Archive for Apríl, 2009
Vinstrisveiflan
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 29th, 2009
Kosningaúrslitin um nýliðna helgi eru söguleg. Valdahlutföllin í íslenskum stjórnmálum hafa aldrei breyst jafn stórkostlega frá því flokkakerfið tók á sig nokkra mynd fyrir tæpri öld. Núna er spurningin aðeins þessi; verður þessi breyting varanleg? Mun norrænt velferðarkerfi vera við lýði á komandi árum á kostnað óbeislaðrar markaðshyggju? Spurningin verður ekki stærri í frónskri póltík.
Skoðum þetta nánar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei fengið álíka útreið og í kosningunum á laugardag. Hann náði ekki einu sinni fjórðungsfylgi á meðal þjóðarinnar. Mat margra er að það sé fyrir neðan helluna; altso harðasta fylgið hafi talsvert kvarnast úr honum. Hann getur ekki lengur bent á stefnumál sín og sagst vera ábyrgur flokkur í efnahagsmálum. Hann getur ekki lengur bent á vinstriflokkana og sagt þá vera með allt niðrum sig í hinni hörðu pólitík sem kallar á hagstjórnarlausnir; klisja íhaldsins hefur jú verið sú að kjósi menn villta vinstrið kalli það á harðavetur heimila og atvinnulífs.
Eina von sjálfstæðismanna til að ná aftur, þó ekki sé nema þriðjungsfylgi þjóðarinnar, er að vinstriflokkarnir klúðri endurreisninni á næstu mánuðum og misserum. Sjálfstæðismönnum mun ekki nægja að taka til heima hjá sér á næstu vikum; þeir munu ekki ná vopnum sínum nema með utanaðkomandi aðstoð; sumsé þeirri að ný meirihlutastjórn vinstriaflanna reynist þjóðinni illa. R-listasamstarfið í höfuðborginni frá 1994 til 2006 sýndi kjósendum að feitur hægriflokkur er ekki endanlega svarið í íslenskum stjórnmálum.
Margt bendir til að gömlu valdaflokkarnir, framsókn og íhaldið, séu að tapa höfuðstól sínum í íslenskum stjórnmálum. Ein ástæðan er sú að absalút-stefnur í stjórnmálum, jafnt til vinstri sem hægri, eru dauðar og fullreyndar; nú síðast hagsmunagæsla og einkavinavæðing flokksklíkuræðisins. Önnur ástæða að mínu mati er sú að íslensk stjórnmál eru að tapa trúar-sjarma sínum. Gamlir stjórnmálaflokkar munu hér eftir ekki ganga að kjósendum sínum jafn vísum og áður. Og það mun reyndar líka eiga við um þá nýju …
-SER.
Þakkir
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 27th, 2009
Að afloknum kjördegi er ástæða til að þakka … þakka fólkinu sem tók á móti okkur frambjóðendum flokksins um allt kjördæmið, með uppáhellingu og pönnsum … þakka fólkinu sem vann af krafti á kosningaskrifstofunum frá Fjallabyggð í vestri til Djúpavogs í austri … og þakka kosningastjórninni fyrir góðu ráðin og hvatninguna.
Þakka einnig meðframjóðendum í eigin flokki og öðrum stjórnmálahreyfingum sem háðu málefnalega baráttu án rætni og svívirðinga. Þakka svo náttúrlega sjálfum kjósendunum sem komu mér á þing með næsta öruggum hætti. Já, þakka það sérstaklega.
Þakka kannski ekki síst fjölskyldu sinni fyrir fölskvalausa baráttugleði og þolinmæðina á meðan karlinn þvældist eins og landaskratti um eitt víðfeðmasta kjördæmi landsins. Og þakka einnig sínum sæla og góðum vættum fyrir að komast klakklaust allar þær þúsundir kílómetra sem að baki eru í hálku og skafrenningi, þæfingi og ófærð; það er nefnilega ekki sjálfgefið að aka sér heilum heim eftir nærri þriggja mánaða pólitíska yfirreið, án minnsta óhapps.
