Archive for Mars, 2009
Blogghlé
Posted by ser in Uncategorized on Mars 24th, 2009
Ágætu lesendur á síðu minni.
Af persónulegum ástæðum geri ég hlé á bloggfærslum mínum.
Ég vona að þið sýnið biðlund.
Ég sný tvíefldur til baka eftir rösklega viku.
Bestu þakkir fyrir hlýhug og vinsemd síðustu daga …
-SER.
Söluturninn
Posted by ser in Uncategorized on Mars 18th, 2009
Þessi saga gengur á netinu, óneitanlega nokkuð íslensk:
Eigandi Söluturns Simma greiddi sjálfum sér arð af rekstri félagsins á síðasta ári, 10 milljarða króna, þrátt fyrir að söluturninn hafi ekki skilað nema 5.000 króna hagnaði.
„Þetta var nú bara tala sem ég áætlaði. Ég var ekkert að reikna þetta í drep. Ég hafði rosalega góða tilfinningu fyrir rekstrinum, var með margar mjög sterkar spólur í leigu, Spædermann þrjú og svona – þannig að ég ákvað bara að tríta mig aðeins,“ segir Simmi, en viðurkennir um leið að hann hafi aðeins farið fram úr sér.
„Ég vona bara að stjórnvöld sýni þessu skilning og komi með pening inn í reksturinn. Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt og nú að halda þessum litlu vídeóleigum gangandi.“
Þetta er brandari, er það ekki …
-SER.
Þjóðstjórn hugans
Posted by ser in Uncategorized on Mars 18th, 2009
Ég held að fólkið úti á Austurvelli hafi ekki verið að biðja um 63 nýja alþingismenn. Ég held að fólkið sem barði á búsáhöldin hafi ekki verið að biðja um algert reynsluleysi í þingstörfum. Ég held það hafi ekki einu sinni verið að biðja um nýtt blóð, svo gripið sé til klisjunnar.
Ég held það hafi verið klárara en svo … sumsé að það hafi ekki endilega verið að biðja um fólk. Kannski ekki einu sinni prófkjör, forvöl, uppstillingu.
Nei; það var að biðja um hugmyndir. Nýja stefnu. Nýja sýn. Og líklega fyrst og síðast ný vinnubrögð. Það var kannski aðallega að biðja um það að fólkið handan tilhoggna steinsins tæki sig saman í andlitinu og byrjaði að vinna eins og menn, en ekki mýs … múlbundnar af meðmælasamkomum stjórnmálaflokkanna. Ekki barið af höfðingjum, heldur hamrað af hugmyndum …
Nú er uppi mikil tölfræði um endurnýjun þings. Ég hef tæpt á henni, svo og minn flokkur, fleiri þingmannsefni og … nær allir ef því er að skipta. Jújú, einhver 53ja prósenta nýliðun í mínum flokki - og líklegt, já meira að segja, að kynjahlutföllinn verði þjóðinni loksins samboðin. Altént hjá vinstriflokkunum.
En skiptir máli að telja fólk?
Ég held við þurfum að ganga til nýs þings með opnum huga til allra flokka. Hampa þeim fremur en úthúða. Ég held við þurfum á þjóðstjórn hugans að halda. Pólitískt umburðarlyndi og víðsýni hefur líklega aldrei verið mikilvægara. Og mikið óskaplega sem það er nú auðvelt ef menn una hver öðrum þess að eiga góða hugmyndir. Já, una hver öðrum. Hrósa. Vinna jafnvel meira saman en sundur.
Þetta kann að hljóma pólitískt barnalegt, en það þurfti líka barn til að benda á keisarann.
Öskrandi pólitík tveggja særðra ljóna í kastljósi fjölmiðlanna má muna sinn fífil fegurri. Hún hefur engu skilað nema uppsafnaðri viðurstyggð og hatri … já, alls almennings á stjórnmálastarfi og stjórnmálastétt. Við þurfum miklu fremur upplýsta og raunverulega stjórnmálaumræðu … ég segi raunverulega. Við þurfum að snúa af braut ímyndarfræðanna í pólitík og fjalla fremur um innihaldið.
