Archive for April, 2009
Krúsað um landið
Posted by ser in Uncategorized on April 19, 2009
Ég er á ferð með félaga Kristjáni Möller um Norðaustrið og Suðaustrið. Húsavík að baki á föstudegi; Kópasker, Raufarhöfn og Þórshöfn á laugardegi ásamt góðum slatta af Vopnafirði, en svo eru það suðurfirðirnir í dag. Yndisleg pláss, hvert með sínum sjarma.
Í öllu falli; þetta er dásamlegt sambland stjórnmála og þjóðar; sumsé það að fá þjóðmálin beint í æð. Svona á þetta að vera, helst á hverjum degi. Hlusta fremur en tala. Vitkast í návígi. Alþingi er ekki ræðupúlt. Alþingi á fremur að vera hlustunarpípa. Og. Já og; alþingi er ekki Austurvöllur … Alþingi er ekki 101 Reykjavík … Alþingi er Ísland … með öllu, eins og pylsan – og gott ef ekki rauðkáli líka eins og ég kynntist í norðlenskri æsku.
Altént. Ef menn velja pólitík, velja menn fólk, fyrirlestra og ferðalög. Ef ekki, eru menn ekki pólitík …
-SER.
Dæmisaga um orð
Posted by ser in Uncategorized on April 16, 2009
Merkilegt hvað orð geta farið fram úr sér í merkingu og inntaki. Mörg hver, saklaus og næsta innantóm, geta á einhvern furðulega hátt orðið illa sek og ofhlaðin. Ég nefni eitt orð sem dæmi; álver.
Til er sá partur þjóðarinnar sem gubbar hreinlega ef hann heyrir á þetta orð minnst; hann snarreiðist, þrútnar, öskrar. Bara við þetta eina orð. Aðrir yppta öxlum, lyfta brúnum í versta falli. Og líklega er æði stór hluti landsmanna sem gerir enga athugasemd við þetta orð; finnur ekki fyrir því í orðræðu hversdagsumræðunnar.
Jæja. Því er á þetta minnst að ég skoðaði aflþynnuverksmiðjuna á Krossanesi í dag, en þessi hundrað manna akureyska stóriðja verður komin á fullan damp í sumarlok – og allt útlit fyrir að hún verði snemmendis stækkuð um helming. Sumsé orkufrek risasmiðja á Akureyri, kannski tvöhundruð manna vinnustaður innan skamms, sem gæti sem best heitið áliðja, eða álver … altént var álþynnuverksmiðja fyrsta uppkast að nafni þessarar nýjustu stóriðju landsmanna.
Nafninu var sumsé breytt … og það í aflþynnuverksmiðju. Mikið sem það virkaði. Það er ekki áliðja á Akureyri. Nei, bara aflþynnuverksmiðja. Fyrir vikið hafa engin ungmenni keðjað sig utan á turna Akureyrarkirkju í álversmótmælum og pönkast þar á ráðlausri lögreglu.
Það vantaði nefnilega rétta orðið til að mótmæla … og svo sem ekkert fútt í því að mótmæla aflþynnum …
-SER.
Úr eigin vasa
Posted by ser in Uncategorized on April 15, 2009
Vitaskuld eiga þátttakendur í prófkjörum, á hverjum tíma, að upplýsa hverjir styrkja þá fjárhagslega – og hvaða upphæðum varið er í kosningabaráttuna. Það er eðlileg krafa. Og óþarft að slá úr og í. Sveigja af leið, hætta við, segja kannski …
Mér sýnist að mín prófkjörs- og kosningabarátta muni kosta vart undir hálfri milljón, allt frá því lagt var af stað snemma í febrúar að kosið verður um aðra helgi. Ég hef engin framlög fengið frá lögaðilum – og heldur ekki frá einstaklingum, nema konu minni, sem stjórnar heimilisbókhaldinu af kvenlegri ábyrgð og varúð. Ég nýt þess vitaskuld að vera á biðlaunum frá Stöð 2 – og þau kjör fela meðal annars í sér afnot af bíl á uppsagnartíma, sem er ekki ónýtt. Reikningar hlaðast samt upp. Og allra mest er þetta eyðsla í ferðalög, gistingu, mat og prentun – og assgoti sem þessir liðir telja hratt, þegar greitt er úr eigin vasa.