Kosningasigurinn tileinka ég auðvitað elstu dóttur minni sem féll frá í miðri þessari baráttu, eftir langvarandi veikindi, aðeins 24 ára gömul. Ég veit að hún vakti með pabba á kosninganótt - og sé enn fyrir mér brosið hennar …
-SER.
Kjördagur
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 25th, 2009
Á endanum snúast allar kosningar um traust og heiðarleika.
Hverjum treystum við til að sýna aðhald, hverjum treystum við til að sækja fram, hverjum treystum við til að leiða þjóðina út úr ógöngunum?
Hitt vitum við … altso, hverjir komu okkur í ógöngurnar. Svarið er ógleymanlegt: Spillingaröflin, aðdáendur græðginnar. Nú breytum við öllu: Einkavinavæðingin er ekki lengur valkostur í íslenskum stjórnmálum. Við megum aldrei aftur glata jöfnuðinum í íslensku samfélagi …
-SER.
Eignir mínar og skuldir
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 24th, 2009
Umræða síðustu mánaða um gagnsæi og upplýsingar í stjórnmálalífi þjóðarinnar er mikilvæg. Kjósendur verða að vita hverjir frambjóðendur eru … raunverulega. Þessvegna er eðlilegt að krefja þá um fjárhagsskuldbindingar og hagsmunatengsl. Hér opna ég mína bók:
Fasteignir:
1. Hverafold 37, Reykjavík. 300 fermetra einbýli. Fasteignamat: 47 milljónir. Skuldsetning: 30 milljónir. (Íbúðalánasjóður og Byr).
2. Svanabyggð 10, Flúðum. 100 fermetra sumarhús, 1/4 hlutur. Fasteignamat: 13 milljónir. Skuldsetning: Engin.
Bifreiðaeign:
1. Toyota Yaris, árgerð 2006, kaupverð 1,1 milljón.
2. Peugeot 304, árgerð 2003, kaupverð 600 þúsund.
Hlutabréfa- og verðbréfaeign:
1. Engin.
Aðrar skuldir:
1. Engar.
Launagreiðendur síðustu 12 mánaða (200 þúsund krónur og meira):
1. 365 miðlar (6 mánaða laun í uppsagnarfresti frá 1. febrúar 2009, þ.m.t. afnot af bifreið, tölvu og síma)
2. Bjartur Veröld, bókaútgáfa, laun fyrir ritstörf.
3. Fjarðabyggð, sveitarfélag, laun fyrir byggðaverkefni.
Styrkveitingar vegna stjórnmálaþátttöku (prófkjör og kosningabarátta 2009):
1. Engar.
Áætlaður beinn kostnaður af stjórnmálaþátttöku (prófkjöri og kosningabaráttu 2009)
1. 780 þúsund, (nánar sundurliðað síðar).
Stjórnarseta (staða) á síðustu 12 mánuðum:
1. Formaður stjórnar Leikfélags Akureyrar.
Félagatengsl:
1. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands.
2. Félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur.
3. Félagi í Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA.
4. Félagi í knattspyrnufélaginu Lunch United.
5. Félagi í Leikfélagi Akureyrar.
6. Félagi í Ungmennafélaginu Fjölni.
Hér tel ég ekki matarklúbba og vinaklúbba, en vona að upptalningin sýni nokkurn veginn hvar ég stend …
-SER.
Spurning kvöldsins
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 23rd, 2009
Hinn ágæti formaður Framsóknarflokksins, nafni minn Gunnlaugsson, spáir alsherjarhruni. Viðskiptaráðherra landsmanna, óflokkspólitiskur Gylfi Magnússon segir aðra sögu í Mogga í dag. Hvorum trúum við?
Eru menn úrkula vonar, eða raunsæir? Ég bara spyr …
-SER.