Stærsta stjórnmálaspurning dagsins er þessi: Viljum við tapa aftur jöfnuði samfélagsins?
Ég held við eigum nefnilega að spyrja raunverulegra spurninga - og svara þeim án æsings og skætings og útúrsnúninga …
Ég held með öðrum orðum að stjórnmálin eigi að vinna meira saman en sundur …
-SER.
600 milljarðar
Posted by ser in Uncategorized on Mars 17th, 2009
Er einhver þarna úti sem getur sagt sem svo að íslensk þjóð hafi efni á að punga út 600 milljörðum si sona … ofan í allt sem á undan er gengið? 600 milljarða út í bláinn? Til að hjálpa upp á heppnina eina? Flatur niðurskurður Á ALLA er næsta skrautleg tillaga þegar þess er freistað að alhæfa um skuldir þjóðarinnar.
Gott og vel. Leyfum okkur að alhæfa: Viljum við hjálpa þeim mest sem sýndu minnstu ráðdeildina? Og hjálpa þeim minnst sem flýttu sér hægast?
Ég tel eðlilegast - jafnast - að lengja lán, frysta vexti og afnema verðbætur að hluta, til dæmis með því að hengja þær aftur fyrir hrunið … þar til við afnemum þær að fullu.
Svo er hitt: Af hverju nefna menn prósentur þegar komið skal til móts við skuldara? Af hverju ekki krónutölu - ef út í það er farið? Fasta tölu? Hverjir græða mest á prósentunum - og hafa alltaf gert? Hvað hangir hér á spýtunni? Einhverskonar gróðastyrksnefnd …
-SER.
Endurnýjun og jafnrétti
Posted by ser in Uncategorized on Mars 16th, 2009
Athyglisvert að rýna í niðurstöður prófkjara Samfylkingarinnar um síðustu og þarsíðustu helgi. Breytingarnar frá því fyrir kosningarnar 2007 eru verulegar, eins og tölfræði frá flokksskrifstofunni á Hallveigarstíg sýnir:
1. Ef horft er til 30 efstu sætanna á listum Samfylkingarinnar 2007 og
svo sambærilegs fjölda miðað við úrslit prófkjöra þá eru 16 nýir að
koma inn eða 53%.
2. Sé aðeins litið til 18 efstu (núverandi þingmannafjöldi) eru 7 nýir að
koma inn í þann hóp (39%). Tveir til viðbótar komu nýir inn 2007 svo í
reynd er helmingurinn nýtt fólk.
3. Í 30 manna hópnum 2007 voru 17 karlar (57%) og 13 konur (43%).
Í 30 manna hópnum skv. prófkjörum 2009 eru 14 karlar (47%) og 16 konur (53%).
Í 18 manna hópnum 2007 voru 12 karlar (67%) og 6 konur (33%).
Í 18 manna hópnum skv. prófkjörum 2009 eru 9 karlar (50%) og 9 konur (50%).
Hér tala tölur …
-SER.
Prófkjörsúrslit
Posted by ser in Uncategorized on Mars 14th, 2009
Um síðustu helgi kynntist ég þeirri undarlegu tilfinningu að bíða úrslita, örlaga, dóms. Sat á gluggakistunni í Lárusarhúsi niðri á eyri höfuðstaðarins og beið þess með hvíta hnúa á lærunum að prófkjörsstjórnin læsi lengra á listann. Úrslitin voru mér hagfelld, sem er ekki sjálfgefið … og fráleitt þegar bræður berjast.
Prófkjör eru undarleg orrusta fólks úr sama herfylki. Gunnfáninn sá sami, svo og markmiðið.
Sigurvegarar í prófkjörum Samfylkingarinnar sunnan heiða eru Jóhanna, Sigríður Ingibjörg og Valgerður, svo og Skúli … Jóhanna fyrir yfirburðina, Sigríður og Skúli fyrir ferskeikann, Valgerður fyrir þrautsegjuna. Það er sterkt að fá hana endanlega inn fyrir þröskuldinn. Hún er pondus.