Fyrir hina forvitnu mun ég svo upplýsa um aleigu mína snemma í næstu viku. Vetrarvillur og sumarvillur. Bíla og báta. Málverk og mubblur. Já og skuldir og fjárhagsstöðu almennt, svo og fyrirtækjatengsl og hagsmunaflækjur – og enda þótt búast megi við heldur litlausri lesningu er ekki með öllu vonlaust að á stundum geti brugðið fyrir harla ljóðrænum köflum.
Ég vænti þess að lesendur bíði spenntir …
-SER.
Gamla ÚA
Posted by ser in Uncategorized on April 15, 2009
Ég átti því láni að fagna að heimsækja fjölmörg fyrirtæki á yfirreið okkar Samfylkingarfólks um Akureyri í dag. Eitt þeirra var mitt gamla góða ÚA … já, Útgerðarfélag Akureyringa, sem enn blómstrar austast á eyrinni lágu, nú undir heiti Brims. Ég hef alltaf haft taugar til þessa aldna fiskvinnslurisa, sem hefur um áratugi verið einn mestur máttarstólpa í mikilvægasta matvælahéraði landsins. Ég hef eiginlega haldið með ÚA, rétt eins og KA … þótt síðarnefnda félagið fái reyndar hjartað til að slá heldur örar.
Og þarna hitti ég reyndar Þórsarann Mola (Siguróla Kristjánsson) í 26 stiga frosti geymslnanna í norðurgafli hússins – og hann, ásamt Ágústi framkvæmdastjóra Haukssyni, átti auðvelt að að hrífa mig með sér á yfirreið okkar um allt þetta mikla gallerí gellna, garðs og golþorsksblokkna.
Þrifnaður. Metnaður. Árvekni. Þessi þrjú orð sitja eftir þegar ekið er af bílastæðinu við mitt gamla félag, ÚA. Það síðastnefnda vegna þess að framsækin fiskvinnsla er langt í frá stöðnuð á Íslandi. Hún er síkvik og síleitandi að hámarksgæðum og hámarksarði. Og svo er hitt jafnvel enn ánægjulegra; starfsánægjan úr augum og svip starfsfólksins er áberandi og smitandi. Það er í liði með sínum vinnustað. Og metnaðurinn eftir því …
-SER.
Spurningar og svör
Posted by ser in Uncategorized on April 15, 2009
Í pólitísku vafstri mínu á síðustu dögum hefur mér oftsinnis verið hugsað til þess hversu áþekk störfin í fréttamennsku og stjórnmálum eru. Það fyrrnefnda hefur verið lifibrauð mitt á fullorðinsárum – og það síðarnefnda er nú tekið við … með öllum sínum óvæntu hliðum, að ég hélt. En líkindin eru mikil.
Hvorutveggja störfin snúast um ferðalög, fólk og fjölbreyttar úrlausnir. Og óendanlegan áhuga á samfélagi og þjóðmálum. En mestan part þó á fólki; allskonar fólki, allra flokka, engra flokka. Og svo er enn eitt … sem mér finnst einna merkilegast. Rétt eins og í fréttamennsku held ég að það sé mikilvægara fyrir stjórnmálamenn að spyrja en svara. Mun mikilvægara. Ég er eiginlega á því að stjórnmálamenn hafi ekki spurt nógu margs á síðustu árum. Þeir hafa eiginlega bara svarað. Gjarnan án þess að heyra spurningu. Og stundum án þess að vita hverju þeir svara.
Rétt eins og í fréttamennsku finnst mér að stjórnmálamenn eigi að spyrja þangað til þeir vita. Og svara svo …
-SER.