Baklandið
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 23rd, 2009
Á síðustu vikum og mánuðum hef ég nokkurn veginn talað á mig gat. Einsog trissubani um fjörð og vík. En þetta eru forréttindi: Siglufjörður, Ólafsfjörður, Dalvík og Hauganes, plús Svalbarðseyri og Grenivík. Bara smápartur. Akureyri og Laugar, Húsavík og Kópasker, Raufarhöfn og Þórshöfn. Já og Vopnafjörður, Fellabær, Egilsstaðir, Seyðisfjörður og Fjarðabyggð … með öllum sínum viðkomustöðum á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Búðum, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Ég tala nú ekki um eitt fegursta þorp landsmanna, Djúpavog.
Verst þykir mér að hafa ekki komist á Bakkagerði og Bakkafjörð á þessum rúnti; þeir einir urðu afgangs, en ég kem þangað fljótt.
Og svo sem og sei sei … ég vildi sagt hafa; fólkið í baklandinu er mér einna efst í huga … já, fólkið sem af sannfæringu sinni og vinnugleði og heitstrengingu vinnur fyrir flokk og félagsmenn, jafnt að nóttu sem degi. Það er þetta fólk sem situr í mér núna þegar hyllir undir lok kosningabaráttunnar. Já, takk fyrir kaffið og kleinurnar og kærleikann og það sem mest er um vert; baráttuviljann til betra samfélags.
Þvílíkar vinnukonur flokksins og vinnumenn … og þvílík lífsgleði að vera á góðum stað í pólitík. Ég geri það eitt að bugta mig … og þakka stórum …
-SER.
Stóra breytan
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 23rd, 2009
Stóra breytan í íslenskri pólitík snýst um traust; aukið traust og tapað traust. Meirihluti þjóðarinnar treystir félagshyggjuöflunum í samfélaginu til að stjórna landinu. Á sama tíma hefur stærstur hluti þjóðarinnar gefist upp á óbeisluðum markaðsleiðum hægriaflanna í landinu. Hér hafa orðið skil í íslenskum stjórnmálum. Það þýðir ekki lengur að benda á hættuna á valdatöku vinstrimanna, þegar mesta hættan er að baki í boði hægriaflanna.
Sem kunnugt er var það ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem klikkaði á síðustu árum, heldur fólkið innan raða hans. Þetta er altént söguskýring íhaldsforystunnar. Þess þá heldur að guð forði okkur frá því að stefna Sjálfstæðisflokksins verði við lýði hér á Íslandi á næstu árum þegar tekið verður til við endurreisn íslensks efnahags. Þar mega sérhagsmunir ekki áfram ráða á kostnað almannahagsmuna. Þar má einkavinavæðingin ekki ríða helstu húsum landsmanna. Og því síður einangrunarhyggjan - og hræðslan við að horfa til annarra þjóða. Allra sýst ættarhyggjan; að forgangsráða flokknum fram yfir þjóðina, hvort heldur er í mannaráðningum í opinberar stöður eða við val á verktöku.
Þjóðin er ekki endilega að hafna sjálfstæðisfólki sem margt er prýðilagt og vandað og miklir vinir mínir. Það er að hafna flokknum og ónýtri og óábyrgri stefnu hans sem þarfnast rækilegrar hreingerningar …
-SER.
Pólitítík síðasta vetrardags
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 22nd, 2009
Pólitik þessa síðasta vetrardags snýst um kalt mat; að læra af sögunni. Hún fjallar um þau sannindi að margar stjórnmálastefnur eru fullreyndar … svo sem fasismi og kommúnismi síðustu aldar og nýfrjálshyggja nýrrar allar. Sammerkt er það þeim öllum að þrífast fremur á sundrungu í stað samfélags.
Við skulum aldrei aftur glata jöfnuði í okkar samfélagi. Við skulum aldrei aftur veðja á óbeislaða markaðshyggju. En við skulum einnig horfa til nýrra tíma. Þar gildir að kjósa framsækna og fordómalausa atvinnustefnu sem öðru fremur er byggð á gagnsæi og ábyrgð. Við skulum taka almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni. Við skulum leita eftir regluverki þjóðanna sem kyrkir klíkuskapinn í lélegu lýðræði.