Sé að bekkjarbróðir minn úr MA, Óli Björn Kárason, kemst líklega á þing. Fagna því. Hjá hans íhaldsfólki í suðvestrinu er Ragnheiður sigurvegarinn, fyrir utan Bjarna - og Óla. Illugi er svo auðvitað stóri dómur sjallanna í borginni … á lista sem er að öðru leyti eins og afturhald tveggja ára tíðinda. Samt … það ber ekki að vanmeta ágæta endurnýjun hjá gamla nýfrjálshyggjuflokknum; hans sár kunna að gróa fyrr en seinna …
Kannski er samt Árni Páll stærsti sigurvegari kvöldsins. Óbreytti þingmaðurinn hafði bæjarstjórann, svo og ráðherrann …Það getur verið gaman að vinna stórt … en ekki síður að vinna mjótt …
-SER.
Akureyri í dag
Posted by ser in Uncategorized on Mars 14th, 2009
Sat kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi í dag. Þar stilltum við upp endanlegum lista, tuttugu manns - og fyrstir allra framboða í landinu til að ganga frá okkar málum. Sérstakt gleðiefni að sjá að fólkið á listanum er víða að, af öllum aldri og lífsreynslan mörg.
Séra Gunnlaugur Stefánsson úr Heydölum stjórnaði röðun listans, altso því sem upp á vantaði eftir bundna prófkjörsbaráttu um átta efstu sætin. Gunnlaugur er naskur á fólk, mannglöggur og samfélagskær. Ásamt sínu fólki náði hann að þétta listann, svo nú er hann vindheldur og regnheldur. Og tilbúinn í öll veður.
Takk séra minn …
-SER.
Jóhanna og Dagur
Posted by ser in Uncategorized on Mars 12th, 2009
Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekki enn gert upp pólitískan hug sinn; fyrir vikið svífur formennska í Samfylkingunni í lausu lofti. Líkurnar á að hún hafni boðinu fara vaxandi eftir því sem óvissan varir lengur. Standi hún við fyrri ákvörðun sína, og afþakki formennskuna, er ekkert annað að gera fyrir flokksmenn en að horfa til framtíðar; ný könnun í Fréttablaðinu í dag vísar þar veginn. Dagur B. Eggertsson, oddviti flokksins í borgarstjórn, er sá stjórnmálamaður þjóðarinnar sem helst kemur upp í huga hennar þegar framtíðarleiðtogi flokksins ber á góma. Hann ber þar höfuð og herðar yfir prýðismennina Árna Pál Árnason, Lúðvík Geirsson og Jón Baldvin Hannibalsson … vel að merkja, sem allt eru karlar …
Það er ekkert sem segir að næsti framtíðarleiðtogi Samfylkingarinnar þurfi jafnframt að vera alþingismaður … ef óumdeilt forsætisráðherraefnið er annað. Það er heldur ekkert sem segir að Dagur B. Eggertsson geti ekki tekið við keflinu af Jóhönnu eftir nokkur misseri, enda ekki sjálfgefið - og meira að segja óráðlegt - að ráðherra sé þingmaður.
Dagur B. Eggertsson er í sjálfu sér ekkert plan B. Hann er að springa út sem fullþroskaður stjórnmálamaður, sem getur með vinnusemi sinni og pólitískri djörfung stutt forsætisráðherraefnið Jóhönnu Sigurðardóttur til enn frekari sigra í íslenskum stjórnmálum. Kannski er það einmitt svo að næsti formaður Samfylkingarinnar eigi ekki jafnframt að vera forsætisráðherra næstu stjórnar. Fyrirmyndirnar utan úr heimi er fjölmargar, en þar er víða sitt hvað að vera formaður í flokki og forseti í stjórn.
Jóhanna og Dagur … kona og karl … reynsla og ferskleiki … ég held það bara …
-SER.
