Baráttan hafin


Kosningabaráttan er hafin að fullu. Fyrsti framboðsfundur þingmannsefna Samfylkingarinnar í Norðaustrinu á Dalvík í morgun; fullur salur í Bárubúð, stemmning og slagkraftur. Enda átján manns í framboði í fyrstu átta sætin, nánast helmingi fleiri en t.d. sjálfstæðimenn bjóða upp á í kjördæminu. Þarna flutti ég mína fyrstu framboðsræðu frá því í Menntaskólanum á Akureyri fyrir 30 árum. Og leið bara skatti vel. Í góðum hópi. Okkar frambjóðendur er af öllum aldri, öllum starfsgreinum og víða að úr kjördæminu, sumsé mikil breidd - og það sem skiptir mestu; mikil samstaða …

-SER