Við skulum umfram allt veita trausti og heiðarleika brautargengi. Nærtækast er að velja konu til forsætis; konu sem þjóðin treystir. Testósteron-stjórnmálin hafa nefnilega brugðist okkur. Já, karlarnir hafa klikkað; ofurlaunaðir, ofurvaldaðir og ofurdekraðir af úthlutunarnefnd gamla ríkisvaldsins …
-SER.
Skilin í pólitík
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 21st, 2009
Pólitíkin þessa síðustu daga fyrir kosningar snýst um skilin á milli sérhagsmuna og almannahagsmuna. Sumsé hvoru megin hryggjar ætla menn að verja atkvæði sínu. Þetta er akkúrat spurningin.
Pólitík þessa síðustu daga fyrir kosningar snýst einnig um að eltast við síbreytilega peningastefnu sem skiptir vikulega um mynt … eða halda sig við stefnu sem stenst tímans tönn.
Pólitík þessa síðustu daga fyrir kosningar snýst aukinheldur um framsækna og fordómalausa atvinnutefnu … eða afturhald sem útilokar erlent fjármagn hjá auralausri þjóð.
Það er gríðarlega mikið í húfi. Þetta er nefnilega ekki lengur spurning um varið land … með stjarfa hönd á pung … heldur opið land sem er í einhverju ástarsambandi við framtíðina.
Á endanum er þetta svo auðvitað spurning um heiðarleika og traust …
-SER.
Umræðan snýst
Posted by ser in Uncategorized on Apríl 20th, 2009
Það athyglisverða við stjórnmálaumræðu síðustu dægra er að umræðan um evru og mögulega aðild að ESB er að snúast … okkur Samfylkingarfólki í hag. Ég finn þetta í dreifðustu byggðunum í Norðausturkjördæmi - og ég finn þetta í stærstu bæjunum, svo sem Akureyri, þar sem ég fór um eins og sprækur sveitahundur á milli fyrirtækja í dag.
Það þarf ekki lengur að tala í hálfum hljóðum um samningaleiðina austur um höf. Það sem hefur breyst er að allur almenningur vill fá að heyra það með háreysti hvað Íslendingum stendur til boða við samningaborð þjóðar og bandalags. Sveitamenn, bændur og sjómenn, smærri atvinnurekendur og stærri … allir eru að átta sig á nið tímans; við getum ekki lokað landinu … eina leiðin er út, eina leiðin er öflugri mynt og innstreymi fjármagns.
Það er út af fyrir sig ánægjulegt að vera í flokki sem hefur haldið stefnunni síðustu ár og misseri. Með þrautsegju er Samfylkingunni að takast að vekja almenning til umhugsunar um þær raunverulegu leiðir sem í boði eru. Þær eru tvær. Að loka landinu, eða opna það. Þessar leiðir snúast í reynd um það að koma í veg fyrir næstu kafsiglingu … sem felst einfaldlega í því að hundsa samningaleiðina, neita því að sjá á spilin.
Nokkrum dögum fyrir kosningar getum við ekki boðið upp á pólitík sem boðar norska krónu eina vikuna, íslenska þá næstu, dollara hálfum mánuði fyrir kosningar og evru viku síðar. Þvílíkt pólitískt rekald sem gamlir hagsmunagæsluflokkar eru orðnir í þessum efnum, timbraðir af tættum innviðum. Hér snýst sem fyrr allt um trúverðugleika; að byggja á grunni stefnu sem virkar - stefnu sem fjallar um veruleika fremur en væntingar.
Samantekið er staðan þessi: Kosningabaráttan snýst núna um þrennt: Evrópumálin og evruna - og hvern Íslendingar vilja sem næsta forsætisráðherra …
-SER.