Formennska
Posted by ser in Uncategorized on Mars 10th, 2009
Eftir ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar um að draga sig í pólitískt hlé, blasir við að Samfylkinguna vantar sterkan og afgerandi formann sem fyllt getur skarð forverans af myndugleika… og síðast en ekki síst trúverðugleika. Í fljótu bragði er svarið aðeins eitt; Jóhanna Sigurðardóttir, óumdeildasti stjórnmálamaður þjóðarinnar - og sá virtasti ofan í kaupið. Og það sem meira er; eftir því sem málinu er lengur velt fyrir sér, er svarið það sama. Tími Jóhönnu er kominn … algerlega og án afsláttar; eitthvað sem hún bað um fyrir svo margt löngu - og jafnframt eitthvað sem hún getur ekki vikið sér undan þegar klukkan hringir. Hún bað um þetta tækifæri. Og hún fær þetta tækifæri. Örlagaræðan á flokksþingi Alþýðuflokksins um árið, fær nýja og afbakaða merkingu, ef hún grípur það ekki.
Time can change you, but you can´t change time, söng félagi Bowie og Jagger bætti við: Time … is one my side. Báðir hafa síðan lifað tímana tvenna. Það sama við um Jóhönnu. Hún hefur verið samviska Alþingis um áratugaskeið og aldrei látið flokka ráða yfir sér, heldur farið sínu fram, þvert á eiginhagsmuni og framapot, af því pólitísk innsæi hefur sagt henni svo. Staðfstan hefur skilað henni síðari tíma yfirburðum í íslenskum stjórnmálum. Þá ber að nýta. Þá verður að nýta.
Jóhönnu stendur til boða að enda pólitískan feril sinn með reisn og þokka; eitthvað sem tiltölulega fáum stjórnmálaforingjum síðustu ára hefur tekist að gera. Menn hafa ýmist hætt of seint, óundirbúið og fálmkennt, eða hreinlega ekki hætt þótt þeir hafi hætt. Jóhanna á eitt verkefni eftir … sem formaður og forsætisráðherra. Sá tími er kominn.
Svo kemur Ingibjörg aftur, endurnærð og aldrei sterkari …
-SER.
Krepputal
Posted by ser in Uncategorized on Mars 9th, 2009
Það er margt sem leitar á hugann eftir ferðalög um Norðausturkjördæmið á síðustu dögum og vikum. Fólk er allsendis ófeimið við að tala um pólitík hvar svo sem farið er … og kann reyndar þá mannasiði - sem ekki eru lengur sjálfsagðir - að koma framan að manni. Sem er gott.
Eitt stendur líklega upp úr. Allir þeir sem höfðu á orði að keppan var ekki nýkomin til landsins. Því færi fjarri. Fólk utan höfuðborgarsvæðisins þekkti kreppu síðustu þrjátíu ára eða svo; kreppu sem hefði að miklu leyti lamað atvinnulíf og uppgang hinna dreifðu byggða á meðan ríkisvaldið og fjármálavaldið hefði dekrað við við Reykjavíkuraðalinn. Og hann einan.
Þetta er rétt. Við bjuggum til falskt samfélag; samfélag banka sem sendu landsbyggðinni langt nef … og felldu húseignir í verði, neituðu fólki um lánafyrirgreiðslur, sýndu landsmönnum yfirlæti og hroka. Við bjuggum þar á undan til samfélag sem stakk þjóðarauðnum í eigin vasa og stakk af með atvinnutækifærin suður yfir heiðar -og skildi byggðirnar eftir kvótalausar.
Við bjuggum til samfélag kreppunnar úti á landi; samfélag sem fór algerlega á taugum þegar loksins átti að snúa landsbyggðakreppunni við með alvöru innspýtingu í atvinnulífið.
Núna stólar hin fallna Reykjavík á að landsbyggðin komi Íslandi til bjargar; aftur skal leitað á náðir frumatvinnugreinanna … hinnar eiginlegu verðmætasköpunar.
Spurningin er bara hvort Reykjavík leiti ekki of seint út á land …
-SER.