Brynvörn af drullu
Posted by ser in Uncategorized on April 14, 2009
Einn af þeim stöðum sem ég kom á um páskahátíðarnar var Siglufjörður. Drullan af Lágheiðinni situr enn utan á blakka jepplingnum, nokkrum dögum síðar. Lakkfrosin. Ég fór með konunni, dótturinni og syni; sumsé parti úr familíunni – mjakandi mér og mínum innanum mannhæðarskafla skagans mikla – og þó höfðum við eiginlega hrakist undan kulda úr Hlíðarfjallinu fyrr um daginn. Norðankrumla atarna. Meira sumsé vorleysi en vorleysingjar.
En viti menn. Það er með Siglufjörð eins og þau systkini Neskaupsstað og Seyðisfjörð, svo og frænkuna Húsavík, að alltaf finnst mér ég aka inn í meginloft af menningu þegar Strákarnir eru að baki. Þessir staðir anga af sögu og djúpum slætti. Þessir staðir hafa alltaf kunnað við uppruna sinn – og einhvern veginn aldrei farið á taugum í áralöngu einelti Reykjavíkurvaldsins … sem allt veit og skilur – í þokkafullri þykjustu sinni.
Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði er magnaðasta safn landsmanna. Segi það hér og skrifa. Bátasafnið eitt og sér. Ja, heyr á eindemi. Þar tók félagi Möller á móti okkur og góðu hundraði gesta til að fagna lýðræðinu. Ég drakk fjögur glös af sóda, en flestir kneyfuðu bjórinn og einhverja ilmríka þreskju úr frönskum leirdölum. Þetta var góður dagur – og nálægt almætti að aka allsgáður suður Tröllaskagann um kveld. Sofandi börn og kona meðferðis. Sjálf ástin. Og fá svo á sig nýja brynvörn af drullu á Lágheiðinni … fyrir póltík næstu dægra …
-SER.
Tveir pólar
Posted by ser in Uncategorized on April 13, 2009
Ég gæti sem best trúað því að stjórnmálabarátta næstu dægra snúist um tvennt – og það harla ólíkt; sérhagsmuni og almannahagsmuni. Pólarnir eru tveir; jafnaðarstefna og hagsmunagæsla.
Og spurningarnar eru þessar – og þær eru alvarlegar: Hvers vegna getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki sætt sig við að sameign þjóðarinnar á auðlindum láðs og lagar verði fest í stjórnarskrá? Viljum við frekari varðstöðu um sérhagsmuni? Já, virkilega?
Og … hvort viljum við treysta samfélagið eða sundrunguna? Svörum þessu annan laugardag …
-SER.
Gleðilega páska
Posted by ser in Uncategorized on April 13, 2009
Ég er aftur tekinn til við að blogga eftir all nokkurt hlé – og vil nota tækifærið og þakka allan þann persónulega stuðning og hlýju sem ég og fjölskylda mín hefur notið síðustu daga, eftir okkar mikla missi.
Páskarnir hafa verið viðburðaríkir, enda er lokabaráttan fyrir alþingiskosningarnar að hefjast með þróttmiklu málefnastarfi og samtölum við kjósendur í kjördæminu stóra. Ég hef að mestu haldið mig í Eyjafirðinum yfir helgidagana og dreift þar hundruðum páskaeggja, merktum flokknum – og notið þess sömuleiðis að ræða við mikinn fjölda fólks.
Pólitík snýst að verulegu leyti um að hlusta á fólk – og umfram allt að vera innan um fólk. Það er altént reynsla mín af fyrstu vikunum í pólitík. Alþingi landsmanna þarf á sínu daglega umboði að halda. Það á ekki að loka sig af, heldur starfa á meðal fólksins. Páskaeggjadreifing og blöðrublástur á fjögurra ára fresti hefur að vísu lítið með pólitík að gera, enda er innihaldið í hvorutveggja tilvikunum aðeins loft … en auðvitað skaðar það samt ekki að hafa gleðina með í för á flandri stjórnmálanna.
Næstu dagar snúast um það að vinna glæsilegan kosningasigur á málefnunum, trúverðugleikanum, traustinu … og ég er bjartsýnn …
Erindi okkar er ekkert minna en að laga íslenskt samfélag og uppræta klíkustjórnmálin í eitt skipti fyrir öll …
-SER.