Ánægjulegt að sjá Samfylkinguna á skriði - og sömuleiðis vinsældir helstu ráðamanna flokksins, samkvæmt nýjum könnunum. Þá má aldrei gleymast í stjórnmálaumræðunni fyrir kosningarnar í vor að jafnaðarstefnan er eina klassíska stjórnmálastefnan sem tíminn vinnur ekki á. Líklega er það vegna þess að hún gerir ráð fyrir samfélagi, fremur en sundrungu. Aðrar stefnur, gamlar og nýjar, hafa glatað trúverðugleika sínum; jafnt fasismi og kommúnismi og nýfrjálshyggja … líklega vegna þess að þær byggja leynt og ljóst á mannfyrirlitningu.
Ísland verður aðeins endurreist með gildum jafnaðarstefnunnar. Og það vita allir … leynt og ljóst …
-SER.