið rætt um að lækka hann aftur, enda þótt hann hafi verið réttlættur sem sárabót fyrir höfuðborgarþingmenn, sem margir hverjir sáu ofsjónum yfir aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmannanna. Hækkun starfskostnaðarins var sumsé sértæk dúsa fyrir suðvestrið.
Við þurfum að draga úr kostnaði. Það er sjálfsagt mál. Landsbyggðarþingmenn hafa riðið á vaðið. Er það svo að hinir þingmenn landsins, formenn jafnt sem fótgönguliðar, hiki á bakkanum? Ég bíð eftir svari …
-SER.
Aðstoðarmenn formanna
Posted by ser in Uncategorized on Maí 27th, 2009
Ekki sýti ég aðstoðarmannakerfi óbreyttra landsbyggðarþingmanna. Sjálfur lagði ég það enda til í þingflokki mínum að kerfinu yrði kastað fyrir róða, en með því næðist táknrænn sparnaður. Tillaga mín gekk eftir.
Nú er auðvitað spurt hvort formenn stjórnarandstöðuflokkanna vilja sýna sama fordæmi, en þeir eru vel að merkja með heilu flokksskrifstofurnar á bak við sig? Þessum formönnum voru úvegaðir aðstoðarmenn á sama tíma og þingmönnum stóru dreifbýliskjördmanna. Vilja þeir sama táknræna sparnaðinn?
Ég spyr …
-SER.
Þriðja leiðin
Posted by ser in Uncategorized on Maí 27th, 2009
Afleiðingar efnahagshremmninganna á Íslandi eru vitaskuld margs konar. Menn dvelja einkum við tvennt; skera verður niður ríkisútgjöld og afla verður frekari tekna með skattheimtu. Þetta hefur verið kölluð blönduð leið.
Þriðja leiðin má ekki gleymast. Hún er sumsé sú að koma hagvextinum á skrið, sem sjálfkrafa skilar ríkissjóði umtalsverðum tekjum - og líklega mesta ágóðanum þegar þessar þrjár leiðir eru skoðaðar nánar.
Hér dugar helst að glæða erlenda fjárfestingu. Og þar er mest um vert að laga regluverkið svo Ísland standi framar í samkeppnishæfni en verið hefur. Síst af öllu þarf nú þröngsýna atvinnustefnu, hvað þá fordómafulla …
-SER
Samviskuspurning samfélagsins
Posted by ser in Uncategorized on Maí 26th, 2009
Samviskuspurning samfélagsins er meðal annars þessi: Verða starfsmannalán hjá gömlu stórfyrirtækjunum á Íslandi afskrifuð? Ég nefni Exista. Sagt er að stjórnendur þess firma hafi lánað eigin starfsmönnum um tvo milljarða til að kaupa úr því part. Munu kröfuhafarnir afskrifa þessar skuldir?
Það er vægast sagt brýnt að fylgjast með örlögum þessara “létt-skulda” samfélagsins …
-SER.
Miðstýring
Posted by ser in Uncategorized on Maí 26th, 2009
Spurningin í menntasamfélaginu er akkúrat þessi eftir nýja skýrslugerð erlendra sérfræðinga um íslenska háskólakerfið: Verður háskólakennslu á landinu miðstýrt frá Reykjavík á næstu árum og áratugum? Já, miðstýrt úr Vatnsmýrinni? Hvort báknið sínu megin Reykjavíkurflugvallar?
Og er þingvilji til þess …
-SER.
M útgerð
Posted by ser in Uncategorized on Maí 26th, 2009
Varla er ég einn um þá skoðun að Morgunblaðið sé komið í útgerð?
Varla.
Blaðið svitnar þessa dagana af bræðingi út í stjórnarflokkana og hugmyndir þeirra um innköllun veiðiheimilda.
En gott og vel … þetta er myndarleg útgerð …
-SER.
Þjóðarsátt um grunnþjónustu
Posted by ser in Uncategorized on Maí 22nd, 2009
Eitt mikilvægasta verkefni í aðhaldsaðgerðum stjórnvalda á næstu mánuðum er að skapa þjóðarsátt um grunnþjónustuna í samfélaginu; þjóðarsátt sem lifir lengur en eitt kjörtímabil. Hér á ég við mannsæmandi þjónustu við þá sem höllustum fæti standa hverju sinni, hvort heldur er sakir fjárhags, fötlunar eða langvarandi sjúkdóma. Kreppan er ekki þessu fólki að kenna.
Það er út af fyrir sig merkilegt hvernig stjórnvöld notuðu góðærið. Akkúrat ekki var það notað til að treysta velferðarkerfið í sessi.
Það gengur ekki að yfirvofandi niðurskurður leggist flatur á allt velferðarkerfið. Það gengur heldur ekki að sá hópur landsmanna, sem býr við minnstu lífsgæðin, þurfi eilíflega að óttast um hag sinn í hvert sinn sem stjórnvöld brýna hnífinn. Þess vegna þarf þjóðarsátt um grunnþjónustu samfélagsins … þverpólitíska sáttagjörð sem byggir á sæmd og grunndyggðum mannlífsins. Það eru nefnilega liðir í útgjöldum ríkisins sem eiga að njóta friðhelgi … og ekki bara stundum, heldur alltaf …
-SER.
Uppstigning
Posted by ser in Uncategorized on Maí 21st, 2009
Það er Uppstigningardagur, sem er, út af fyrir sig, alveg ágætis frídagur … en vissulega mætti hann vera nær helginni. Hann er stakur, en þó ekki einstakur.
Sumsé … aldrei hef ég skilið þá áráttu íslenska almanaksins að kljúfa vinnuvikuna með frídögum sem hæglega má flytja að næstu helgi. Uppstigningardagur er einn eirra … og svo sem engin goðgá að hreyfa lítillega við honum. Eins er með Sumardaginn fyrsta, sem stjörnufræðinnar vegna ber upp á fimmtudag, ár eftir ár.
Umburðarlyndið á að breyta þessu … og eins hinu; sem er að koma á sumartíma á Íslandi, færa klukkuna jafnvel fram um tvær stundir á sumrin. Grilla klukkan sjö í fimm-veðri. Þjóðfélagið myndi taka kipp - í menningu, verslun og viðskiptum … svo og náttúrlega heimilislífi og tómstundum …
Ég er ekki frá því að beri upp tillögu þessa efnis á Alþingi … og þá klárlega ekki fyrsti þingmaðurinn í þeirri baráttunni …
-SER.
Aðstoðarmenn þingmanna
Posted by ser in Uncategorized on Maí 20th, 2009
Ég hef lagt það til við þingflokk Samfylkingarinnar að aðstoðarmannakerfi þingmanna í dreifbýliskjördæmunum þremur verði lagt niður - og til vara, að það verði endurskoðað með það að leiðarljósi að spara fjármuni.
Þingmenn Norðvestur-, Norðaustur og Suðurkjördæmis hafa sem kunnugt er um nokkurra missera skeið haft rétt á launuðum aðstoðarmönnum í héraði, en hér er um nokkurt hálfkák að ræða, enda mega téðir póstar ekki vera í meira en 30 prósenta starfi.
Aðstoðarmannakerfið mun kosta ríkissjóð nálega 80 milljónir króna - og þótt hér verði ekki um stórkostlegan sparnað að ræða, ef af verður, er hann táknrænn.
Það er ágætt að þingmenn skeri fyrst niður í eigin ranni, áður en hnífnum verður beint í aðrar áttir …
-SER.