Vinstrisveiflan


Kosningaúrslitin um nýliðna helgi eru söguleg. Valdahlutföllin í íslenskum stjórnmálum hafa aldrei breyst jafn stórkostlega frá því flokkakerfið tók á sig nokkra mynd fyrir tæpri öld. Núna er spurningin aðeins þessi; verður þessi breyting varanleg? Mun norrænt velferðarkerfi vera við lýði á komandi árum á kostnað óbeislaðrar markaðshyggju? Spurningin verður ekki stærri í frónskri póltík.

Skoðum þetta nánar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei fengið álíka útreið og í kosningunum á laugardag. Hann náði ekki einu sinni fjórðungsfylgi á meðal þjóðarinnar. Mat margra er að það sé fyrir neðan helluna; altso harðasta fylgið hafi talsvert kvarnast úr honum. Hann getur ekki lengur bent á stefnumál sín og sagst vera ábyrgur flokkur í efnahagsmálum. Hann getur ekki lengur bent á vinstriflokkana og sagt þá vera með allt niðrum sig í hinni hörðu pólitík sem kallar á hagstjórnarlausnir; klisja íhaldsins hefur jú verið sú að kjósi menn villta vinstrið kalli það á harðavetur heimila og atvinnulífs.

Eina von sjálfstæðismanna til að ná aftur, þó ekki sé nema þriðjungsfylgi þjóðarinnar, er að vinstriflokkarnir klúðri endurreisninni á næstu mánuðum og misserum. Sjálfstæðismönnum mun ekki nægja að taka til heima hjá sér á næstu vikum; þeir munu ekki ná vopnum sínum nema með utanaðkomandi aðstoð; sumsé þeirri að ný meirihlutastjórn vinstriaflanna reynist þjóðinni illa. R-listasamstarfið í höfuðborginni frá 1994 til 2006 sýndi kjósendum að feitur hægriflokkur er ekki endanlega svarið í íslenskum stjórnmálum.

Margt bendir til að gömlu valdaflokkarnir, framsókn og íhaldið, séu að tapa höfuðstól sínum í íslenskum stjórnmálum. Ein ástæðan er sú að absalút-stefnur í stjórnmálum, jafnt til vinstri sem hægri, eru dauðar og fullreyndar; nú síðast hagsmunagæsla og einkavinavæðing flokksklíkuræðisins. Önnur ástæða að mínu mati er sú að íslensk stjórnmál eru að tapa trúar-sjarma sínum. Gamlir stjórnmálaflokkar munu hér eftir ekki ganga að kjósendum sínum jafn vísum og áður. Og það mun reyndar líka eiga við um þá nýju …

-SER.